Dagskrá fundar
1. Menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2026
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð fór yfir tilnefningar og tók ákvörðun um hver hlýtur Súluna, menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2026. Nafn verðlaunahafa verður afhjúpað í nóvember með sérstökum viðburði.
2. Safnahelgi á Suðurnesjum
Safnahelgi á Suðurnesjum var haldin dagana 17.–18. október og tókst vel þrátt fyrir krefjandi veðurskilyrði. Safnahelgin er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum og var í ár lögð sérstök áhersla á að hvetja íbúa og gesti til að „taka rúntinn“ um svæðið og kynnast söfnum, sýningum, sögu og fjölbreyttu menningarstarfi Suðurnesja.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð fagnar góðum árangri Safnahelgarinnar og þakkar öllum þeim fjölmörgu samstarfsaðilum sem lögðu sitt af mörkum. Verkefnið hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurnesja.
Í kjölfar Safnahelgarinnar er hafin vinna við stefnumótun verkefnisins til framtíðar. Liður í þeirri vinnu er könnun meðal íbúa á Suðurnesjum þar sem kallað er eftir viðhorfum þeirra og reynslu, bæði þeirra sem sóttu Safnahelgina og þeirra sem ekki tóku þátt. Niðurstöðurnar verða nýttar ásamt reynslu samstarfsaðila við áframhaldandi þróun Safnahelgarinnar.
3. Aðventugarðurinn 2026
Undirbúningur fyrir Aðventugarðinn og Aðventusvellið er kominn á fullt skrið. Markmiðið með Aðventugarðinum er að lýsa upp svartasta skammdegið og skapa góða og notalega stemningu fyrir jólabörn á öllum aldri á aðventunni. Aðventugarðurinn opnar fyrstu helgina í desember, þ.e. 5.-6. desember, með breytingum á opnunartíma sem miða að því bjóða upp á ólíka upplifun eftir dögum en opið verður frá kl. 15-18 laugardaga og 13-16 sunnudaga auk opnunar á Þorláksmessu. Nýr rekstraraðili Aðventusvellsins, Kastalar ehf., stefnir á opnun í nóvember og verður upplýsingar að finna á adventusvellid.is. Nú er opið fyrir umsóknir um sölukofa og skemmtidagskrá til 25. október og eru allir áhugasamir hvattir til að sækja um.
Ráðið hvetur alla þá sem hafa upp á skemmtilegar vörur tengdar jólum að bjóða og skapandi fólk til að sækja um að koma fram í Aðventugarðinum. Ráðið hvetur íbúa einnig til að gera sér glaðan dag á aðventunni, heimsækja fallega Aðventugarðinn og nýta þjónustu verslana og veitingaaðila í heimabyggð.
Gildi Aðventugarðsins felst ekki eingöngu í þeirri fjölbreyttu dagskrá sem þar er í boði, heldur ekki síður í þeirri samveru, hlýju og samfélagslegu tengingu sem myndast. Slíkur vettvangur auðgar mannlífið og styrkir bæjarbraginn.
4. Samningur við Íþróttafélagið Nes - efling á íþróttastarfi fyrir fatlaða
Samningur við Íþróttafélagið Nes lagður fram.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð samþykkir samninginn.
5. Íþróttir og tómstundir á Suðurnesjum - þátttaka barna
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir áhugaverða og upplýsandi kynningu á þátttöku barna í íþróttum og tómstundum á Suðurnesjum. Ráðið þakkar Hjördísi Evu Þórðardóttur, verkefnastjóra farsældar barna, einnig fyrir góða greiningu á niðurstöðum íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2025 og 2026.
Ráðið fagnar þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Ljóst er að sú mikla og markvissa vinna sem Reykjanesbær, önnur sveitarfélög á Suðurnesjum, svæðisfulltrúar íþróttahéraða á Suðurnesjum, íþrótta- og tómstundahreyfingin og aðrir samstarfsaðilar hafa lagt í málaflokkinn á undanförnum árum er nú að skila góðum árangri.
Þessi jákvæða þróun er hvatning til að halda áfram á sömu braut og efla enn frekar það öfluga starf sem fram fer í sveitarfélaginu.
Ráðið leggur áherslu á að áfram verði unnið að því að tryggja öllum börnum og ungmennum jöfn tækifæri til þátttöku í fjölbreyttu íþrótta- og tómstundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
6. Fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundamála 2027
Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir stöðuna á vinnu við fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundamála fyrir árið 2027. Að auki var lögð fram tillaga að gjaldskrá fyrir málaflokkinn.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð lagði fram eftirfarandi bókun:
„Í fyrirliggjandi gögnum um fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundamála 2027 koma fram fjölmargar ófjármagnaðar tillögur sem varða bæði viðhald mannvirkja, uppbyggingu og þjónustu við börn og ungmenni. Mikilvægt er að forgangsröðun fjármagns taki mið af raunverulegri þjónustuþörf og þeim áskorunum sem börn og ungmenni í Reykjanesbæ standa frammi fyrir.
Sérstaklega vill íþrótta-, tómstunda- og menningarráð undirstrika mikilvægi Hlýjunnar, sem tók formlega til starfa í október 2025. Aðdragandi verkefnisins nær aftur til ársins 2021 þegar ungmenni í Reykjanesbæ kölluðu sjálf eftir auknum stuðningi við andlega líðan.
Hlýjan varð síðan að veruleika fyrir frumkvæði, drifkraft og áræðni starfsfólks Reykjanesbæjar sem sá þörfina fyrir slíkt úrræði og vann að því að koma því á laggirnar.
Á því ári sem liðið er frá opnun hafa samkvæmt bráðabirgðatölum, á bilinu 50–60 börn og ungmenni nýtt sér viðtalsþjónustu Hlýjunnar og meira en helmingur þeirra hefur komið í fleiri en eitt viðtal. Þetta sýnir að úrræðið hefur náð til barna og ungmenna á skömmum tíma og að þörf er fyrir áframhaldandi þjónustu.
Í ljósi þeirra áskorana sem við höfum séð varðandi andlega líðan barna og ungmenna og þess ákalls sem komið hefur frá ungmennunum sjálfum er mikilvægt að standa vörð um þessa starfsemi.
Það er ekki nóg að koma góðum verkefnum af stað. Við þurfum líka að tryggja þeim rekstrargrundvöll til framtíðar.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð leggur áherslu á að Hlýjan hafi tryggar rekstrarforsendur og svigrúm til að þróast áfram í takt við aukna aðsókn og þarfir barna og ungmenna í Reykjanesbæ.”
7. Ungmennafélag Íslands - kynning á störfum svæðisfulltrúa
Petra Ruth Rúnarsdóttir og Sigurður Friðrik Gunnarsson, svæðisfulltrúar UMFÍ á Suðurnesjum, mættu á fundinn og fóru yfir það sem felst í störfum svæðisfulltrúa hjá Ungmennafélagi Íslands.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir áhugaverða og upplýsandi kynningu á störfum svæðisfulltrúa.
Ráðið fagnar því samstarfi sem unnið er að á svæðinu og telur mikilvægt að efla enn frekar samvinnu sveitarfélaga, íþróttahreyfingarinnar og annarra hagsmunaaðila með það að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu frístundastarfi.
8. Fundargerð stjórnsýsluhóps um framtíð íþrótta- og tómstundamála í Reykjanesbæ 9. október 2026
Fundargerð stjórnsýsluhóps um framtíð íþrótta- og tómstundamála í Reykjanesbæ frá 9. október 2026 lögð fram.
Díana Hilmarsdóttir (B) og Hámundur Örn Helgason (S) lögðu fram eftirfarandi bókun:
”Fulltrúar Samfylkingar og Framsóknar lýsa yfir áhyggjum af þeim hugmyndum sem fram koma í fundargerðinni um mögulega aðkomu Reita að fjármögnun íþróttamannvirkja í sveitarfélaginu. Áður en slíkt samstarf kemur til frekari ákvörðunar þarf að liggja fyrir ítarlegt mat á fjárhagslegum og rekstrarlegum áhrifum þess, mögulegum langtímaskuldbindingum sveitarfélagsins og samanburði við aðrar leiðir til fjármögnunar og uppbyggingar.
Óskað er eftir að eftirfarandi spurningar verði teknar upp í samningsviðræðum við Reiti og að skýr og ítarleg svör við þeim liggi fyrir áður en íþrótta-, tómstunda- og menningarráð, bæjarráð og loks bæjarstjórn taka afstöðu til mögulegs samstarfs.
1.Fjárhagslegar skuldbindingar: Myndu Reitir fjármagna framkvæmdir gegn langtímaleigusamningi og hver yrði heildarkostnaður Reykjanesbæjar yfir samningstímann?
2.Eignarhald og stjórn: Hver myndi eiga mannvirkin og hvernig yrði tryggt að sveitarfélagið hefði áfram áhrif á nýtingu þeirra?
3.Samanburður valkosta: Hefur verið metið hvort hagkvæmara sé fyrir Reykjanesbæ að eiga og fjármagna mannvirkin sjálfur?
Mikilvægt er að ákvarðanir um jafn umfangsmikla innviðauppbyggingu byggist á gagnsæjum forsendum, heildarhagsmunum sveitarfélagsins og ábyrgri meðferð almannafjár.”
9. Sólbrekka ehf. - beiðni um þróunarsamning
Sólbrekka ehf. óskar eftir þróunarsamningi um landsvæði við Seltjörn og í nágrenni hennar í þeim tilgangi að kanna fýsileika og undirbúa skipulag heildstæðs afþreyingar- og ferðaþjónustusvæðis.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð tekur jákvætt í erindið og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að senda þá umsögn til bæjarráðs.
Jafnframt hvetur ráðið til þess að sem fyrst verði boðað til sameiginlegs fundar með öllum hlutaðeigandi hagsmunaaðilum á svæðinu við Sólbrekku til að ræða verkefnið, þróun núverandi starfsemi þar og næstu skref.
Díana Hilmarsdóttir (B) og Hámundur Örn Helgason (S) lögðu fram eftirfarandi bókun:
„Fulltrúar Framsóknar og Samfylkingar telja mikilvægt að hugmyndir um nýja uppbyggingu íþrótta- og afþreyingaraðstöðu í Reykjanesbæ fái faglega og vandaða umfjöllun.
Við frekari skoðun á hugmyndum um uppbyggingu við Seltjörn þarf að líta til skipulagsmála, umhverfisáhrifa, aðgengis almennings og þeirra möguleika sem verkefnið kann að skapa fyrir íbúa og atvinnulíf.
Fulltrúarnir leggja áherslu á að áður en ákvarðanir eru teknar liggi skýrt fyrir hvaða réttindi og skuldbindingar hugsanlegur þróunarsamningur myndi fela í sér fyrir sveitarfélagið.“
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:00.