Dagskrá fundar
1. Kynning á starfsemi listasafns Reykjanesbæjar (2026010401)
Helga Þórsdóttir safnstjóri listasafns Reykjanesbæjar sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Hún kynnti starfsemi listasafnsins ásamt stefnu þess og helstu áherslum framundan.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir áhugaverða kynningu á safninu og starfsemi þess.
2. Menningarverðlaun Reykjanesbæjar 2026 (2026090326)
Súlan, menningarverðlaun Reykjanesbæjar, er veitt þeim sem með framlagi sínu hafa auðgað mannlíf og menningu samfélagsins. Í ár voru verðlaunin afhent í þrítugasta sinn við hátíðlega athöfn í Frumleikhúsinu þann 21. nóvember sl.
Súluna hlaut Davíð Örn Óskarsson fyrir fjölbreytt og mikilvægt framlag sitt til lista- og menningarlífs í Reykjanesbæ í nær þrjá áratugi.
Verðlaunagripurinn er silfursúla eftir listakonuna Elísabetu Ásberg og vísar til súlunnar í merki Reykjanesbæjar.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð óskar Davíð innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu og þakkar honum fyrir ómetanlegt framlag til menningarlífs bæjarins í gegnum árin. Ráðið fagnar jafnframt þeim merka áfanga að í þrjátíu ár hefur með afhendingu Súlunnar verið varpað ljósi á það öfluga og fjölbreytta menningarstarf sem unnið er í Reykjanesbæ.
3. Leikfélag Keflavíkur (2026040012)
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð óskar Leikfélagi Keflavíkur og öllum aðstandendum gamansýningarinnar Stelpuhelgi, sem frumsýnd var 16. október sl., innilega til hamingju með sýninguna.
Ráðið þakkar Leikfélagi Keflavíkur fyrir öflugt og metnaðarfullt leiklistarstarf og dýrmætt framlag félagsins til fjölbreytts og lifandi menningarlífs í Reykjanesbæ.
4. Jólahús og jólafyrirtæki Reykjanesbæjar 2026 (2026110341)
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð hvetur íbúa til að taka þátt í árlegum jólaleik Reykjanesbæjar og Húsasmiðjunnar með því að senda inn tilnefningar um jólahús og jólafyrirtæki Reykjanesbæjar 2026.
Með leiknum er ætlunin að vekja athygli á þeim fjölmörgu fallegu jólaskreytingum sem prýða bæinn og um leið veita þeim viðurkenningu sem leggja metnað í að skapa notalega jólastemningu í nærumhverfi sínu.
Ráðið hvetur íbúa til að njóta aðventunnar, fara í jólaleiðangur um bæinn og vera vakandi fyrir fallega skreyttum húsum og fyrirtækjum.
Tekið verður við tilnefningum á vef Reykjanesbæjar dagana 1.–15. desember.
5. Jóladagskrá Reykjanesbæjar (2026110343)
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð fagnar þeirri fjölbreyttu og metnaðarfullu dagskrá sem í boði er í Reykjanesbæ í aðdraganda jóla. Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að skapa fjölbreytt tækifæri fyrir íbúa á öllum aldri til samveru, menningarupplifunar og þátttöku í mannlífi bæjarins.
Ráðið þakkar starfsfólki, samstarfsaðilum og öðrum þeim sem koma að undirbúningi og framkvæmd dagskrárinnar fyrir þeirra framlag.
6. Þjóðaróperan í Reykjanesbæ (2026110344)
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð óskar Þjóðaróperunni, Norðurópi og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar til hamingju með glæsilegan viðburð, Undir sömu stjörnu, sem fram fór í Hljómahöll þann 1. nóvember sl.
Ráðið þakkar öllum aðstandendum og þátttakendum fyrir metnaðarfullan viðburð sem endurspeglar þann mikla kraft sem býr í tónlistarlífi Reykjanesbæjar. Ráðið fagnar þessu ánægjulega samstarfi og horfir til áframhaldandi samstarfs um eflingu óperulistar í sveitarfélaginu.
7. Fréttir af félagsmiðstöðvarstarfinu í Reykjanesbæ (2026110084)
Málinu er frestað til næsta fundar.
8. Kynning á fjárfestingum og viðhaldi ÍTM 2027 (2026110086)
Magnþór Breki Ragnarsson, verkefnastjóri viðhalds og nýframkvæmda, sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Hann kynnti fyrirhugaðar fjárfestingar og viðhald á fasteignum og mannvirkjum Reykjanesbæjar sem heyra undir íþrótta-, tómstunda- og menningarmál.
Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð þakkar fyrir góða kynningu.
9. Fjárhagsáætlun íþrótta- og tómstundamála 2027 (2026070036)
Hafþór Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, fór yfir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar íþrótta- og tómstundamála fyrir árið 2027 og gerði grein fyrir stöðu áætlunarvinnunnar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:50.