Dagskrá fundar
1. Sameining dagdvala (2024050055)
Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, kynnti tillögu að innanhússkipulagi sameinaðra dagdvala á jarðhæð þjónustumiðstöðvar að Nesvöllum.
2. Gott að eldast (2023030494)
Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, fór yfir mælaborð verkefnisins Gott að eldast, en þar má finna tölulegar upplýsingar er varðar ýmsa þjónustu fyrir eldra fólk, s.s. heimahjúkrun, félagslega heimaþjónustu, dagdvalir, heilsugæslu, hjúkrunarrými og fleira.
Öldungaráð fagnar jákvæðri umfjöllun um Reykjanesbæ í niðurstöðum verkefnisins Gott að eldast, sem endurspeglar metnað og góðan árangur bæjarins í þessum málaflokki.
3. Ofbeldi gegn eldra fólki (2025100141)
Öldungaráð Reykjanesbæjar, öldrunar- og stuðningsþjónusta Reykjanesbæjar og Félag eldri borgara á Suðurnesjum stóðu fyrir fræðslu um ofbeldi gagnvart eldra fólki í þjónustumiðstöðinni að Nesvöllum 22. janúar sl. Aðilar frá Neyðarlínunni, Lögreglunni á Suðurnesjum, Sýslumanninum á Suðurnesjum og Suðurhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis mættu og fluttu erindi er varðar málefnið.
Öldungaráð þakkar öllum þeim sem komu að þessum fróðlega og upplýsandi viðburði fyrir framsögn til fyrirmyndar og vel framkvæmda fræðslu.
Með því að smella hér má skoða grein um viðburðinn á vef Víkurfrétta
4. Heimsendur matur og mötuneyti á Nesvöllum - verðskrá (2023070388)
Rætt var um verð á heimsendum mat og í mötuneyti þjónustumiðstöðvar á Nesvöllum m.t.t. gæða, niðurgreiðslna og í samanburði við önnur sveitarfélög.
5. Kjaramál eldra fólks, fasteignagjöld og húsnæðisstuðningur - erindi frá FEBS (2026020317)
Kristján G. Gunnarsson, formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum, lagði fram erindi varðandi kjaramál eldra fólks og samræmingu á milli sveitarfélaga varðandi fasteignagjöld og húsnæðisstuðning.
Öldungaráð óskar eftir því að bæjarstjórn taki erindið fyrir og hvetur hana til þess að vekja athygli á því við félags- og húsnæðisráðuneytið að samræma reglur um sérstakan húsnæðisstuðning fyrir eldri borgara. Auka þarf stuðning við tekjulægra eldra fólk sem býr í leiguhúsnæði. Kristján G. Gunnarsson lagði fram ítarlegar upplýsingar um kjaramál eldri borgara með samanburði við kjör öryrkja og lægstu taxta verkafólks. Vel var tekið í málið af öldungaráði og nefndarmenn hyggjast koma upplýsingum á framfæri.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:02.