Dagskrá fundar
1. Öryggishnappar - kynning (2026040407)
Mortan Holm Gíslason og Ómar Örn Jónsson frá Securitas mættu á fundinn og fóru yfir helstu upplýsingar um öryggishnappa og öryggiskerfi, m.a. nýjungar eins og hnappa með gps staðsetningarbúnaði sem hægt er að nota utandyra.
2. Heilsuvernd eldra fólks (2026040408)
Rósa Víkingsdóttir frá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja kynnti heilsuvernd eldra fólks.
3. Heimsendur matur (2023070388)
Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, fór yfir upplýsingar um niðurgreiðslu heimsends matar hjá öðrum sveitarfélögum. Fram kom að niðurgreiðsla máltíða er mjög lág hjá Reykjanesbæ í samanburði við önnur sveitarfélög.
Öldungaráð lýsir yfir óánægju með lága niðurgreiðslu heimsends matar hjá Reykjanesbæ og skorar á bæjarstjórn að endurskoða niðurgreiðsluna.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:21.