Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

27. fundur öldungaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 9. september 2026 kl. 14.00.

Fundarstaður: Nesvellir

Viðstaddir: Birna Ósk Óskarsdóttir varamaður, Brynja Þóra Valtýsdóttir- varamaður, Hafdís Lilja Guðlaugsdóttir varamaður, Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður, Kristján Gunnarsson aðalmaður, Rúnar V. Arnarson formaður nefndar, Sigrún Þorsteinsdóttir aðalmaður

Að auki sátu fundinn Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Gunnar Jón Ólafsson boðaði forföll og sat Birna Ósk Óskarsdóttir fundinn í hans stað.

Jón Ólafur Jónsson boðaði forföll og sat Brynja Þóra Valtýsdóttir fundinn í hans stað.

Rósa Víkingsdóttir boðaði forföll og sat Hafdís Lilja Guðlaugsdóttir fundinn í hennar stað.

Dagskrá fundar

1. Öldungaráð Reykjanesbæjar - hlutverk og skipting embætta (2026060289)

Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu og Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs fóru yfir hlutverk öldungaráðs.

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 2. júní 2026 voru eftirtaldir kjörnir aðal- og varafulltrúar í öldungaráð kjörtímabilið 2026-2030:

Aðalfulltrúar: Rúnar Vífill Arnarson (D), Sigrún Þorsteinsdóttir (M) og Gunnar Jón Ólafsson (B).

Varafulltrúar: Karvel Granz (M), Ólafur Bjarnason (D) og Birna Ósk Óskarsdóttir (B).

Bæjarstjórn kaus Rúnar Vífil Arnarson sem formann öldungaráðs.

Fulltrúar Félags eldri borgara:

Aðalfulltrúar: Kristján Gunnar Gunnarsson, Jón Ólafur Jónsson, Ingibjörg Magnúsdóttir

Varafulltrúar: Kristján B. Gíslason, Brynja Þóra Valtýsdóttir

Fulltrúar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja:

Aðalfulltrúi: Rósa Víkingsdóttir

Varafulltrúi: Hafdís Lilja Guðlaugsdóttir

Öldungaráð kaus í eftirtalin embætti:

Kristján Gunnar Gunnarsson var kjörinn varaformaður öldungaráðs.

Sigrún Þorsteinsdóttir var kjörin ritari öldungaráðs.

2. Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308)

Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Markmið siðareglna er að skilgreina það hátterni sem ætlast er til að kjörnir fulltrúar sýni af sér við störf sín fyrir hönd Reykjanesbæjar. Með undirritun sinni staðfesta bæjarfulltrúar og aðrir sem kjörnir eru til setu í ráðum og nefndum fyrir hönd Reykjanesbæjar að þau tileinki sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi við störf sín.

3. Stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga - endurskoðun (2026070062)

Lagt fram erindi frá innviðaráðuneytinu vegna vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga, þar sem óskað er eftir svörum fyrir 21. september nk. frá sveitarfélögum sem ætlað er að draga fram heildarmynd um stöðu, áskoranir og tækifæri sveitarstjórnarstigsins.

Öldungaráð felur Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs að vinna að svörum er varða málefni eldra fólks í samræmi við umræður á fundinum.

4. Erindisbréf öldungaráðs (2026060120)

Erindisbréf öldungaráðs Reykjanesbæjar lagt fram.

Öldungaráð felur Heru Ósk Einarsdóttur sviðsstjóra velferðarsviðs að senda athugasemdir ráðsins við erindisbréfið til forsetanefndar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:22.