Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

276. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 3. júlí 2023 kl. 16.00.

Fundarstaður: Haldinn í fundarsal Reykjaneshafnar að Víkurbraut 11,230 Reykjanesbæ.

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Kristján Jóhannsson-, Sigurður Guðjónsson, Úlfar Guðmundsson

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Dagskrá fundar

1. Atvinnu- og hafnarráð

Formaður kynnti að á 626. fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 20. júní sl. var tekin fyrir endurskoðuð samþykkt um stjórn Reykjanesbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar og hún samþykkt. Í 57. grein samþykktarinnar 8. tölulið kom fram að stjórn Reykjaneshafnar yrði framvegis atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar. Einnig kynnti hann erindisbréf ráðsins sem samþykkt var á sama fundi bæjarstjórnar. 

Atvinnu- og hafnarráð felur formanni og sviðsstjóra að fylgja eftir endurskoðun á samþykktum fyrir Reykjaneshöfn í samræmi við ofangreindar breytingar. 

2. Hafnarmannvirki Reykjaneshafnar

Bréf frá Reykjanesbæ, dags. 21.06.23, með bókun umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar varðandi deiliskipulag Njarðvíkurhafnar – suðursvæði. Þar kemur fram að ráðið telur skipulagsgögnin fullnægjandi og samþykkt sé að deiliskipulagið verði sent Skipulagsstofnun til endanlegrar afgreiðslu. 

3. Atvinnuþróunarstefna

Sviðsstjóri kynnti hugmynd að vinnustofu í tengslum við vinnslu atvinnustefnu Reykjanesbæjar.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að sviðsstjóri vinni áfram í málinu og komi með endanlegar tillögur á næsta fundi.

4. Skemmtiferðarskip

Sviðsstjóri sagði frá fundi sem haldinn var föstudaginn 30. júní með fulltrúum Grindavíkurhafnar, Sandgerðishafnar og Markaðsstofu Reykjaness í framhaldi af erindi Reykjaneshafnar til þessara aðila um að kanna möguleika á sameiginlegri markaðssetningu hafna á Reykjanesi gagnvart skemmtiferðaskipum. 

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með framvindu málsins og felur sviðsstjóra að vinna það áfram. 

5. Aalborg Portland Íslandi

Fyrirliggjandi á fundinum eru drög að samkomulagi milli Reykjaneshafnar og Aalborg Portland Íslandi varðandi uppsetningu og afnot af bílavog við aðkomu að Norðurbakka Helguvíkurhafnar.  

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi samningsdrög og felur sviðsstjóra að undirrita þau þegar endanleg staðsetning bílavogar liggur fyrir.

6. Fitjabakki 8 - lóðarleigusamningur

Unnar Steinn Bjarndal bæjarlögmaður mætti á fundinn undir þessum lið. Farið var yfir drög að lóðarleigusamningi milli Reykjaneshafnar og Lauga ehf. um lóðina Fitjabakka 8.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi samning og felur sviðsstjóra að undirrita hann.

7. Stakksbraut - lóðir upp af Norðurbakka Helguvíkurhafnar

Áhugi er kominn fram um að hefja uppbyggingu nýrra hafnarmannvirkja í Helguvíkurhöfn. Í tengslum við þær hugmyndir getur þurft að breyta og aðlaga lóðarmörk við lóðir á Stakksbraut sem liggja að hafnarsvæðinu. 

Atvinnu- og hafnarráð felur hafnarstjóra að opna viðræður við skipulagsyfirvöld varðandi þá möguleika sem geta verið í boði.

8. Norðurál Helguvík ehf.

Farið var yfir stöðu mála er varða þrotabúið.

9. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs

Sviðsstjóri fór yfir rekstrarstöðu sviðsins fyrstu fimm mánuði ársins.

10. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Sviðsstjóri fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

11. Suðurnesjalína 2

Á fundi sveitarstjórnar sveitarfélagsins Voga þann 30. júní sl. var samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 og í framhaldi var undirritað samkomulag milli sveitarfélagsins og Landsnets um þá framkvæmd. Þar með hafa öll sveitarfélög sem koma að lagningu Suðurnesjalínu 2 veitt framkvæmdaleyfi sitt og ekkert því til fyrirstöðu að framkvæmdin hefjist.

Atvinnu- og hafnarráð fagnar því að ekkert hamlar lengur að Suðurnesjalína 2 verði reist til að tryggja orkuöryggi á Suðurnesjum. Í samskiptum fulltrúa atvinnumála í Reykjanesbæ við hina ýmsu aðila sem horfa til uppbyggingar í sveitarfélaginu hafa komið fram áhyggjur þeirra af því að nægjanleg orka sé ekki til staðar á svæðinu fyrir viðkomandi starfsemi. Nú hefur þessum óvissuþætti verið eytt sem skapar sóknarfæri og góðar undirstöður fyrir samfélagið til framtíðar.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15.