Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

277. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 24. ágúst 2023 kl. 16.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðalmaður, Hjörtur Magnús Guðbjartsson formaður nefndar, Kristján Jóhannsson- aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður, Úlfar Guðmundsson aðalmaður

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Dagskrá fundar

1. Grófin 2 - þróunarreitur

Gunnar K. Ottósson skipulagsfulltrúi Reykjanesbæjar mætti á fundinn undir þessum lið. Fór hann yfir drög að deiliskipulagi í Grófinni sem unnið er af Reykjavík Investment ehf. í samræmi við þróunarsamning milli fyrirtækisins og Reykjanesbæjar.

Atvinnu- og hafnarráð þakkar góða kynningu og lýsir ánægju sinni með framvindu málsins. Ráðið minnir á að gæta þarf að athafnasvæði hafnarinnar við smábátahöfnina í Gróf við hönnun svæðisins og endanlega útfærslu þess eins og fram kemur í samkomulagi hafnarinnar og Reykjanesbæjar frá 1. desember sl.

2. Fjárhagsáætlun ársins 2024

Sviðsstjóri kynnti stöðu á vinnslu fjárhagsáætlunar atvinnu- og hafnarsviðs fyrir árið 2024.

3. Atvinnuþróunarstefna

Farið var yfir hugmynd ráðgjafafyrirtækisins Rata um vinnustofu vegna vinnu við atvinnuþróunarstefnu Reykjanesbæjar. 

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir framkomna hugmynd að vinnustofu sem áætlað er að halda 4. október nk. og felur sviðsstjóra að ganga frá samningi við ráðgjafafyrirtækið Rata um framkvæmdina.

4. Samþykkt Reykjaneshafnar

Núverandi samþykkt Reykjaneshafnar er frá árinu 2005 og hefur ýmislegt breyst í umhverfi hafnarinnar frá þeim tíma. Á síðasta fundi atvinnu- og hafnarráðs var formanni og sviðsstjóra falið að fara yfir samþykktina og leggja til breytingar í samræmi við stöðu mála í dag. Farið var yfir þær tillögur sem liggja fyrir.

Atvinnu- og hafnarráð telur fyrirliggjandi tillögur til bóta og felur formanni og sviðsstjóra að koma þeim á framfæri við forsætisnefnd Reykjanesbæjar með ósk um endurskoðun á samþykkt Reykjaneshafnar frá árinu 2005.

5. Njarðvíkurhöfn - dýpkun hafnar

Samþykkt liggur fyrir á nýju deiliskipulagi fyrir Njarðvíkurhöfn vegna fyrirhugaðra framkvæmda á hafnarsvæðinu í Njarðvík og hefur deiliskipulagið farið í auglýsingu í B-tíðindum Stjórnartíðinda. 

Atvinnu- og hafnarráð felur sviðsstjóra að undirbúa fyrsta áfanga framkvæmda í Njarðvíkurhöfn með gerð útboðsgagna vegna dýpkunar og leggja fyrir næsta fund ráðsins.

6. Keflavíkurhöfn - aðstöðuhús

Farið var yfir hugmyndir að endurbótum á aðstöðuhúsi hafnarinnar við Keflavíkurhöfn svo það megi betur þjóna viðskiptavinum hafnarinnar í framtíðinni.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir þá útfærslu sem farið var yfir á fundinum.

7. Hafnasamband Íslands - fundargerðir stjórnar 13. júní og 18. ágúst 2023

Fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands nr. 454 og 455 lagðar fram til kynningar.

8. Skemmtiferðaskip

Fréttabréf Cruise Iceland frá 22. ágúst 2023 og skýrsla Cruise Europe vegna fyrstu sex mánaða ársins 2023 lögð fram til kynningar. Farið yfir undirbúning vegna ráðstefnunnar Seatrade Europe sem verður í Hamborg dagana 6.-8. september nk. en fulltrúi Reykjaneshafnar mun sækja ráðstefnuna.

9. Stakksbraut 15 - stækkun lóðar

Farið yfir tillögu að breytingum á lóðinni Stakksbraut 15 við hafnarsvæði að Norðurbakka í Helguvíkurhöfn með hliðsjón af þeim hafnarmannvirkjum sem þar eru fyrirhuguð. 

Atvinnu- og hafnarráð felur hafnarstjóra að óska eftir því við skipulagsyfirvöld Reykjanesbæjar að stærðar- og lóðarmörkum lóðarinnar Stakksbrautar 15 verði breytt í samræmi við framkomna tillögu.

10. Norðurál Helguvík ehf.

Farið var yfir stöðu mála er varða þrotabúið.

11. Seltjörn

Nokkrir aðilar hafa unnið að því að að skapa fjölskylduvænt útivistarsvæði við Seltjörn sem m.a. felst í aðstöðu til stangveiða úr vatninu. Viðkomandi hafa leitað til Reykjaneshafnar um lán á tveimur flotbryggjum í eigu hafnarinnar til að skapa gott aðgengi að vatninu. 

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með viðkomandi uppbyggingu og samþykkir viðkomandi beiðni enda sé hún Reykjaneshöfn að kostnaðarlausu. Ráðið felur sviðsstjóra að ganga frá skriflegu samkomulagi um lán á viðkomandi bryggjum í samræmi við þær forsendur sem fram komu á fundinum. 

12. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs

Sviðsstjóri fór yfir rekstrarstöðu sviðsins eftir fyrstu sex mánuði ársins. Einnig var farið yfir samanburðartölur úr einstökum þjónustuþáttum.

13. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Sviðsstjóri fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00.