Dagskrá fundar
1. Fjárhagsáætlun 2024
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, kynnti stöðu á vinnslu fjárhagsáætlunar atvinnu- og hafnarsviðs fyrir árið 2024.
2. Atvinnustefna
Farið var yfir stöðuna í undirbúningi að vinnustofu sem verður 4. október nk. vegna mótunar atvinnustefnu Reykjanesbæjar.
3. Samráðsnefnd um þróun hafnasvæða
Fulltrúar ráðsins í samráðsnefndinni fóru yfir ýmis mál sem þar eru til umfjöllunar.
4. Njarðvíkurhöfn - dýpkun hafnar
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðuna við vinnu útboðsgagna vegna framkvæmdarinnar. Stefnt er að því að leggja útboðsgögnin fyrir næsta fund ráðsins.
5. Helguvíkurhöfn – sjóvörn
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir skemmdir sem fram hafa komið á sjóvörn í Helguvíkurhöfn. Verið er að meta umfang þeirra og kostnað við endurbætur.
6. Samkeppniseftirlitið – álit nr. 1/2023
Samkeppniseftirlitið hefur birt álit um samkeppnishindranir á flutningamarkaði og beinir því til hagaðila að ráðist verði í aðgerðir til að draga úr samkeppnishindrunum á þeim markaði en Reykjaneshöfn eins og aðrar hafnir landsins telst til hagaðila.
Atvinnu- og hafnarráð tekur undir álit samkeppniseftirlitsins og þær úrbætur sem þar eru lagðar til. Jafnræði í viðskiptum er forsenda heilbrigðs viðskiptaumhverfis og tryggir hagkvæmni sem er öllum til góða.
7. Skemmtiferðaskip
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, sótti ráðstefnuna Seatrade Europe 2023 sem haldin var í Hamborg dagana 6.-8. september sl. Fór hann yfir það helsta sem þar kom fram.
8. Stakksbraut 15 - stækkun lóðar
Bréf Reykjanesbæjar, dags. 07.09.23, þar sem tilkynnt er að erindi Reykjaneshafnar um breytingar á lóðarmörkum lóðarinnar Stakksbraut 15 væri samþykkt.
10. Fitjabraut 5 - breyting á nýtingarhlutfalli
Tölvupóstur, dags. 20.09.23, frá Reykjanesbæ þar sem óskað er afstöðu Reykjaneshafnar sem landeiganda til breytingar á nýtingarhlutfalli lóðarinnar Fitjabraut 5 til stækkunar úr 0,38 í 0,43.
Atvinnu- og hafnarráð f.h. Reykjaneshafnar gerir ekki athugasemd við viðkomandi stækkun.
11. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs
Sviðsstjóri fór yfir mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs.
12. Upplýsingagjöf sviðsstjóra
Sviðsstjóri fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00.