Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

282. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 18. janúar 2024 kl. 16.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Kristján Jóhannsson-, Sigurður Guðjónsson, Úlfar Guðmundsson

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Dagskrá fundar

1. Ársreikningur Reykjaneshafnar 2023

Farið var yfir stöðuna á endurskoðun ársreiknings Reykjaneshafnar vegna ársins 2023.

2. Hafnasamband Íslands

Fundargerð 459. fundar Hafnasambands Íslands frá 08.12.23 lögð fram.  

3. Njarðvíkurhöfn – dýpkun hafnar

Þriðjudaginn 9. janúar sl. rann út frestur til að skila inn tilboðum í verkið „Njarðvíkurhöfn Suðursvæði, dýpkun hafnar 2024“. Útboðið var opið og auglýst á heimasíðu Vegagerðarinnar og útboðsvef um opinber útboð, www.utbodsvefur.is. Eitt tilboð barst í verkið sem var tæplega 205% yfir kostnaðaráætlun. Vegagerðin sem er ráðgjafi Reykjaneshafnar við þessa framkvæmd leggur til að tilboðinu sé hafnað. 

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að hafna ofangreindu tilboði. Atvinnu- og hafnarráð felur sviðsstjóra að fara yfir forsendur útboðsins og koma með tillögu að framhaldi þess á næsta fundi ráðsins.

Með því að smella hér má skoða útboðsvef

4. Atvinnustefna Reykjanesbæjar

Farið var yfir stöðuna á vinnu við atvinnustefnu Reykjanesbæjar. 

5. Samráðsnefnd um þróun hafnarsvæða

Farið var yfir þau mál sem til umfjöllunar eru hjá samráðsnefnd um þróun hafnarsvæða.

6. Skemmtiferðaskip

Farið yfir könnun um viðhorf íbúa til skemmtiferðaskipa og farþega þeirra.

7. Aalborg Portland Ísland

Lögð fram drög að samkomulag milli Reykjaneshafnar og Aalborg Portland Ísland ehf. varðandi fyrirkomulag á greiðslu vörugjalda á innfluttu sementi um Helguvíkurhöfn árið 2024. 

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samkomulagi og felur Halldóri K Hermannssyni sviðsstjóra að undirrita það.

8. Norðurál Helguvík ehf.

Farið var yfir stöðu mála er varða þrotabúið.

9. Tryggingar Reykjaneshafnar

Reykjaneshöfn er með samning um tryggingar við TM tryggingar sem gerður var í framhaldi af útboði árið 2020. Farið var yfir þróun iðgjalda frá því að samningurinn tók gildi árið 2021.

10. Afmælissjóður Reykjanesbæjar

Bréf Reykjanesbæjar, dags. 08.01.2024, þar sem kynnt er stofnun afmælissjóðs Reykjanesbæjar í tilefni af því að þann 11. júní nk. eru 30 ár frá því að Reykjanesbær varð til með samruna sveitarfélaganna Hafnahrepps, Keflavíkurbæjar og Njarðvíkurbæjar. Sjóðnum er ætlað að veita styrki til verkefna og/eða viðburða sem hafa það að markmiði að minnast þessara tímamóta. Bæjarráð Reykjanesbæjar hvetur alla áhugasama til þess að sækja um styrki úr sjóðnum.

Atvinnu- og hafnarráð tekur undir hvatningu bæjarráðs.

Rafræn umsókn um styrk úr afmælissjóði Reykjanesbæjar

11. Starfsmannamál Reykjaneshafnar

Fyrsta janúar 2023 tók gildi nýtt starfsfyrirkomulag hjá Reykjaneshöfn sem sett var á til reynslu í eitt ár. Halldór K Hermannsson sviðsstjóri fór yfir hvernig til hefði tekist á liðnu ári og lagið til að viðkomandi fyrirkomulag yrði áfram.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir viðkomandi fyrirkomulag.

12. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs

Halldór K. Hermannsson sviðsstjóri fór yfir mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs.

13. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson sviðsstjóri fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:50.