Dagskrá fundar
1. Ársreikningur Reykjaneshafnar 2023
Á fundinn mætti Jón H. Sigurðsson endurskoðandi frá PricewaterhouseCoopers ehf., endurskoðunarfyrirtæki Reykjaneshafnar. Ársreikningur Reykjaneshafnar vegna starfsársins 2023 var lagður fram ásamt endurskoðunarskýrslu endurskoðenda. Helstu niðurstöður rekstrarreiknings eru eftirfarandi:
Rekstrartekjur.......................................... kr. 342.601.947.-
Rekstrargjöld........................................... kr. 197.306.237.-
Hagnaður fyrir afskriftir og vexti............. kr. 145.295.710.-
Afskriftir mannvirkja og annarra eigna.... kr. -44.697.732.-
Fjármagnsliðir.......................................... kr. -89.742.262.-
Rekstrarhagnaður ársins.......................... kr. 10.855.716.-
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir ársreikning Reykjaneshafnar og vísar honum til samþykktar á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
2. Njarðvíkurhöfn – dýpkun hafnar
Lögð fram fundargerð með bjóðanda í verkið „Njarðvíkurhöfn suðursvæði, dýpkun hafnar 2024“ ásamt undirrituðum verksamningi í verkið.
3. Helguvíkurhöfn - suðurbakki
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu mála varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á suðurbakka Helguvíkurhafnar.
4. Skipulagsmál í Helguvík
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir hugmyndir skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar varðandi breytingar á iðnaðarsvæðinu í Helguvík í aðalskipulagi Reykjanesbæjar.
Atvinnu- og hafnarráð felur sviðsstjóra að koma á framfæri við skipulagsyfirvöld þeirri umræðu sem fram fór á fundinum.
5. Solstice Materials ehf. – drög að samkomulagi
Lögð fram drög að samkomulagi við Solstice Materials ehf. varðandi aðstöðu og gjaldtöku í tengslum við fyrirhugaða starfsemi þeirra á hafnarsvæði Helguvíkurhafnar.
Atvinnu- og hafnarráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.
6. Atvinnustefna Reykjanesbæjar
Drög að atvinnustefnu Reykjanesbæjar 2024-2034 eru í umsagnarferli hjá nefndum og ráðum Reykjanesbæjar en óskað hefur verið eftir því að viðkomandi skili umsögnum fyrir 1. maí nk. Farið var yfir þær umsagnir sem þegar hafa borist.
7. Cruise Iceland - aðalfundur
Fundargerð aðalfundar Cruise Iceland frá 3. apríl sl. var lögð fram ásamt endurskoðuðum samþykktum félagsins.
8. Verk og vit
Sýningin „Verk og vit“ hófst í dag, 18. apríl í íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal og stendur til loka dags þann 21. apríl nk. Reykjanesbær ásamt Suðurnesjabæ, KADECO og ISAVIA standa saman að sýningarbás á sýningunni þar sem lögð er áhersla á þau uppbyggingar- og atvinnutækifæri sem eru í boði á Suðurnesjum undir yfirskriftinni „Suðurnes – tenging til allra átta“.
9. Styrktarsjóður EBÍ
Bréf, dags. 21.03.24, frá Brunabótafélagi Íslands þar sem bent er á að opið er fyrir umsóknir í Styrktarsjóð EBÍ.
10. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir mælaborð sviðsins.
11. Upplýsingagjöf sviðsstjóra
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:35.