Dagskrá fundar
1. Breytingar á skipan fulltrúa í kjörnum ráðum
Lagður fram tölvupóstur frá Reykjanesbæ, dags. 13. maí 2024, þar sem fram kemur að á fundi bæjarstjórnar þann 7. maí hafi verið samþykktar eftirfarandi breytingar á fulltrúum í atvinnu- og hafnarráði:
Úlfar Guðmundsson (U) fer út sem aðalmaður í atvinnu- og hafnarráði, Jón Már Sverrisson (U) tekur sæti hans.
Jón Már Sverrisson (U) fer út sem varamaður í atvinnu- og hafnarráði, Gunnar Felix Rúnarsson (U) tekur sæti hans.
2. HB 64 – kynning
Bergný Jóna Sævarsdóttir sjálfbærnistjóri og Elín Ragnheiður Guðnadóttir yfirverkefnastjóri frá Kadeco mættu á fundinn og kynntu verkefnið.
3. Njarðvíkurhöfn - dýpkun hafnar
Lögð fram verkfundargerð nr. 2, dags. 14. maí 2024, vegna verksins Njarðvíkurhöfn Suðursvæði, dýpkun hafnar 2024.
4. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu mála varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á suðurbakka Helguvíkurhafnar.
5. Skipulagsmál í Helguvík
Lögð fram tillaga að breytingu í aðalskipulagi Reykjanesbæjar á afmörkun hafnarsvæðis í Helguvík.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir viðkomandi breytingu á afmörkun hafnarsvæðisins í Helguvík.
6. Skipulagsmál í Gróf
Lögð fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Grófinni, en viðkomandi breyting er m.a. á athafnasvæði Reykjaneshafnar við smábátahöfnina í Grófinni.
Atvinnu- og hafnarráð gerir ekki athugasemd við viðkomandi deiliskipulagsbreytingu. Atvinnu- og hafnarráð vill minna á að til þess að fyrirhuguð uppbygging á grundvelli þessarar breytingar gangi eftir þarf að uppfylla samkomulag hafnarinnar við Reykjanesbæ frá 1. desember 2022 um lóðina Grófina 2A.
7. Solstice Materials ehf. - drög að samkomulagi
Lögð fram drög að samkomulagi við Solstice Materials ehf. varðandi aðstöðu og gjaldtöku í tengslum við fyrirhugaða starfsemi þeirra á hafnarsvæði Helguvíkurhafnar.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra að undirrita þau.
8. Atvinnustefna Reykjanesbæjar
Drög að atvinnustefnu Reykjanesbæjar 2024-2034 eru í umsagnarferli hjá ráðum Reykjanesbæjar en óskað var eftir því að viðkomandi skiluðu sínum umsögnum fyrir 1. maí sl.
Atvinnu- og hafnarráð þakkar þeim sem þegar hafa skilað umsögnum en ekki hafa borist umsagnir frá öllum ráðum. Atvinnu- og hafnarráð ítrekar ósk sína um umsögn við þá aðila sem ekki hafa skilað umsögn og felur Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra að koma þeim óskum á framfæri.
9. Lóðarleigusamningur - skapalón
Lögð fram drög að skapalóni fyrir lóðarleigusamninga Reykjaneshafnar.
Atvinnu- og hafnarráð felur Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra að vinna málið áfram á grundvelli þeirrar umræðu sem fram fór á fundinum.
10. Skemmtiferðaskip
Dagana 11.-12. september nk. fer ráðstefnan Seatrade Cruise Med fram í Málaga á Spáni þar sem skipafélög skemmtiferðaskipa og hagaðilar koma saman til skrafs og ráðagerða. Cruise Iceland verður með sölubás á ráðstefnunni.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að fulltrúi Reykjaneshafnar sæki ráðstefnuna og taki þátt í sölubás Cruise Iceland til kynningar á Reykjaneshöfn sem þjónustuhöfn við smærri skemmtiferðaskip.
11. Framkvæmdasjóður ferðamannastaða
Bréf frá Ferðamálastofu, dags. 8. maí 2024, þar sem umsókn Reykjaneshafnar um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar útsýnispalls á Hafnahöfn er synjað.
12. Hafnasamband Íslands
Ársreikningur Hafnasambands Íslands vegna rekstrarársins 2023 lagður fram.
Atvinnu- og hafnarráð gerir ekki athugasemd við ársreikninginn.
13. Samráðsnefnd um þróun hafnarsvæða
Fundargerð 13. fundar samráðsnefndar um þróun hafnarsvæða frá 2. maí 2024 lögð fram.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að óska eftir samstarfi við umhverfis- og framkvæmdasvið Reykanesbæjar varðandi mótun þróunaráætlunar á svæðinu í kringum Njarðvíkurhöfn.
14. Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi - SAR
Aðalfundur SAR – samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi fór fram 17. maí sl. Halldór K. Hermannsson sviðsstjóri sótti fundinn og fór yfir það helsta sem þar kom fram.
15. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir mælaborð sviðsins.
16. Upplýsingagjöf sviðsstjóra
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:35.