Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

288. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 22. ágúst 2024 kl. 16.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson, Hjörtur Magnús Guðbjartsson, Jón Már Sverrisson, Kristján Jóhannsson-, Sigurður Guðjónsson

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Dagskrá fundar

1. Fjármál Reykjaneshafnar

Farið yfir óendurskoðað sex mánaða rekstraruppgjör Reykjaneshafnar.  

2. Fjárhagsáætlun 2025

Farið yfir stöðu á vinnslu fjárhagsáætlunar atvinnu- og hafnarsviðs fyrir árið 2025.

3. Njarðvíkurhöfn - dýpkun hafnar

Verkfundargerðir nr. 5, nr. 6 og nr. 7, dags. 3. júlí, 10. júlí og 20. ágúst 2024, vegna verksins „Njarðvíkurhöfn Suðursvæði, dýpkun hafnar 2024“ lagðar fram.

4. Reykjaneshöfn - uppsáturssvæði

Nýtt deiliskipulag upp af smábátahöfninni í Gróf gerir ráð fyrir að uppsáturssvæði Reykjaneshafnar færist á nýjan stað. Lagt fram bréf frá Reykjanesbæ, dags. 15. júlí 2024, 

þar sem fram kemur að samþykkt er breyting á deilikskipulagi iðnaðarsvæðisins í Helguvík í tengslum við þessa breytingu. 

5. Skemmtiferðaskip

Lagt fram minnisblað frá Reykjaneshöfn og Markaðsstofu Reykjaness vegn komu skemmtiferðaskipsins ms. Azamara Quest til Reykjaneshafnar þann 29. júní sl. 

6. Atvinnustefna Reykjanesbæjar

Lagt fram yfirlit yfir athugasemdir og ábendingar sem borist hafa frá umsagnaraðilum um drög að atvinnustefnu Reykjanesbæjar. Fari yfir næstu skref vegna áframhaldandi vinnu 

við drögin. 

7. Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands 15. ágúst 2024

Fundargerðir 464. fundar Hafnasambands Íslands frá 15.08.24. 

8. Hafnasambandsþing 2024

Hafnasambandsþing 2024 verður haldið á Akureyri dagana 24. og 25. október nk. og munu fulltrúar Reykjaneshafnar sækja þingið.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að bjóða fram á komandi Hafnasambandsþingi að halda næsta Hafnasambandsþing sem verður 2026 og leita samstarfs við aðrar hafnir á Suðurnesjum 

um framkvæmdina. 

9. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir mælaborð sviðsins.

10. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins. 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15.