Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

290. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 17. október 2024 kl. 16.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðalmaður, Hjörtur Magnús Guðbjartsson formaður nefndar, Jón Már Sverrisson aðalmaður, Kristján Jóhannsson- aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Dagskrá fundar

1. Fjárhagsáætlun 2025

Farið yfir stöðu á vinnslu fjárhagsáætlunar atvinnu- og hafnarsviðs fyrir árið 2025.

2. Njarðvíkurhöfn - dýpkun hafnar

Farið yfir stöðuna á framkvæmdum við Njarðvíkurhöfn.

3. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki

Farið yfir stöðuna varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á Suðurbakka Helguvíkurhafnar.

4. Skemmtiferðaskip

Farið yfir ýmsar hugmyndir varðandi markaðssetningu á Keflavíkurhöfn sem þjónustuhöfn smærri skemmtiferðaskipa.

5. Atvinnustefna Reykjanesbæjar

Farið var yfir stöðuna í vinnslu á atvinnustefnu Reykjanesbæjar.

6. Hafnasambandsþing 2024

Dagskrá Hafnasambandsþings 2024 sem fram fer á Akureyri 24. og 25. október nk. lögð fram.

7. HB 64 - grænn vistgarður

Farið yfir stöðuna í verkefninu HB 64 – grænn vistiðngarður.

8. Mannréttindastefna Reykjanesbæjar - beiðni um umsögn

Bæjarráð óskar eftir umsögn um drög að mannréttindastefnu Reykjanesbæjar.

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með viðkomandi drög og telur þau skilgreina vel þá áhersluþætti sem gæta þarf að til að tryggja jafna aðstöðu allra íbúa Reykjanesbæjar í bæjarfélaginu. Stefnan byggir m.a. á alþjóðlegum sáttmálum, s.s. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og Samningi um réttindi fatlaðs fólks.

9. Stefna um starfsmannaíbúðir á Suðurnesjum - beiðni um umsögn

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar óskar eftir umsögn um drög að stefnu um starfsmannaíbúðir á Suðurnesjum, sem er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar.

Atvinnu- og hafnarráð fór yfir drög að Stefnu um starfsmannaíbúðir á Suðurnesjum og telur að framsetning stefnunnar veki upp ýmsar spurningar varðandi tilgang hennar. Atvinnu- og hafnarráð óskar eftir nánari kynningu á stefnunni frá umhverfis- og skipulagsráði áður en ráðið gefur umsögn um drögin, enda hefur samþykkt hennar áhrif á aðstöðu atvinnulífsins á svæðinu. Atvinnu- og hafnarráð felur sviðsstjóra að fylgja málinu eftir.

10. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir mælaborð sviðsins.

11. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15.