Dagskrá fundar
1. Fjárhagsáætlun 2025
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir drög að fjárhagsáætlun Reykjaneshafnar fyrir árið 2025 ásamt áætlun til næstu ára þar á eftir. Einnig fór hann yfir þær fjárfestingar sem fara þarf í á komandi árum.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun ársins 2025 ásamt áætlun vegna áranna 2026-2028.
2. Njarðvíkurhöfn - dýpkun hafnar
Farið yfir stöðuna á framkvæmdum við Njarðvíkurhöfn.
3. Helguvikurhöfn - Suðurbakki
Farið yfir stöðuna varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á suðurbakka Helguvíkurhafnar.
4. Helguvíkurhöfn - Olíubryggja
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir drög að samningi við Olíudreifingu hf. varðandi fyrirkomulag gjaldtöku á hafnargjöldum skipa á þeirra vegum sem leggja að olíubryggjunni í Helguvíkurhöfn.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og felur Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs að undirrita þau.
5. Hafnasamband Íslands
Fundargerð 466. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 23. október sl. lögð fram.
6. Hafnasambandsþing 2024
Farið yfir þau erindi og samþykktir sem fjallað var um á þingi Hafnasambands Íslands á Akureyri dagana 24. og 25. október sl.
Atvinnu- og hafnarráð lýsir yfir ánægju sinni með að boð Reykjaneshafnar í samstarfi við aðrar hafnir á Suðurnesjum um að halda Hafnasambandsþing 2026 hafi verið samþykkt á þinginu.
7. Samráðsnefnd um þróun hafnarsvæða
Fundargerð 16. fundar samráðsnefndar um þróun hafnarsvæða frá 21. október sl. lögð fram, en á þeim fundi var sérstaklega farið yfir vegtengingar athafnasvæðisins upp af Njarðvíkurhöfn við Reykjaneshöfn.
Atvinnu- og hafnarráð ítrekar að vegtenging milli athafnasvæða Reykjanesbæjar, eins og við Njarðvíkurhöfn, og Reykjanesbrautar þurfa að vera með þeim hætti að flæði umferðar þar á milli sé sem auðveldast.
8. Áætlun um móttöku úrgangs og farmleifa
Lögð fram drög að áætlun Reykjaneshafnar um móttöku úrgangs og farmleifa, en viðkomandi áætlun var unnin í samstarfi við sjálfbærniráð Reykjanesbæjar.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög og þakkar jafnframt sjálfbærniráði Reykjanesbæjar fyrir þeirra aðkomu að vinnslu áætlunarinnar.
9. Fitjabakki 2
Á fundinn mættu Ásgeir Margeirsson frá Í toppformi ehf., Elías Kristjánsson lögmaður Reykjaneshafnar og Guðlaugur H. Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs Reykjanesbæjar.
Bréf Í toppformi ehf. dags. 11. nóvember 2024 varðandi jarðhitaleit í tengslum við uppbyggingu hótels og baðlóns að Fitjum. Ásgeir Margeirsson fór yfir erindi bréfsins.
Atvinnu- og hafnarráð felur Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs að vinna málið áfram á grundvelli þeirrar umræðu sem fram fór á fundinum.
10. HB64 - grænn vistiðngarður
Farið yfir stöðuna í verkefninu HB 64 – grænn vistiðngarður.
11. Samþykkt Reykjanesbæjar um götu- og torgsölu - drög til umsagnar
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar óskar eftir umsögn um drög að samþykkt um götu- og torgsölu í Reykjanesbæ.
Atvinnu- og hafnarráð tekur undir þau skilyrði og það ferli sem fram kemur í drögum að ofangreindri samþykkt. Þar kemur fram að tilgangurinn er að auka fjölbreytni og bæjarbrag, tryggja öryggi og skipulag og vernda umhverfið. Atvinnu- og hafnarráð gerir ekki athugasemdir við viðkomandi drög.
12. Samþykkt um skilti í lögsögu Reykjanesbæjar - drög til umsagnar
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar óskar eftir umsögn um drög að samþykkt um skilti í lögsögum Reykjanesbæjar.
Atvinnu- og hafnarráð tekur undir þau markmið sem fram koma í viðkomandi drögum. Lykiliatriði er að skilti hafi ekki neikvæð áhrif á umhverfið eða truflandi áhrif. Lagðar voru fram athugasemdir á fundinum og er Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra Atvinnu- og hafnarsviðs falið að koma þeim á framfæri.
13. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir mælaborð sviðsins.
14. Upplýsingagjöf sviðsstjóra
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:45.