Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

293. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 23. janúar 2025 kl. 16.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðalmaður, Hjörtur Magnús Guðbjartsson formaður nefndar, Jón Már Sverrisson aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður, Valgerður Björk Pálsdóttir-

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Kristján Jóhannsson boðaði forföll og sat Valgerður Pálsdóttir fundinn í hans stað.

Dagskrá fundar

1. Ársreikningur Reykjaneshafnar 2024

Farið var yfir stöðu endurskoðunar á ársreikningi Reykjaneshafnar vegna ársins 2024. 

2. Starfsáætlun atvinnu- og hafnarsviðs

Farið var yfir  starfsáætlun atvinnu- og hafnarsviðs fyrir árið 2025. 

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlun.

3. Samráðsnefnd ATH og USK

Farið var yfir þau mál sem til umfjöllunar eru hjá samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs og umhverfis- og skipulagsráðs.

4. Njarðvíkurhöfn - dýpkun hafnar

Farið yfir stöðuna á framkvæmdum við Njarðvíkurhöfn

5. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki

Farið yfir stöðuna varðandi fyrirhugaðar framkvæmdir á Suðurbakka Helguvíkurhafnar.

6. Helguvíkurhöfn - Norðurbakki

Farið yfir minnisblað Portum verkfræðistofu um nauðsynlegar úrbætur á Norðurbakka Helguvíkurhafnar.

7. HB64 - grænn vistgarður

Farið yfir stöðuna í verkefninu HB64 – grænn vistiðngarður. 

8. Nordic Port Group AB

Lagðar fram hugmyndir Nordic Port Group AB um samstarf við Reykjaneshöfn varðandi markaðssetningu Keflavíkurhafnar fyrir smærri skemmtiferðaskip.

Atvinnu- og hafnarráð tekur jákvætt í þessar hugmyndir og felur Halldóri K. Hermannssyni, sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs, að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum.

9. Tryggingar Reykjaneshafnar 2025

Lagt fram minnisblað frá Consello, löggiltum vátryggingarmiðlara, um yfirferð á vátryggingum hafnarinnar vegna ársins 2025, en meðaltalshækkun tryggingar Reykjaneshafnar milli áranna 2024 og 2025 er 5,1%. Samningi Reykjaneshafnar við TM tryggingar hf. varðandi vátryggingar lýkur þann 31. desember nk. og verður farið í útboð á tryggingum hafnarinnar á árinu í samstarfi við Reykjanesbæ. 

10. Bréf Fiskistofu frá 9. desember 2024

Bréf Fiskistofu dags. 09.12.24 þar sem tilkynnt er hver hlutur Reykjaneshafnar er í sérstöku strandveiðigjaldi sem innheimt er af strandveiðibátum ár hvert.

11. Aalborg Portland Ísland

Lögð fram drög að samkomulagi milli Reykjaneshafnar og Aalborg Portland Ísland ehf. varðandi fyrirkomulag á greiðslu vörugjalda á innfluttu sementi um Helguvíkurhöfn árið 2025. 

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að samkomulagi og felur Halldóri K. Hermannssyni, sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs, að undirrita það.

12. Stakksbraut 15

Tölvupóstur dags. 17.01.2025 frá skipulagsfulltrúa Reykjanesbæjar þar sem óskað er eftir umsögn um breytingu á byggingarreit lóðarinnar Stakksbraut 15 við Norðurbakka Helguvíkurhafnar í samræmi við fyrirliggjandi lóðarblað.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrir sitt leyti viðkomandi breytingu á byggingarreit lóðarinnar. 

13. Stefna um starfsmannaíbúðir á Suðurnesjum - beiðni um umsögn

Gunnar K. Ottósson skipulagsfulltrúi Reykjanesbæjar mætti á fundinn undir þessum dagskrálið.

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur óskað eftir umsögn um drög að stefnu um starfsmannaíbúðir á Suðurnesjum, sem er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar. Fór Gunnar yfir helstu þætti sem felast í stefnunni og þær forsendur sem eru til grundvallar í gerð hennar. 

Atvinnu- og hafnarráð þakkar fyrir framkomnar upplýsingar og stefnir að umsögn um stefnuna á næsta fundi ráðsins. 

14. Hafnasamband Íslands

Fundargerð 468. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 6. desember sl. lögð fram.

15. Cruise Iceland

Fréttabréf Cruise Iceland frá desember 2024 lagt fram.

16. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir mælaborð sviðsins.

17. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins. 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:28.