Dagskrá fundar
1. Erindisbréf umhverfis- og framkvæmdarráðs
Erindisbréf umhverfis- framkvæmdaráðs lagt fram til umræðu.
2. Njarðarbraut – fyrirhugaðar framkvæmdir
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs fór yfir framkvæmdir sem eru í undirbúningi við Njarðarbraut, Bergás og Grænásveg.
Umhverfis- og framkvæmdaráð ítrekar að hringtorg við Bergás verði sett í forgang eins og áður hefur verið samþykkt og sviðsstjóra falið að óska eftir við bæjarráð að framkvæmd þess verði samhliða eða í beinu framhaldi af lagningu göngustíga frá Fitjum að Fitjabraut. En sú framkvæmd fór í verðkönnun og hefst framkvæmd á næstu dögum. Á næsta fundi samráðshóps umhverfis- og framkvæmdaráðs, skipulagsráðs og atvinnu- og hafnarráðs verði sameinast um eina leið til þess að leysa umferðarvanda tengdan gatnamótum Grænás-Njarðarbrautar og flutningsleiða til og frá Njarðvíkurhöfn en nú er tækifæri til þess að móta þetta svæði þar sem bæjarráð hefur samþykkt makaskipti á lóðunum Sjávargötu 4 og Berghólabraut 9a.
3. Umferðaröryggisáætlun
Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála fór yfir þau verkefni sem lagt er til að farið verði í á árinu 2027.
Lagt fram.
4. Húsnæði við Miðtúnsróló
Starfsmenn eignaumsýslu leggja til að farið verði í að rífa eða fjarlægja gamla gæsluhúsið á Miðtúnsróló. Lagt er til að þetta verði sent í verðkönnun.
Máli vísað til bæjarráðs.
5. Hagsmunasamtök íbúa á Ásbrú - almenningssamgöngur
Katrín Sandholt og Berglind Heiða, fulltrúar frá Hagsmunasamtökum íbúa á Ásbrú mættu á fundinn og kynntu tillögur til að bæta samfélagið á Ásbrú.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar stofnun þessara samtaka og frumkvæði sjálfboðaliða.
6. Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar 2026
Reykjanesbær efnir til atvinnu- og framkvæmdaþings þar sem sjónum verður beint að atvinnulífi, uppbyggingu og þeim fjölmörgu tækifærum sem eru í sveitarfélaginu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar því hversu sýnileg fyrirtæki og félagasamtök eru orðin í samfélaginu.
Ráðið hvetur enn fremur einstaklinga og fyrirtæki til þess að skrá sig á Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar 2026 þann 16. september en þar munu öll stærstu fyrirtækin sem eru í uppbyggingu þessa stundina greina frá sínum áformum.
7. Niðurstaða af ástandsskoðun niðurgrafinna olíutanka
Lögð fram skýrsla Kadeco sem unnin er af Verkfræðistofu Suðurnesja um ástand niðurgrafinna olíutanka sem staðsettir eru austan Reykjanesbrautar, milli Grænásvegar í suðri og Þjóðbrautar í norðri.
8. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs
Fundargerð samráðshóps atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 1. september 2026 lögð fram.
Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar því að sett hafi verið saman samráðshópur umhverfis- og framkvæmdaráðs, atvinnu- og hafnaráðs og skipulagsráðs vegna allra þeirra mikilvægu málaflokka sem skarast á milli þessara ráða.
Ráðið vísar 5. máli fundargerðarinnar til umræðu í bæjarráði.
9. Leiðbeiningar um Ljósvist í Reykjanesbæjar
Aron Heiðar Steinsson veitustjóri Reykjanesbæjar lagði fram leiðbeiningar um Ljósvist Reykjanesbæjar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir þessar leiðbeiningar.
10. Umferðarþing 2026 – ungt fólk og umferðin
Minnt á umferðarþing sem fer fram 22. september 2026. Fulltrúar umhverfis- og framkvæmdaráðs hvattir til að mæta.
Umhverfis- og framkvæmdaráð hvetur áhugasama að sækja umferðarþing 2026.
11. Umhverfisviðurkenningar 2026 - niðurstöður
Farið yfir niðurstöður starfshóps um viðurkenningar umhverfisverðlauna sem afhentar voru á Ljósanótt.
Umhverfis- og framkvæmdarráð óskar þeim sem fengu viðurkenningar innilega til hamingju.
12. Ábendingagátt Reykjanesbæjar
Aðalheiður Júlírós Óskarsdóttir gæðastjóri og Hrefna Gunnarsdóttir persónuverndarfulltrúi mættu á fundinn og kynntu ábendingagátt Reykjanesbæjar.
13. Hugmynd að uppbyggingu á Patterson svæðinu
Lagðar fram hugmyndir Brynjólfs Ívarssonar um uppbyggingu á Patterson svæðinu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur Margréti Lilju Margeirsdóttur deildarstjóra umhverfismála að ræða um framtíð Patterson svæðisins við Kadeco.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:59.