Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

301. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 22. október 2025 kl. 16.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðalmaður, Hjörtur Magnús Guðbjartsson formaður nefndar, Jón Már Sverrisson aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Kristján Jóhannsson boðaði forföll og sat Halldór Rósmundur Guðjónsson fundinn í stað hans.

Dagskrá fundar

1. Fjárhagsáætlun ársins 2026

Farið yfir drög að rekstrar- og fjárfestingaáætlun ársins 2026.

2. Njarðvíkurhöfn - dýpkun hafnar og skjólgarður

Farið var yfir stöðuna á framkvæmdum við Njarðvíkurhöfn, en þeim hluta sem snýr að dýpkun hafnarinnar er nú lokið. Lögð voru fram drög að útboði á byggingu skjólgarðs sem lagður verður út sunnan við athafnasvæði Skipasmíðastöðvar Njarðvíkur. 

Atvinnu- og hafnarráð fagnar þeim áfanga í uppbyggingu Njarðvíkurhafnar sem náð er með dýpkun hafnarinnar. Næsti áfangi í þeirri uppbyggingu er bygging á skjólgarði fyrir sunnan höfnina og felur ráðið Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs að setja það verk í útboð á grundvelli meðfylgjandi útboðsgagna.

3. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki

Lagt fram samstarfssamkomulag milli utanríkisráðuneytisins, Landhelgisgæslu Íslands, Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar um uppbyggingu eldsneytisbirgðastöðvar og hafnaraðstöðu í Helguvík sem til stendur að undirrita þann 4. nóvember nk. 

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag og felur Halldóri K. Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs að undirrita samkomulagið.

4. Keflavíkurhöfn - uppbygging

Farið yfir hugmyndir um uppbyggingu á Vatnsnesinu upp af Keflavíkurhöfn.

5. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs og umhverfis- og skipulagsráðs

Farið yfir drög að deiliskipulagi sem verið er að vinna varðandi uppland og nágrenni Njarðvíkurhafnar.

6. Skemmtiferðaskip

Lagt fram skjal frá Cruise Iceland með samanburði á skattlagningu á farþega skemmtiferðaskipa í hinum ýmsu löndum í norður Evrópu árið 2025.

Atvinnu- og hafnarráð  beinir því til viðeigandi stjórnvalda að núverandi skattlagning á farþega skemmtiferðaskipa á Íslandi verði endurskoðuð þannig að hún verði sanngjarnari og fyrirsjáanlegri í framtíðinni.

7. Hólmbergsbraut - geymslusvæði

Reykjaneshöfn er að byggja upp geymslusvæði á iðnaðarsvæðinu í Helguvík þar sem eigendum smærri báta gefst kostur á að geyma, gegn mánaðarlegu gjaldi, bát og/eða bátakerru ef þannig hentar. Viðkomandi svæði verður upplýst, afgirt og aðgangsstýrt. Lögð voru fram drög að leigusamningi vegna viðkomandi leiguaðstöðu ásamt skilmálum sem liggja til grundvallar leigusamningum. 

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni yfir að nýtt geymslusvæði hafnarinnar sé að komast í notkun og samþykkir viðkomandi drög að leigusamningi vegna svæðisins ásamt skilmálum hans.

8. Hafnasamband Íslands - Hafnafundur 2025

Lögð fram dagskrá Hafnafundar 2025 sem fram fer í Ólafsvík á morgun, fimmtudaginn 23. október.

9. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:28.