Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

305. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 26. febrúar 2026 kl. 16.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðalmaður, Hjörtur Magnús Guðbjartsson formaður nefndar, Jón Már Sverrisson aðalmaður, Kristján Jóhannsson- aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Dagskrá fundar

1. Ársreikningur Reykjaneshafnar 2025

Farið var yfir stöðuna á endurskoðun ársreiknings Reykjaneshafnar vegna ársins 2025. 

2. Framtíðarsýn Reykjaneshafnar 2035

Lögð er fram í þriðja sinn framtíðarsýn fyrir starfsemi Reykjaneshafnar til komandi tíu ára sem unnin er af stjórn og stjórnendum Reykjaneshafnar, en fyrri skýrslur voru lagðar fram 2022 og 2018. Í skýrslunum er horft fram um tíu ár í starfsemi hafnarinnar og dregnar upp sviðsmyndir sem gætu raungerst gangi áætlaður rekstur og uppbygging hennar eftir. Skýrslunni er ætlað að vera upplýsingagefandi fyrir nýja stjórn Reykjaneshafnar sem tekur við að afloknum komandi sveitarstjórnarkosningum.  

Atvinnu- og hafnarráð leggur hér fram skýrsluna „Reykjaneshöfn - framtíðarsýn 2035“ með von um að lesendur hennar fái sem besta innsýn inn í þá möguleika sem falist geta í starfsemi Reykjaneshafnar á komandi árum.

3. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður

Lagðar fram verkfundargerðir 1 og 2 frá 28. janúar og 11. febrúar ásamt verkstöðuyfirlitum.

4. Njarðvíkurhöfn - skipulag

Farið yfir stöðu mála við vinnslu á aðal- og deiliskipulagi í og upp af Njarðvíkurhöfn. 

5. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki

Farið yfir stöðu mála við vinnslu á aðal- og deiliskipulagi á Suðurbakka Helguvíkurhafnar.

6. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs og umhverfis- og skipulagsráðs

Fundargerð 25. fundar samráðsnefndar um þróun hafnarsvæða frá 27. janúar lögð fram.

7. Samgönguáætlun 2026-2040

Hjörtur Magnús Guðbjartsson, formaður atvinnu- og hafnarráðs, fór sem fulltrúi Reykjaneshafnar á fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þann 19. febrúar sl. til að fylgja eftir óskum hafnarinnar um stuðning úr Hafnabótasjóði vegna fyrirhugaðra framkvæmda á komandi árum. Fór hann yfir það sem þar kom fram. 

8. Hafnasamband Íslands - fundargerð stjórnar

Fundargerð 479. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 19. janúar 2026 lögð fram. 

9. Skemmtiferðaskip

Farið var yfir ýmis mál sem snúa að markaðssetningu og móttöku skemmtiferðaskipa hjá Reykjaneshöfn. Þrjú skip hafa bókað komu sína í sumar og er jafnvel von á fleirum. Stefnt er að vinnustofu með hagaðilum á svæðinu miðvikudaginn 11. mars n.k. þar sem þessi mál verða yfirfarin. Þann 12. mars verður aðalfundur Cruise Iceland haldinn í Reykjavík og mun fulltrúi Reykjaneshafnar mæta á fundinn.

10. Fitjar - breyting á deiliskipulagi - umsögn

Laugar ehf. sem stefna að uppbyggingu hótels og heilsuaðstöðu á lóðinni Fitjabakka 8, hafa óskað eftir heimild til breytingar á deiliskipulagi svæðisins þar sem lóðin verði stækkuð um rúma 6 þúsund fermetra og nýtingarhlutfall hennar verði aukið úr 0,66 í 1,46. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 7. janúar að auglýsa viðkomandi breytingu á deiliskipulagi og óskaði jafnframt eftir umsögnum eða athugasemdum varðandi þá breytingu.

Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar leggur fram eftirfarandi umsögn: „Reykjaneshöfn hefur í samráði við umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar verið að útfæra nýtt deiliskipulag sem nær yfir svæðið upp af Njarðvíkurhöfn, þar á meðal skipulagið við Fitjabakka. Ofangreind tillaga um breytingu er ekki í samræmi við þær hugmyndir og kemur því á óvart. Sú uppbygging sem fyrirhuguð hefur verið á Fitjabakka 8 er metnaðarfull og jákvæð fyrir samfélagið en það vekur spurningar um hvort óskir um aukið landrými og aukið byggingarmagn séu réttlætanlegar meðan það liggur ekki fyrir hvort innviðir svæðisins geti þjónustað þá stækkun, jafnvel ekki núverandi samþykkt byggingarmagn. Atvinnu- og hafnarráð  Reykjanesbæjar telur rétt að heimila ekki viðkomandi breytingu meðan farið verður í heildstætt mat á svæðinu miðað við þá atvinnuuppbyggingu sem æskileg er þar í framtíðinni og að fyrir liggi að þeir innviðir séu til staðar sem til þarf.“ 

11. Carbfix - umsókn um könnunarleyfi í Helguvík - umsögn

Tölvupóstur, dags. 9. febrúar 2026, frá Umhverfis- og orkustofnun þar sem óskað er umsagnar um umsókn Carbfix hf. til stofnunarinnar um könnunarleyfi vegna geymslu CO2 í jörðu í Helguvík.

Carbfix hf. hefur haft leyfi til tilraunavinnslu með geymslu CO2 á iðnaðarsvæðinu í Helguvík undanfarin ár þar sem unnið hefur verið með jarðsjó í stað vatns til framkvæmdarinnar. Eftir því sem best er vitað munu áframhaldandi tilraunir litlu skila umfram þá þekkingu sem þegar er til staðar. Þessi tilraunavinnsla er ekki án ágreinings í samfélaginu og þreifingar um mögulega starfsstöð Carbfix á þessu svæði í framtíðinni hafa ekki notið mikils hljómgrunns. Atvinnu- og hafnarráð leggst gegn því að viðkomandi könnunarleyfi verði veitt nema fyrir liggi samþykki sveitarfélagsins fyrir því að heimilt verði að byggja aðstöðu fyrir þessa vinnslu á svæðinu í framtíðinni.

12. Særós GK 235, skipaskrárnúmer 1927

Reykjaneshöfn eignaðist farþegabátinn Særósu GK 235, skipaskránúmer 1927, á uppboði í desember sl. Báturinn var auglýstur til sölu í lok janúar og hafa borist nokkur tilboð í bátinn.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að taka tilboði Arctic Whales ehf. og felur Halldóri Karli Hermannssyni, sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs, að vinna málið áfram.

13. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15.