Dagskrá fundar
1. Ársreikningur Reykjaneshafnar 2025
Á fundinn mætti Ágúst Kristinsson endurskoðandi frá PricewaterhouseCoopers ehf., endurskoðunarfyrirtæki Reykjaneshafnar. Ársreikningur Reykjaneshafnar vegna starfsársins 2025 var lagður fram ásamt endurskoðunarskýrslu endurskoðenda. Helstu niðurstöður rekstrarreiknings eru eftirfarandi:
Rekstrartekjur..........................................kr.465.153.510.-
Rekstrargjöld...........................................kr.283.139.719.-
Hagnaður fyrir afskriftir og vexti.............kr.182.013.791.-
Afskriftir mannvirkja og annarra eigna....kr.-44.583.430.-
Fjármagnsliðir..........................................kr.-48.589.077.-
Rekstrarhagnaður ársins..........................kr. 88.841.284.-
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir ársreikning Reykjaneshafnar og vísar honum til samþykktar á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar.
2. Atvinnu- og hafnarsvið - ársskýrsla 2025
Ársskýrsla atvinnu- og hafnarsviðs vegna ársins 2025 lögð fram.
3. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður
Lagðar fram verkfundargerðir 3. og 4. funda frá 25. febrúar og 16. mars 2026 ásamt verkstöðuyfirlitum.
4. Njarðvíkurhöfn - skipulag
Farið yfir stöðu mála við vinnslu á aðal- og deiliskipulagi í og upp af Njarðvíkurhöfn. Einnig var farið yfir þá þróun sem þarf að eiga sér stað á svæðinu í uppbyggingar- og skipulagsmálum svo framtíðarsýn Reykjaneshafnar til næstu tíu ára á svæðinu gangi eftir.
Atvinnu- og hafnarráð beinir því til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar að horft verði til hugmynda Reykjaneshafnar varðandi landfyllingu sunnan við nýjan brimvarnargarð við Njarðvíkurhöfn við næstu endurskoðun á aðalskipulagi Reykjanesbæjar, samanber framtíðarsýn Reykjaneshafnar til ársins 2035. Atvinnu- og hafnarráð felur Halldóri K. Hermannssyni, sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs, að koma þessari ósk á framfæri ásamt viðeigandi gögnum.
5. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki
Farið yfir stöðu mála vegna uppbyggingar á Suðurbakka Helguvíkurhafnar.
6. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs og umhverfis- og skipulagsráðs
Fundargerð 26. fundar samráðsnefndar um þróun hafnarsvæða frá 19. mars 2026 lögð fram.
7. Aðalfundur Cruise Iceland 2026
Aðalfundur Cruise Iceland fór fram fimmtudaginn 12. mars sl. og sótti Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fundinn fyrir hönd Reykjaneshafnar. Fór hann yfir það sem fram kom á fundinum.
8. Skemmtiferðaskip
Lagt fram minnisblað AECO, Association of Arctic Expedition Cruise Operators, er varðar virðisaukaskatt og skemmtiferðaskip. Einnig farið yfir markaðssetningu Keflavíkurhafnar fyrir smærri skemmtiferðaskip.
9. Hafnasamband Íslands - fundargerð stjórnar 16. febrúar 2026
Fundargerð 480. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 16. febrúar 2026 lögð fram.
10. Straumlind - ársskýrsla
Lögð fram ársskýrsla viðskipavinar frá Straumlind ehf. vegna raforkukaupa Reykjaneshafnar 2025.
11. Samstarf um hringrásariðngarð
Á 304. fundi sínum þann 22. janúar sl. samþykkti atvinnu- og hafnarráð f.h. Reykjaneshafnar að taka þátt í samstarfi með Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og KADECO um uppbyggingu hringrásariðngarðs við Helguvíkurhöfn og tilnefndi þar tvo fulltrúa. Fyrir liggur ósk um að tilnefndur verði þriðji fulltrúinn frá Reykjaneshöfn.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að tilnefna Alexander Ragnarsson sem þriðja fulltrúa Reykjaneshafnar í samstarfshópinn.
12. Atvinnurammi Suðurnesja 2026-2030
Tölvupóstur dags. 13. mars 2026, frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum, þar sem óskað er umsagnar um drög að Atvinnuramma Suðurnesja 2026-2030 þar sem leitast er við að ná heildarsýn á atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum út frá áherslum sveitarfélaganna á Suðurnesjum, KADECO og annarra hagaðila.
Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með viðkomandi drög og telur þær áherslur sem þar koma fram varðandi árangursmælingar og mælaborð af hinu góða við mat á þróun atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum.
13. Strandsiglingar í alfaraleið
Lögð fram skýrslan Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til?. Í skýrslunni eru lagðar fram sjö tillögur um aðgerðir stjórnvalda sem væru til þess fallnar að styrkja forsendur fyrir strandsiglingum og vöruflutningum á sjó.
14. Umsagnarmál í skipulagsgátt
Tölvupóstur, dags. 12. mars 2026, þar sem óskað er umsagnar um mál nr. 0118/2026 í skipulagsgátt; Helguvíkurhöfn – breyting á deiliskipulagi.
Atvinnu- og hafnarráð gerir ekki athugasemdir við viðkomandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Helguvíkur.
Með því að smella hér má skoða málið Helguvíkurhöfn - breyting á deiliskipulagi í skipulagsgátt
15. Upplýsingagjöf sviðsstjóra
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:15.