Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

307. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 16. apríl 2026 kl. 16.00.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðalmaður, Hjörtur Magnús Guðbjartsson formaður nefndar, Jón Már Sverrisson aðalmaður, Kristján Jóhannsson- aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs.

Dagskrá fundar

1. Fjármál Reykjaneshafnar

Farið yfir fjárhagsstöðu Reykjaneshafnar en höfnin stendur í miklum fjárfestingum næstu mánuðina, aðallega vegna uppbyggingar í Njarðvíkurhöfn. Þessar fjárfestingar greiðast af handbæru fé hafnarinnar og er ekki þörf á langtímafjármögnun þeim tengdum. Þó getur komið upp á að það gangi hratt á handbært fé tímabundið vegna góðrar framvindu verkefna og því ákjósanlegt að auka fjárhagslegt svigrúm hafnarinnar. Því er lagt til að óskað verði eftir því við viðskiptabanka hafnarinnar að hann auki yfirdráttarheimild hafnarinnar um 30 milljónir tímabundið í sex mánuði meðan mesti þunginn er í framkvæmdum ársins.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að óska eftir því við viðskiptabanka hafnarinnar að hann auki yfirdráttarheimild Reykjaneshafnar tímabundið um 30 milljónir til næstu sex mánaða.

2. Starfsmannamál Reykjaneshafnar

Á 297. fundi atvinnu- og hafnarráðs sem haldinn var 15. maí 2025 var samþykkt að fela sviðsstjóra að koma með tillögu að framtíðartilhögun í starfsmannahaldi Reykjaneshafnar með hliðsjón af þeirri aukningu í hafnarstarfsemi sem fyrirsjáanleg er á komandi árum. Til aðstoðar við þá vinnu var fyrirtækjaráðgjöf PwC ehf. fengin til að koma með tillögur að nýju vaktakerfi fyrir höfnina. Á 304. fundi atvinnu- og hafnarráðs sem haldinn var 22. janúar sl. voru drög að nýju vaktakerfi kynnt sem eykur þjónustugetu hafnarinnar umtalsvert og mætir þar með aukinni hafnarstarfsemi í framtíðinni. Þetta nýja vaktakerfi kallar á aukningu í almennum stöðugildum hjá höfninni úr þremur starfsmönnum upp í fjóra starfsmenn og var sviðsstjóra falið að ráða starfsmann tímabundið, með möguleika á áframhaldandi ráðningu, svo hægt væri að taka upp fyrrnefnt vaktakerfi til reynslu. Vinna samkvæmt nýja vaktakerfinu hófst um síðustu mánaðarmót.

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með nýtt vinnufyrirkomulag og telur að með þessu fyrirkomulagi ráði þjónustugeta hafnarinnar við aukið álag í framtíðinni og að vinnuumhverfi starfsmanna verði jafnframt til mikilla bóta.

3. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður

Lagðar fram verkfundargerðir 5. og 6. funda frá 25. mars og 7. apríl 2026 ásamt verkstöðuyfirlitum.

4. Njarðvíkurhöfn - skipulag

Farið yfir stöðu mála við vinnslu á aðal- og deiliskipulagi í og upp af Njarðvíkurhöfn. Jafnframt skoðaðar ýmsar útfærslur í tengslum við vegtengingar inn á svæðið.

5. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki

Farið yfir stöðu mála vegna uppbyggingar á Suðurbakka Helguvíkurhafnar en þar er skipulagsvinnunni að ljúka.

6. Helguvíkurhöfn - Vesturbakki

Lagt fram minnisblað frá Portum verkfræðistofu ehf., dags. 1. apríl 2026, varðandi uppbyggingu á bryggju við Vesturbakka Helguvíkurhafnar.

7. Aðalfundur Cruise Iceland 2026

Lögð fram kynning frá aðalfundi Cruise Iceland sem fór fram fimmtudaginn 12. mars sl.

8. Virðisaukaskattskylda skemmtiferðaskipa

Lagt fram minnisblað frá Hafnasambandi Íslands, dags. 9. apríl 2026, um virðisaukaskatt-skyldu skemmtiferðaskipa.

9. Hafnasamband Íslands - fundargerð stjórnar 17. mars 2026

Lögð fram fundargerð 481. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 17. mars 2026.

10. Verk og vit 2026

Lögð fram drög að minnisblaði, ódagsett, frá KADECO þar sem farið var yfir aðkomu KADECO, Suðurnesjabæjar, Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar að ráðstefnunni Verk og vit 2026 sem fram fór í Laugardalshöll dagana 19.-22. mars sl.

Atvinnu- og hafnarráð telur aðkomu Reykjaneshafnar að sameiginlegum kynningarbás með KADECO, Suðurnesjabæ og Reykjanesbæ á sýningunni Verk og vit mjög jákvæða. Ráðið telur þó að í framtíðinni þurfi markmiðið með þátttöku að vera betur skilgreint og aðkoma samstarfsaðila í fastari skorðum.

11. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins. 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:40.