Dagskrá fundar
1. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður
Lögð fram verkfundargerð 7. fundar frá 22. apríl 2026 ásamt verkstöðuyfirliti.
2. Njarðvíkurhöfn - skipulag
Farið yfir stöðu mála við vinnslu á deiliskipulagi í og upp af Njarðvíkurhöfn. Tekin var afstaða til afmörkunar á lóðum og á lóðarstærðum.
3. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki
Farið yfir stöðu mála vegna uppbyggingar á Suðurbakka Helguvíkurhafnar og tímalínu næsta áfanga verkefnisins.
4. Skemmtiferðaskip
Farið yfir ýmis mál er varða markaðssetningu Keflavíkurhafnar fyrir smærri skemmtiferðarskip.
5. Hafnasamband Íslands - fundargerð stjórnar 13. apríl 2026
Lögð fram fundargerð 482. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 13. apríl 2026.
6. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs
Farið yfir mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs vegna fyrsta ársfjórðungs, janúar til mars, 2026.
7. Upplýsingagjöf sviðsstjóra
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 17:40.