Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

311. fundur atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 17. september 2026 kl. 14.45.

Fundarstaður: Víkurbraut 11

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson formaður nefndar, Magnús Einþór Áskelssoon aðalmaður, Rúnar Fossádal Árnason aðalmaður, Sigurður Guðjónsson aðalmaður, Tryggvi Þór Bragason aðalmaður

Að auki sat fundinn Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, sem ritaði fundargerð.

Dagskrá fundar

1. Skemmtiferðaskip

Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs og Hrafnhildur Ýr Hafsteinsdóttir verkefnisstjóri sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

Farið yfir hvernig tekist hefur til við móttöku skemmtiferðaskipa í Keflavíkurhöfn nú í sumar, hvað hefur tekist vel og hvað má bæta.

Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með þá þróun sem er að verða í komu skemmtiferðaskipa til Keflavíkurhafnar og þau áhrif sem koma þeirra hefur á mannlíf í bænum. Ráðið telur þó að betur megi gera á þessu sviði og þar þurfa bæjaryfirvöld að vera leiðandi í uppbyggingu svæðisins sem áfangastaðar ferðamanna. Ef rétt er haldið á spilunum getur koma smærri skemmtiferðaskipa á svæðið orði öflug stoð að því markmiði.

2. Reykjaneshöfn - merki hafnarinnar

Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Farið var yfir fyrirliggjandi tillögur að merki Reykjaneshafnar.

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir að vinna áfram með tillögu A og C sem merki hafnarinnar og taka til afgreiðslu á næsta fundi. 

3. K64 Hringrásariðngarður

Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

Elín Ragnheiður Guðnadóttir yfirverkefnisstjóri og Samúel Torfi Pétursson þróunarstjóri frá Kadeco sátu fundinn undir þessum dagskrárlið.

Með tölvupósti dags. 11. september 2026 óskaði Kadeco eftir upplýsingum í tengslum við kynningarefni vegna markaðssetningar á K64. Farið var yfir hugmyndafræðina á bak við K64 og hvernig samstarfið þar gæti þróast áfram. Einnig kynntu fulltrúar Kadeco ýmsa þætti er snúa að starfsemi Kadeco á svæðinu.

4. Fjárhagsáætlun ársins 2027

Farið yfir stöðuna á vinnslu fjárhagsáætlunar atvinnu- og hafnarsviðs fyrir árið 2026.

5. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður

Lagðar fram verkfundargerðir 15. og 16. funda frá 24. ágúst og 8. september sl. ásamt verkstöðuyfirlitum.

6. Njarðvíkurhöfn - skipulag

Farið yfir stöðuna á vinnslu aðal- og deiliskipulags í og upp af Njarðvíkurhöfn.

7. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki

Farið yfir stöðuna á hönnun útboðsgagna vegna uppbyggingar á nýrri hafnaraðstöðu og eldsneytisbirgðastöð á hafnarsvæði Helguvíkurhafnar.

8. Cruise Iceland

Lögð fram samantekt frá framkvæmdastjóra Cruise Iceland um stöðu og horfur í skemmtiferðaskipageiranum á Íslandi.

Atvinnu- og hafnarráð lýsir áhyggjum sínum af því að ekki virðast allir ganga í takt varðandi uppbyggingu þessa þáttar ferðaþjónustunnar á Íslandi. Gæta verður að því að góður árangur í uppbyggingu byggist á fyrirsjáanleika og möguleika á aðlögun. Þættir eins og aukin gjaldtaka án fyrirvara hefur neikvæð áhrif sem geta reynst mjög afdrifarík. Atvinnu- og hafnarráð hvetur því til að hlutaðeigandi aðilar hafi það í huga þegar slíkar ákvarðanir eru teknar.

9. Hafnasamband Íslands – fundargerðir stjórnar 19. ágúst og 7. september 2026

Fundargerðir 484. og 485. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 19. ágúst og 7. september 2026 lagðar fram.

10. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs

Fundargerð 27. fundar samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 1. september sl. lögð fram.

Atvinnu- og hafnarráð vill leggja áherslu á í tengslum við dagskrálið 3, Aksturstenging milli Njarðvíkurhafnar og Reykjanesbrautar, að horft verði heildstætt á þá vegtengingu áður en farið verður í framkvæmdir.

Atvinnu- og hafnarráð tekur einnig undir samþykkt samráðsnefndarinnar í dagskrárlið 5, Geymslusvæði, og fagnar því að stjórn bílastæðasjóðs hefur tekið málið til skoðunar.

11. Erindisbréf atvinnu- og hafnarráðs 2026-2030

Drög að erindisbréfi atvinnu- og hafnarráðs lögð fram ásamt tillögum að breytingum. 

Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög með breytingum og vísar þeim til forsætisnefndar til umfjöllunar.

12. Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar

Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar fór fram miðvikudaginn 16. september sl.

Atvinnu- og hafnarráð lýsir sérstakri ánægju með hversu vel tókst til við atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar, bæði hvað varðar fjölda þátttakenda og efnistök. Þar kom skýrt fram hversu öflugt atvinnulíf er hér á svæðinu og hversu mögnuð tækifæri eru til uppbyggingar. Atvinnu- og hafnarráð er sammála um að Reykjanesbær er svo sannarlega bær tækifæranna.

13. Upplýsingagjöf sviðsstjóra

Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:06.