Dagskrá fundar
1. Samtal við atvinnulífið
Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Á fundinn mætti Sigurgeir Rúnar Jóhannsson og Magnús Guðmundsson frá Reykjanes Investment. Kynntu þeir þau uppbyggingaráform sem fyrirhuguð eru hjá fyrirtækinu og þá sýn sem þeir hafa á atvinnuþróun svæðisins.
Atvinnu- og hafnarráð þakkar áhugaverða kynningu á þeirri framtíðarsýn sem Reykjanes Investment hefur á uppbyggingu og atvinnuþróun svæðisins.
2. Skemmtiferðaskip
Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Dagana 20.-23. október sl. fór fram í Noregi árleg ráðstefna AECO, samtaka leiðangursskipa á Norðurslóðum. Sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs sótti ráðstefnuna og kynnti þar m.a. áfangastaðinn Reykjanesbæ.
Atvinnu- og hafnarráð telur mikilvægt að fulltrúar Reykjanesbæjar og Reykjaneshafnar sæki ráðstefnur eins og AECO í Noregi til að fylgja eftir markaðssetningu Reykjanesbæjar sem áfangastaðar fyrir smærri skemmtiferðaskip.
3. Ímynd og ásýnd Reykjaness
Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram fundargerð hagaðilahóps dags. 21. október sl. um ímynd, sérstöðu og sameiginlega framtíðarsýn Reykjaness ásamt fylgiskjölum.
4. Reykjanes sem áfangastaður - vinnustofa
Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Tölvupóstur frá Markaðsstofu Reykjaness, dags. 5. nóvember 2026, þar sem boðið er til vinnustofu þann 19. nóvember n.k. með samstarfsaðilum um Reykjanes sem áfangastað. Jafnframt er óskað eftir tilnefningu á fulltrúa frá Reykjanesbæ í markaðs- og áfangastaðaþróunarhóp Reykjaness sem verður markaðsstofunni til ráðgjafar um áherslur og forgangsröðun verkefna, greiningu á sameiginlegum tækifærum og áskorunum og styður við áframhaldandi samtal og samstarf um þróun áfangastaðarins.
Atvinnu- og hafnarráð hvetur sem flesta áhugasama til að taka þátt í vinnustofunni þann 19. nóvember n.k. Jafnframt tilnefnir atvinnu- og hafnarráð Halldóru Guðrúnu Jónsdóttur, sviðsstjóra þjónustu- og menningarsviðs, sem fulltrúa Reykjanesbæjar í markaðs- og áfangastaðaþróunarhópinn.
5. Ferðamál - áhersluatriði 2027
Halldóra Guðrún Jónsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og menningarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Lögð fram drög að þeim áhersluatriðum sem horft verður til varðandi ferðamál í Reykjanesbæ árið 2027.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög sem áhersluatriði í ferðamálum 2027.
6. Atvinnumál - áhersluatriði 2027
Lögð fram drög að þeim áhersluatriðum sem horft verður til varðandi atvinnumál í Reykjanesbæ árið 2027.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi drög sem áhersluatriði í atvinnumálum 2027.
7. K64 Hringrásariðngarður
Lagt fram minnisblað frá fundi faghóps um Hringrásariðngarð frá 19. október 2026.
8. Fjárhagsáætlun ársins 2027
Halldór Karl Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir drög að fjárhagsáætlun Reykjaneshafnar fyrir árið 2027 ásamt áætlun til næstu ára þar á eftir. Einnig fór hann yfir fjárfestingar komandi ára.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi fjárhagsáætlun ársins 2027 ásamt áætlun áranna 2028-2030.
9. Ársreikningur Reykjaneshafnar 2026
Lagt fram ráðningarbréf frá PricewaterhouseCoopers ehf., sem eru endurskoðendur Reykjaneshafnar, vegna endurskoðunar á reikningum hafnarinnar árið 2026.
Atvinnu- og hafnarráð samþykkir fyrirliggjandi ráðningarbréf og felur Halldóri Karli Hermannssyni sviðsstjóra atvinnu- og hafnarsviðs að undirrita það.
10. Njarðvíkurhöfn - brimvarnargarður
Lagðar fram verkfundargerðir 19. og 20. funda frá 27. október og 4. nóvember 2026 ásamt verkstöðuyfirlitum en þar kemur fram að uppbyggingu brimvarnargarðsins í Njarðvíkurhöfn er lokið.
11. Helguvíkurhöfn - Suðurbakki
Farið yfir stöðuna á hönnun útboðsgagna vegna uppbyggingar á nýrri hafnaraðstöðu og eldsneytisbirgðastöð á hafnarsvæði Helguvíkurhafnar.
12. Hafnasambandsþing 2026
Hafnasamband Íslands hélt 45. hafnasambandsþing sitt í Hljómahöll í Reykjanesbæ dagana 22. og 23. október sl. Þingið var haldið í samstarfi við hafnirnar á Suðurnesjum, Grindavíkurhöfn, Reykjaneshöfn og Sandgerðishöfn. Um hundrað þingfulltrúar frá 31 aðildarhöfn sóttu þingið.
Atvinnu- og hafnarráð lýsir ánægju sinni með hve vel tókst til við framkvæmd þingsins og þakkar starfsmönnum Hljómahallar, starfsmönnum og stjórn hafnasambandsins ásamt samstarfshöfnum fyrir samstarfið við framkvæmdina.
13. Hafnasamband Íslands - fundargerðir stjórnar 2. og 21. október 2026
Fundargerðir 486. og 487. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands frá 2. og 21. október sl. lagðar fram.
14. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs
Fundargerð 29. fundar samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 11. nóvember 2026 lögð fram.
15. Njarðvíkurhöfn - leiðarmerki L4490
Leiðarmerki L4490 hefur markað innsiglingu til Njarðvíkurhafnar fram að þessu en nú hefur orðið breyting á innsiglingu hafnarinnar með tilkomu á nýjum brimvarnargarði. Innsiglingin afmarkast nú af innsiglingarljósum á enda varnargarðanna sem mynda innsiglinguna og því ekki þörf á leiðarmerki lengur.
Atvinnu- og hafnarráð, sem jafnframt er stjórn Reykjaneshafnar, samþykkir að leggja af leiðarmerki L4490 í framhaldi af breyttri aðkomu til Njarðvíkurhafnar.
16. Njarðvíkurhöfn - skipulag
Farið yfir stöðuna á vinnslu aðal- og deiliskipulags í og upp af Njarðvíkurhöfn.
17. Sjávargata 38 - stækkun lóðar - umsögn
Skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að senda í grenndarkynningu erindi eiganda fasteignarinnar Sjávargötu 38 um breytingu á húsnæði og stækkun lóðar, en Reykjaneshöfn er landeigandi á svæðinu.
Reykjaneshöfn er að ljúka vinnu við deiliskipulag fyrir svæðið upp af Njarðvíkurhöfn. Atvinnu- og hafnarráð gerir ekki athugasemd við viðkomandi lóðarstækkun svo lengi sem stækkun lóðarinnar falli að nýju deiliskipulagi og þeim lóðum sem eru á svæðinu.
18. Bergvík - breyting á deiliskipulagi - umsögn
Suðurnesjabær hefur óskað eftir umsögn Reykjaneshafnar um skipulagstillöguna Bergvík – breyting á aðalskipulagi, nr. 1040/2025.
Atvinnu- og hafnarráð, sem jafnframt er stjórn Reykjaneshafnar, ítrekar fyrri umsögn um skipulagið.
19. Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi - SAR - aðalfundur 2026
Aðalfundur Samtaka atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR, fór fram fimmtudaginn 5. nóvember sl. Farið var yfir það sem fram kom á fundinum.
20. Mælaborð atvinnu- og hafnarsviðs
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir mælaborð sviðsins fyrir fyrstu 9 mánuði rekstrarársins.
21. Upplýsingagjöf sviðsstjóra
Halldór K. Hermannsson, sviðsstjóri atvinnu- og hafnarsviðs, fór yfir stöðu ýmissa mála er varða starfsemi sviðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:05.