Dagskrá fundar
1. Áform um úthlutun lóða - kynning
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, kynnti erindi sem hann flutti á atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar, með sérstakri áherslu á áform um úthlutun lóða í sveitarfélaginu.
2. Áskoranir í óleyfisbúsetu - kynning
Erla Bjarný Gunnarsdóttir, lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, kynnti áskoranir sem sveitarfélagið stendur frammi fyrir varðandi óleyfisbúsetu.
3. Iðjustígur 1 - breyting á deiliskipulagi
JeES arkitektar leggja fram breytingu á deiliskipulagi f.h. Ásgarðs fasteignafélags ehf. fyrir Hafnargötu 91, Iðjustíg 1 og Pósthússtræti 5, 7 og 9. Breytingin felur einkum í sér að hluti lóðar að Hafnargötu 91 sameinast lóð að Iðjustíg 1, þannig að lóð Iðjustígs 1 verður 5.442 m² og lóð Hafnargötu 91 verður 4.015 m². Heimilt verður að byggja 4-5 hæða fjölbýlishús með verslunar- og þjónustuhúsnæði á fyrstu hæð og íbúðum á efri hæðum, auk bílgeymslu neðanjarðar. Gert er ráð fyrir allt að 85 íbúðum. Tillagan var auglýst sbr. 1. mgr. 43. gr skipulagslaga. Markmið breytingarinnar er að styrkja miðbæjarstarfsemi, nýta betur þegar raskað þéttbýlissvæði, bæta götumynd við Hafnargötu/Njarðarbraut og skapa skýrari heimildir til uppbyggingar í samræmi við aðalskipulag Reykjanesbæjar 2020-2035. Fyrir liggur heimild landeigenda fyrir deiliskipulagi fyrir reitinn.
Haldinn verður fundur með húsfélögum að Pósthússtræti 5, 7 og 9. Það er einlægur vilji skipulagsráðs að málið verði unnið í sátt og samlyndi við nágranna. Brugðist hefur verið við athugasemdum. Skipulagsráð samþykkir að tillagan verði send Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun til athugunar eftir auglýsingu.
4. Sólvallagata 11
Haukur Ingi Júlíusson sækir um leyfi til að breyta núverandi gistiheimili í íbúðarhúsnæði. Um er að ræða breytingar á innra skipulagi og taka þær mið af því að endurinnrétta hluta byggingarinnar sem 3 íbúðir í stað gistirýma.
Skipulagsráð samþykkir að senda erindið í grenndarkynningu skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
5. Seljavogur
JeES arkitektar leggja fram erindi fyrir hönd Víkings Sigurðssonar um að hefja nauðsynlega breytingu á aðalskipulagi Reykjanesbæjar, jafnframt er óskað eftir því að svæði A og B verði deiliskipulögð í sama anda, með samræmdu byggðarmynstri, húsagerðum, aðkomu og grænum útrýmum. Svæði A er því hluti af sameiginlegri tillögugerð, þótt viðbótin við fyrra skipulagsverkefni sé svæði B.
Skipulagsráð vísar erindinu til endurskoðunar aðalskipulags Reykjanesbæjar.
6. Hafnargata 56 - breyting á deiliskipulagi
JeES arkitektar leggja fram uppfærð gögn f.h. RI H56 ehf. vegna breytingar á deiliskipulagi fyrir Hafnargötu 56. Breytingin felur helst í sér að notkun efri hæða breytist úr íbúðum í hótel. Byggingarreiturinn er stækkaður inn á við. Stækkunin hefur ekki áhrif á götumyndina frá Hafnargötu. Gerð hefur verið frekari grein fyrir bílastæðum á lóð í greinargerð skipulagsins.
Skipulagsráð samþykkir heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagsbreytingu áfram í samvinnu við skipulagsfulltrúa.
7. Tjarnabraut 2
Íslandsturnar Sendastaðir ehf. sækja um leyfi til að reisa 6“ fjarskiptasúlu á þaki stigahússins og setja tæknibúnað í afstúkaðan tækjaskáp utanhúss á aðkomusvölum á 3. hæð.
Skipulagsráð samþykkir að senda erindið í grenndarkynningu skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
8. Njarðarvellir 6 – bílastæðamál
Nesvellir íbúðir ehf. leggja fram greinargerð vegna fyrirhugaðrar fjölgunar á bílastæðum við Njarðarvelli 6. Í greinargerðinni er gerð grein fyrir staðsetningu bílastæðanna, aðkomu að þeim og aðgengisleið frá bílastæðum að inngangi Nesvalla 6 og áfram inn í húsið. Jafnframt er staðfest að aðgengið frá bílastæðunum að inngangi, um innganginn og áfram inn í húsið uppfylli kröfur um aðgengi fyrir alla.
Skipulagsráð samþykkir að senda erindið í grenndarkynningu skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
9. Sjávargata 38
Kolbrún Garðarsdóttir óskaði eftir heimild til breytinga á fasteign sbr. uppdrátt Lúdika dags. 6. mars 2026. Breytingarnar felast í að skipta eigninni í tvö fasteignanúmer, annars vegar kjallaraíbúð og hins vegar íbúð á annarri og þriðju hæð, stækka lóðamörk um u.þ.b. 10 m. til suðurs og stækka kjallara um 31,4 m2 brúttó ásamt minniháttar breytingum á innra skipulagi kjallara. Atvinnu- og hafnaráð hafnaði breytingunni á 310. fundi ráðsins. Eftir samtal við hafnarstjóra leggur umsækjandi fram nýja tillögu og óskar eftir að hún verði tekin til meðferðar hjá skipulagsráði.
Skipulagsráð samþykkir að senda erindið í grenndarkynningu skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
10. Furudalur 3 – lóðarumsókn
Afrit úr gerðarbók sýslumannsins á Suðurnesjum vegna lóðarúthlutunar lagt fram.
Alls bárust 9 umsóknir um lóðina, allar umsóknir voru gildar. Dregið var um 1., 2. og 3. val. Falli umsækjandi í fyrsta vali frá lóðarumsókn gengur lóðin til þess næsta eða þess þriðja ef svo ber undir. Gildir þetta til 1. febrúar 2027. Losni lóðin eftir þann tíma er lóðin laus til umsókna. Ef lóð losnar fyrir þann tíma og enginn þeirra þriggja sem dreginn var þiggur lóðina er lóðin laus til umsókna að nýju.
11. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 408 lögð fram.
12. Erindisbréf skipulagsráðs
Athugasemdir kjörinna fulltrúa vegna erindisbréfs lagðar fram.
Skipulagsráð felur Gunnari Felix Rúnarssyni formanni, Guðlaugi Helga Sigurjónssyni sviðsstjóra og Erlu Bjarnýju Gunnarsdóttur lögfræðingi að uppfæra drög að erindsbréfi ráðsins í samræmi við innsendar athugasemdir og leggja fram á næsta fundi ráðsins.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:02.