Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

397. fundur menntaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 19. júní 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Súlur

Viðstaddir: Berglind Ragnarsdóttir aðalmaður, Bjarni Halldór Heiðuson aðalmaður, Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir varamaður, Ragnar Már Ragnarsson aðalmaður, Sigrún Þorsteinsdóttir aðalmaður

Fulltrúar leikskólaráðs: Ásdís Ólafsdóttir formaður, Hildur Björnsdóttir, Logi Þór Ágústsson og Sighvatur Jónsson.

Díana Hilmarsdóttir boðaði forföll og sat Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir fundinn í hennar stað.

Harpa Björg Sævarsdóttir boðaði forföll.

Að auki sátu fundinn Sigurbjörg Róbertsdóttir fulltrúi skólastjóra grunnskóla, Anita Engley Guðbergsdóttir fulltrúi FFGÍR, Brynja Aðalbergsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Linda Hlín Heiðarsdóttir fulltrúi leikskólakennara, Maciej Baginski fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Ingibjörg Bryndís Hilmarsdóttir leikskólafulltrúi, Bergljót Sif Stefánsdóttir leikskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Um sameiginlegan fund menntaráðs og leikskólaráðs var að ræða en gerðar voru tvær fundargerðir, ein fyrir menntaráð og önnur fyrir leikskólaráð.

Menntaráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Skipting embætta í menntaráði (2026060289). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 1.

Menntaráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá málið Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 3.

Dagskrá fundar

1. Skipting embætta í menntaráði (2026060289)

Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar þann 2. júní 2026 voru eftirtaldir kjörnir aðal- og varafulltrúar í menntaráð kjörtímabilið 2026-2030:

Aðalfulltrúar: Berglind Ragnarsdóttir (D), Sigrún Þorsteinsdóttir (M), Ragnar Már Ragnarsson (D), Díana Hilmarsdóttir (B) og Bjarni Halldór Heiðuson (S).

Varafulltrúar: Þorsteinn Ingi Hjálmarsson (M), Hjörleifur Stefánsson (D), Hermann Borgar Jakobsson (D), Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir (B) og Vala Ósk Ólafsdóttir (S).

Bæjarstjórn kaus Berglindi Ragnarsdóttur sem formann menntaráðs.

Menntaráð kaus í eftirtalin embætti:

Sigrún Þorsteinsdóttir var kjörin varaformaður menntaráðs.

Ragnar Már Ragnarsson var kjörinn ritari menntaráðs.

2. Erindisbréf menntaráðs (2026060120)

Drög að erindisbréfi menntaráðs lögð fram til kynningar. Fulltrúum ráðsins gefst kostur á að senda inn athugasemdir og verður erindisbréfið lagt fram á næsta fundi ráðsins áður en það fer til umfjöllunar og afgreiðslu forsetanefndar.

3. Siðareglur kjörinna fulltrúa (2026050308)

Siðareglur kjörinna fulltrúa hjá Reykjanesbæ lagðar fram til kynningar. Kjörnum fulltrúum ber að tileinka sér þessar siðareglur og lýsa því yfir að þeir séu reiðubúnir til að hafa þessar siðareglur að leiðarljósi. Kjörnir fulltrúar munu undirrita siðareglurnar því til staðfestingar.

4. Mælaborð menntasviðs - fyrsti ársfjórðungur 2026 (2026060250)

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti mælaborð sviðsins fyrir fyrsta ársfjórðung 2026.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:50.