Dagskrá fundar
1. Ásahverfi - breyting á deiliskipulagi (2026080123)
Jón Stefán Einarsson frá JeES arkitektum sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Kynning á tillögu að breyttri ásýnd Ásahverfis lögð fram. Skipulagsráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundi.
Kynning á tillögu að breyttri ásýnd Ásahverfis lögð fram. Skipulagsráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundi.
Skipulagsráð felur sviðsstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundi.
2. K64 Hringrásariðngarður – faghópur (2023100396)
Kynning frá faghópi K64 Hringrásariðngarðsins lögð fram.
3. Fjárhagsáætlun umhverfis- og framkvæmdasviðs 2027 (2026070036)
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, kynnti drög að fjárhagsáætlun fyrir skipulags- og byggingarmál sviðsins.
4. Breiðbrautarreitur - deiliskipulag (2025020232)
Stúdíó Jæja leggur fram uppfærð gögn í samræmi við athugasemdir sem bárust á auglýsingatíma. Athugasemdirnar snúast um íbúðastærðir, ásamt því að íbúðum hefur verið fækkað úr 215 íbúðum í 202 íbúðir. Einnig var gerð athugasemd við fjölda bílastæða á skipulagsreit, gert var ráð fyrir 1-1,5 bílastæði á íbúð, en hefur verið hækkað í 1,52 á hverja íbúð.
Skipulagsráð samþykkir að senda deiliskipulagið til athugunar hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
5. Suðurbrautarreitur Ásbrú – deiliskipulag (2023030660)
A2F arkitektar leggja fram uppfærð gögn eftir athugasemdir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Athugasemdirnar snúa að Ljósvist og byggingarmassa, þar sem HMS vísar í breytingar á byggingarreglugerð sem tóku gildi 1. maí 2026, ofanvatnslausnum, kennileiti, skýringaruppdráttum og aðalskipulagsuppdráttum. Um er að ræða misræmi í árafjölda varðandi ofanvatnslausnir, þá telur HMS að gögnin sýni ekki nægilega skýrt hvað átt er við með kennileiti í greinargerð með deiliskipulagi, þá er óskað eftir því að uppdráttur úr rammahluta aðalskipulags sé birtur með deiliskipulaginu og að lokum er óskað eftir að gildandi þéttbýlisuppdráttur aðalskipulags sé birtur í stað sveitarfélagsuppdráttar.
Taka skal tillit til athugasemda Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar. Afgreiðslu erindis er frestað.
6. Njarðarvellir 2 - Krossmói 10 (2026080156)
Verkfræðistofa Suðurnesja leggur fram breytingu á lóðarblaði f.h. Reykjanesbæjar. Breytingin felur í sér að lóðinni er skipt upp í Njarðarvelli 2 og Krossmóa 10. Markmiðið með breytingunni er að skipta upp lóðinni vegna sölu á Njarðarvöllum 2.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við fyrirhugaðar breytingar.
7. Hringbraut – skilti (2026090288)
Knattspyrnudeild Keflavíkur óskar eftir heimild til þess að taka niður flettiskilti við knattspyrnuvöllinn við Sunnubraut í Keflavík sem snúa út að Hringbraut og setja þess í stað upp ný LED ljósaskilti.
Afgreiðslu erindis er frestað. Starfsfólki umhverfis- og framkvæmdasviðs er falið að afla frekari gagna.
8. Erindisbréf (2026060120)
Erindisbréf ásamt minnisblaði lagt fram.
Skipulagsráð staðfestir fyrirliggjandi drög með áorðnum breytingum og vísar því til forsetanefndar. Jafnframt er óskað eftir að forsetanefnd taki athugasemdir í meðfylgjandi minnisblaði til skoðunar.
9. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa (2026010307)
Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 409 lögð fram.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:10.