Dagskrá fundar
1. Reykjanesbraut, Hafnavegur-Garðskagavegur - umhverfismatsskýrsla (2024110164)
Skipulagsráð fagnar því að undirbúningur að tvöföldun Reykjanesbrautar milli Hafnavegar og Garðskagavegar sé kominn á þetta stig. Framkvæmdin er eitt mikilvægasta samgönguverkefni Suðurnesja með tilliti til umferðaröryggis, byggðaþróunar, atvinnustarfsemi og tenginga sveitarfélagsins við Keflavíkurflugvöll og höfuðborgarsvæðið.
Skipulagsráð leggur áherslu á að við val á útfærslu Reykjanesbrautar verði ekki eingöngu horft til greiðfærni og afkastagetu brautarinnar sjálfrar. Áhrif einstakra lausna á umferðarkerfi Reykjanesbæjar í heild skulu vera grundvallarþáttur við mat og ákvarðanatöku. Þar þarf meðal annars að líta til áhrifa á leiðaval, umferðarálag innan bæjarins, tengingar byggðar og atvinnusvæða, almenningssamgöngur, neyðarþjónustu, umferðaröryggi og framtíðaruppbyggingu.
Skipulagsráð leggur jafnframt til grundvallar að framkvæmdin skerði ekki núverandi megintengingar Reykjanesbrautar við gatnakerfi sveitarfélagsins. Við áframhaldandi hönnun verði því gengið út frá því að virkar tengingar við Grænásbraut, Fitjar, Þjóðbraut og Aðalgötu/Aðaltorg verði varðveittar. Skipulagsráð leggst sérstaklega gegn því að tenging Þjóðbrautar verði takmörkuð við hægri inn og hægri út.
Skipulagsráð telur að mislæg gatnamót við Grænásbraut eigi að vera meðal fyrstu framkvæmda verkefnisins. Grænásbraut er mikilvæg tenging Reykjanesbrautar við Ásbrú, atvinnusvæði og byggð í Keflavík og Njarðvík og mikilvægi hennar mun aukast samhliða áframhaldandi uppbyggingu.
Skipulagsráð leggur jafnframt áherslu á að áframhaldandi nýting núverandi hringtorga við Fitjar, Þjóðbraut og Aðalgötu/Aðaltorg verði metin sem raunhæfur kostur við áfangaskiptingu framkvæmdarinnar. Við mat á þeim kosti verði horft heildstætt til umferðaröryggis, afkastagetu, áhrifa á umferð innan Reykjanesbæjar, hljóðvistar, framkvæmdakostnaðar og þess hvenær ávinningur einstakra áfanga kemur fram.
Skipulagsráð óskar eftir áframhaldandi samráði um ákvörðun staðsetningar hliðarvega og leggur mikla áherslu á að tryggð verði örugg hjáleið á framkvæmdatíma með hliðarvegi við Reykjanesbraut, sem nýtist í framtíðinni sem umferðarmannvirki.
Áður en endanleg ákvörðun verður tekin um áfangaskiptingu og útfærslu gatnamóta verði lagður fram samanburður á raunhæfum valkostum og áhrifum þeirra á samgöngukerfi Reykjanesbæjar í heild. Formlegt samráð verði haft við Reykjanesbæ áður en slíkar ákvarðanir eru teknar.
Skipulagsráð ítrekar jafnframt að skýr kostnaðarskipting þurfi að liggja fyrir vegna tengivega, hliðarvega, stíga, veitufærslna, hljóðvarna og annarra mannvirkja sem framkvæmdin kallar á.
Skipulagsráð fagnar og lýsir ánægju með útkomna umhverfismatsskýrslu og telur ekkert í henni sem gefur tilefni til tafa á framkvæmdum og skorar jafnframt á stjórnvöld að flýta þessari nauðsynlegu samgöngubót.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:50.