Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

399. fundur skipulagsráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 23. október 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Gunnar Felix Rúnarsson formaður nefndar, Halldór Rósmundur Guðjónsson varamaður, Jón Már Sverrisson aðalmaður, Róbert Jóhann Guðmundsson aðalmaður, Sigurður Jón Sigmundsson varamaður

Að auki sátu fundinn Gunnar Kristinn Ottósson skipulagsfulltrúi, Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur og Stefanía Gunnarsdóttir ritari.

Hjörtur Magnús Guðbjartsson boðaði forföll og sat Halldór Rósmundur Guðjónsson fundinn í hans stað.

Aðalgeir Jónsson boðaði forföll og sat Sigurður Jón Sigmundsson fundinn í hans stað.

Dagskrá fundar

1. Keflavíkurborgir - deiliskipulag (2026080116)

Frumdrög deiliskipulagstillögu Arkís lögð fram til kynningar og umræðu.

2. Brimdalur 5 - stækkun lóðar (2026090108)

Sævar Sævarsson óskar eftir lóðarstækkun um 4 m inn á bæjarland með erindi dags. 7. september 2026.

Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Breytingin verði sveitarfélaginu að kostnaðarlausu.

3. Suðurbrautarreitur - uppfærð gögn (2023030660)

A2F arkitektar leggja fram uppfærð gögn eftir athugasemdir Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar.

Skipulagsráð samþykkir að senda deiliskipulagið til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til endanlegrar afgreiðslu.

4. AT12 Fitjar - óveruleg breyting á aðalskipulagi (2026030326)

Mörkum AT12 sunnan Fitja er breytt, en stærð og byggingarheimildir haldast óbreyttar. Breytingin hefur áhrif á VÞ5 sem minnkar um 2,3 hektara og OP26 minnkar um 2,3 hektara. Meginbreyting er vatnslögn og tveir háspennustrengir í jörðu lagðir frá I3 Aðveitustöð og I4 Tengivirki að AT12 til að bæta afhendingaröryggi raforku til gagnavera á svæði AT12.

Skipulagsráð samþykkir breytinguna á aðalskipulagi sem óverulega breytingu skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga, en breytingin hefur ekki áhrif á hagaðila á svæðinu eða á hagsmuni utan svæðisins. Breytingin er unnin í samráði við veituaðila.

5. M2 miðbær (2019060056)

Kynningu á tillögu að breytingu aðalskipulags fyrir reitinn M2 miðbær er lokið, engar athugasemdir bárust.

Skipulagsráð samþykkir að senda tillögu að breytingu á aðalskipulagi til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til staðfestingar.

6. Hringtorg við Njarðvíkurhöfn (2025110452)

Tillaga að fyrirkomulagi hringtorga við Grænás og Fitjabrautar.

Lagt fram til kynningar sem hluti deiliskipulagsvinnu.

7. Go-kart braut (2026100227)

Reykjanes Speedway óskar eftir 1 hektara svæði á reit ÍÞ3 motorpark svæðinu til þess að koma fyrir Go-kart braut og annarri aðstöðu.

Vegna annarra skuldbindinga fyrir svæðið hentar ekki að úthluta á reit innan þess. En sé áhugi umsækjanda fyrir hendi má kanna aðra staðsetningu innan sveitarfélagsins fyrir starfsemina.

8. Háholt 21 - lóðarstækkun (2026100165)

Jón Már Sverrisson vék af fundi undir þessu máli vegna vanhæfis. Varamaður var ekki kallaður til.

Gunnar Jóhannsson óskar eftir lóðarstækkun fyrir lóðina við Háholt 21 með erindi dags 12. október 2026.

Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2. Breytingin verði sveitarfélaginu að kostnaðarlausu.

9. Ný skólphreinsistöð í Reykjanesbæ – umhverfismat (2026010494)

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun óskar umsagnar um umhverfismatsskýrslu fyrir nýja skólphreinsistöð í Reykjanesbæ, sjá mál nr.1098/2026 í Skipulagsgátt.

Nægjanlega er gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum, mótvægisaðgerðum og vöktun eftir því sem við á. 

Ekki er tekin afstaða til þess hvort framkvæmdin fari í umhverfismat að teknu tilliti til viðmiða í 2. viðauka laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Framkvæmdin er brýn og er ætluð til að draga úr mengun sjávar við byggð og uppfylla ákvæði laga þar um.

10. Aðalskipulag Keflavíkurflugvallar - umsögn (2026010494)

Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar óskar umsagnar vegna tillögu að endurskoðun aðalskipulags Keflavíkurflugvallar, sjá mál nr. 567/2023 í Skipulagsgátt.

Reykjanesbær gerir ekki athugasemd við tillögu að endurskoðun aðalskipulags Keflavíkurflugvallar. Óskað verður eftir samtali við skipulagsyfirvöld Keflavíkurflugvallar um þau sjónarmið sem koma fram í bókun minnihluta.

Minnihluti skipulagsráðs lagði fram eftirfarandi bókun:

"Við teljum rétt að hljóðvist og samfélagsleg áhrif flughávaða á íbúa og byggð verði sérstaklega tilgreind sem einn af helstu áhersluþáttum Aðalskipulags Keflavíkurflugvallar 2023–2040, sbr. upptalningu á bls. 2 í greinargerð.

Við áframhaldandi vinnu verði lagt mat á þróun hljóðálags samhliða aukinni flugumferð og skoðað sérstaklega hvernig flugleiðir, notkun flugbrauta, gerð flugvéla og tímasetning flugs geti dregið úr flughávaða yfir byggð.

Sérstaklega verði fjallað um næturhávaða og áhrif hans á næturhvíld, heilsu og lífsgæði íbúa. Í skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO), Environmental Noise Guidelines for the European Region, er eindregið mælt með því að meðalhávaði frá flugumferð sé undir 45 dB Lden og næturhávaði undir 40 dB Lnight. Þar kemur jafnframt fram að flughávaði að nóttu yfir 40 dB Lnight tengist skaðlegum áhrifum á svefn.

Við þessa vinnu verði einnig höfð hliðsjón af reglugerð (ESB) nr. 598/2014 um hávaðatengdar rekstrartakmarkanir á flugvöllum  og reynslu erlendra alþjóðaflugvalla. Á Frankfurtflugvelli gildir almennt bann við áætlunarflugi frá kl. 23:00 til 05:00, auk sérstakra takmarkana á öðrum tímum nætur. Í Kaupmannahöfn gilda sérstakar næturreglur frá kl. 23:00 til 06:00, m.a. um hávaða og notkun flugbrauta með það að markmiði að draga úr áhrifum á nærliggjandi byggð.

Skoðað verði hvort sambærileg úrræði geti átt við Keflavíkurflugvöll, svo sem stýring flugleiða og flugbrautanotkunar, sérstök viðmið fyrir dag og nótt, takmörkun á fjölda flugtaka og lendinga að nóttu, tímabil til að tryggja samfellda næturhvíld og eftir atvikum takmörkun eða bann við áætlunarflugi hluta nætur.

Við teljum mikilvægt að þessi atriði verði metin með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum og áhrifum núverandi starfsemi og framtíðarþróunar Keflavíkurflugvallar á íbúa Reykjanesbæjar."

Róbert Jóhann Guðmundsson (B) og Halldór Rósmundur Guðjónsson (S).

11. Stakksbraut 4 - umsókn um lóð (2026100268)

Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins sækir um lóðina Stakksbraut 4 með erindi dags. 13. október 2026. Á lóðinni er samkvæmt deiliskipulagi gert ráð fyrir olíubirgðastöð með tveimur 15.000 m3 geymum fyrir skipagasolíu, aðstöðuhúsi og tilheyrandi mannvirkjum.

Skipulagsráð samþykkir lóðarumsóknina.

12. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs (2022110379)

Fundargerðir 27. og 28. fundar samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 21. september og 15. október 2026 lagðar fram.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:00.