Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

4. fundur leikskólaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 27. október 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Ásdís Ólafsdóttir formaður nefndar, Harpa Björg Sævarsdóttir aðalmaður, Hildur Björnsdóttir aðalmaður, Logi Þór Ágústsson aðalmaður, Sighvatur Jónsson aðalmaður

Að auki sátu fundinn Brynja Aðalbergsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Linda Hlín Heiðarsdóttir fulltrúi leikskólakennara, Maciej Baginski fulltrúi foreldra leikskólabarna, Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs, Bergljót Sif Stefánsdóttir leikskólafulltrúi og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Fjárhagsáætlun menntasviðs 2027

Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs fór yfir stöðu fjárhagsáætlunarvinnu sviðsins, stöðumat og næstu skref.

2. Leikskólar - framkvæmdir 2027

Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu sat fundinn undir þessum dagskrárlið og fór yfir áætlun um framkvæmdir í leikskólum Reykjanesbæjar á árinu 2027.

3. Erindisbréf leikskólaráðs

Uppfærð drög að erindisbréfi lögð fram.

Leikskólaráð samþykkir drögin með fyrirvara um athugasemdir sem fram komu á fundinum. Leikskólafulltrúa er falið að uppfæra erindisbréfið í samræmi við framkomnar athugasemdir og koma þeim til forsetanefndar. 

4. Sumarlokun leikskóla í Reykjanesbæ - niðurstöður könnunar

Ásdís Ólafsdóttir formaður leikskólaráðs kynnti niðurstöður könnunar sem gerð var meðal forráðamanna og starfsfólks varðandi sumarleyfislokun í leikskólum Reykjanesbæjar.

Niðurstöður könnunarinnar sýna almenna ánægju með núverandi fyrirkomulag sumarleyfa, þó með ólíkum áherslum meðal forráðamanna og starfsfólks. Stuðningur starfsfólks er mjög sterkur en meðal forráðamanna eru sjónarmið fjölbreyttari og þar koma meðal annars fram óskir um aukinn sveigjanleika.

Könnunin er eitt skref í gagnaöflun um upplifun og þarfir þeirra sem nýta og starfa í leikskólum sveitarfélagsins. Leikskólaráð telur mikilvægt að byggja umfjöllun og ákvarðanir á upplýsingum og sjónarmiðum bæði forráðamanna og starfsfólks. Niðurstöður könnunar sem þessarar verða nýttar sem innlegg í áframhaldandi umfjöllun og þróun leikskólastarfs í Reykjanesbæ.

5. Námsstefna leikskóla Reykjanesbæjar - sameiginlegur skipulagsdagur 22. janúar 2027

Bergljót Sif Stefánsdóttir leikskólafulltrúi kynnti sameiginlegan skipulagsdag leikskóla Reykjanesbæjar sem verður haldinn í Hljómahöll föstudaginn 22. janúar 2027. Af því tilefni verður efnt til námstefnu undir yfirskriftinni „Leikur sá er mér kær“, þar sem sjónum verður beint að leiknum og mikilvægu hlutverki hans í lífi, námi og þroska barna.

6. Uppbygging og úrbætur í leikskólum - stöðumat og forgangsröðun

Ásdís Ólafsdóttir formaður leikskólaráðs kynnti tillögu spretthóps leikskólaráðs um 30 stunda gjaldfrjálsa leikskóladvöl í leikskólum Reykjanesbæjar.

Leikskólaráð fagnar tillögum spretthóps um umbætur í leikskólamálum Reykjanesbæjar og þakkar fulltrúum hópsins fyrir mikla og góða vinnu undanfarnar vikur.

Ráðið telur tillögurnar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun leikskólaþjónustunnar með hagsmuni barna, foreldra og starfsfólks að leiðarljósi.

Sérstaklega ber að fagna tillögu um að allt að 30 klukkustunda leikskóladvöl á viku verði gjaldfrjáls fyrir öll börn í leikskólum Reykjanesbæjar. Markmiðið er að létta á útgjöldum fjölskyldna og tryggja að fjárhagur standi ekki í vegi fyrir því að börn geti sótt leikskóla. Í Reykjanesbæ er töluverður hópur barna sem ekki nýtir leikskólaþjónustu og mikilvægt er að greiða leið þeirra inn í leikskólastarf. Þar fá börn tækifæri til að taka þátt í samfélagi með jafnöldrum, efla félagsfærni og styrkja íslenskukunnáttu sína. Foreldrar munu áfram geta valið lengri dvalartíma gegn gjaldi.

Spretthópurinn leggur einnig til aukinn sveigjanleika í dvalartíma barna innan ákveðins ramma. Hugmyndin er að fyrirkomulagið taki bæði mið af þörfum fjölskyldna og því svigrúmi sem leikskólarnir hafa til að skipuleggja starf sitt. Lagt er til að breytingarnar verði innleiddar sem tilraunaverkefni og áhrif þeirra metin reglulega, m.a. með tilliti til mönnunar, starfsánægju, veikindafjarvista, líðanar barna og fjárhagslegra áhrifa.

Tillögurnar miða einnig að því að bæta starfsumhverfi í leikskólunum, draga úr álagi og skapa meira svigrúm fyrir faglegt starf, undirbúning og samstarf. Stöðugri mönnun og betra starfsumhverfi skiptir miklu máli til að halda í gott starfsfólk, laða að fleiri fagmenntaða leikskólakennara og skapa forsendur til að lækka inntökualdur barna.

Leikskólaráð vísar tillögu spretthóps um 30 stunda gjaldfrjálsa leikskóladvöl í leikskólum Reykjanesbæjar til afgreiðslu bæjarráðs.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:03.