Dagskrá fundar
1. Stuðningur við skólasókn
Einar Trausti Einarsson yfirsálfræðingur sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Hann kynnti nýtt verklag um stuðning við skólasókn í grunnskólum Reykjanesbæjar og helstu áherslur þess, en starfshópur á vegum menntasviðs hefur undanfarna mánuði unnið að þróun verklagsins. Markmið vinnunnar er að styrkja viðbrögð skóla þegar barn þarf stuðning við skólasókn, með aukinni áherslu á snemmtæk viðbrögð, skýra verkferla og stigvaxandi stuðning sem tekur mið af þörfum hvers og eins.
Menntaráð fagnar nýju verklagi um stuðning við skólasókn og þeirri faglegu nálgun sem þar birtist. Sérstaklega er mikilvægt að brugðist sé snemma við merkjum um stuðningsþörf, að unnið sé með þær hindranir sem geta staðið í vegi fyrir skólasókn og að sjónarmið barnsins séu ávallt hluti af mati og ákvörðunum um stuðning.
Ráðið leggur áherslu á að innleiðing verklagsins verði samræmd í öllum grunnskólum sveitarfélagsins og að starfsfólk fái nauðsynlegan stuðning og fræðslu til að nýta það í framkvæmd.
Menntaráð óskar eftir stöðumati á innleiðingunni fyrir lok skólaársins 2026–2027. Þar verði meðal annars gerð grein fyrir framvindu innleiðingar, reynslu skóla, þróun skólasóknar og hvort þörf sé á frekari úrræðum eða breytingum á verklaginu. Upplýsingar verði settar fram með þeim hætti að ekki sé unnt að rekja þær til einstakra barna.
2. Stafrænt námsumhverfi í grunnskólum
Andri Örn Víðisson deildarstjóri upplýsingatæknideildar sat fundinn undir þessum dagskrárlið og gerði grein fyrir stöðu tæknimála í grunnskólum Reykjanesbæjar og tillögu að næstu skrefum. Lagt er til að hafin verði vinna við stefnu um starfrænt námsumhverfi grunnskóla Reykjanesbæjar.
Menntaráð telur brýnt að mótuð verði heildstæð stefna um stafrænt námsumhverfi grunnskóla Reykjanesbæjar. Núverandi fjölbreytni í tækjum, kerfum, skjalavistun og tækjastjórnun hefur áhrif á öryggi, rekstrarhæfni, kostnað og möguleika skóla til að nýta tæknina markvisst í námi og kennslu.
Ráðið samþykkir að hafin verði vinna við stefnuna í samstarfi menntasviðs, upplýsingatæknideildar, skólastjórnenda, kennara og annarra viðeigandi hagaðila. Kennslufræðilegar þarfir nemenda og starfsfólks skulu vera leiðarljós vinnunnar, samhliða kröfum um persónuvernd, upplýsingaöryggi, aðgengi og hagkvæman rekstur.
Samhliða stefnumótuninni verði unnin heildstæð skrá yfir tækjabúnað grunnskólanna, aldur hans, ástand, stjórnun og áætlaða endurnýjunarþörf. Einnig verði lagt mat á kostnað við mismunandi framtíðarsviðsmyndir, faglegan stuðning við starfsfólk og tækifæri til samræmdra innkaupa.
Menntaráð óskar eftir að fyrstu niðurstöður, þar á meðal mat á brýnni fjárfestingarþörf fyrir árið 2027, verði kynntar ráðinu áður en fjárhagsáætlun ársins 2027 verður endanlega afgreidd. Drög að heildarstefnu verði lögð fyrir ráðið eigi síðar en vorið 2027.
3. Símafriður
Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi fór yfir nýja reglugerð um notkun síma og snjalltækja á skólatíma í grunnskólum og á frístundaheimilum, en hún var kynnt í byrjun september. Markmiðið er að samræma reglur um notkun tækjanna og efla námsfrið, vellíðan og félagsleg tengsl nemenda. Samkvæmt reglugerðinni eiga símar og önnur snjalltæki ekki að vera aðgengileg nemendum á skólatíma.
Menntaráð telur innleiðingu símafriðar mikilvægt skref í þágu námsfriðar, vellíðunar og félagslegra samskipta nemenda.
Ráðið leggur áherslu á að innleiðingin sé unnin í góðu samstarfi við nemendur, foreldra og starfsfólk og í samræmi við menntastefnu sveitarfélagsins. Ráðið telur einnig mikilvægt að undanþágur vegna heilsufars, fötlunar, sérþarfa, námsþarfa og annarra málefnalegra ástæðna séu skýrar og aðgengilegar.
Menntaráð óskar eftir að reynsla af innleiðingunni verði metin í lok skólaársins 2026–2027. Við matið verði meðal annars leitað sjónarmiða nemenda, foreldra og starfsfólks og skoðað hvaða áhrif fyrirkomulagið hefur haft á námsfrið, samskipti, líðan og framkvæmd skólastarfs.
4. Fjárhagsáætlun menntasviðs 2027
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi gerðu grein fyrir stöðu fjárhagsáætlunarvinnu sviðsins, núllgrunnsáætlunar og úthlutunarlíkans vegna stöðugilda.
Menntaráð hrósar skólastjórnendum og skrifstofu menntasviðs fyrir góðan framgang og vönduð vinnubrögð við núllgrunnsáætlun.
Díana Hilmarsdóttir (B) lagði fram eftirfarandi tillögu:
„Tillaga um gjaldfrjáls frístundaheimili fyrir börn í 1. bekk.
Fulltrúi Framsóknar leggur til að frístundaheimili Reykjanesbæjar verði gjaldfrjáls fyrir börn í 1. bekk grunnskóla.
Markmið tillögunnar er að tryggja jafnt aðgengi barna að frístundaheimilum óháð fjárhagsstöðu fjölskyldna, efla félagslega þátttöku og stuðla að aukinni þátttöku barna í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
Lagt er til að sviðsstjóra menntasviðs verði falið að kostnaðarmeta tillöguna miðað við núverandi forsendur og leggja mat á áhrif hennar á þátttöku, mönnun og aðstöðu. Niðurstöður verði lagðar fyrir menntaráð á næsta fundi ráðsins til frekari afgreiðslu í tengslum við fjárhagsáætlun.“
Menntaráð felur sviðsstjóra að vinna kostnaðarmat um gjaldfrjálst frístundaheimili fyrir börn í 1. bekk grunnskóla Reykjanesbæjar samkvæmt tillögunni og leggja fram á næsta fundi ráðsins.
5. Niðurstöður PISA 2025
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi fóru yfir greiningu mennta- og barnamálaráðuneytisins á niðurstöðum PISA 2025 fyrir sjö fjölmennustu sveitarfélög landsins.
Menntaráð lýsir þungum áhyggjum af niðurstöðum PISA 2025, sem sýna að nemendur í Reykjanesbæ eru undir landsmeðaltali í lesskilningi, stærðfræðilæsi og vísindum. Jafnframt er hlutfall nemenda sem nær grunnhæfni undir landsmeðaltali á öllum þremur sviðum.
Niðurstöðurnar þarf að skoða í samhengi við fjölbreytta samsetningu nemendahópsins og félags- og efnahagslega stöðu í sveitarfélaginu. Sú staðreynd að munurinn við landsmeðaltal minnkar þegar tekið hefur verið tillit til þessara þátta er mikilvæg. Eftir stendur þó að árangur nemenda í Reykjanesbæ er undir landsmeðaltali á öllum mældum sviðum, einkum er varðar lesskilning og kallar það á skýr, markviss og sameiginleg viðbrögð.
PISA er einn mælikvarði á skólastarf og niðurstöðurnar verða ekki túlkaðar einar og sér. Þær þarf að greina samhliða öðrum gögnum um námsárangur og framfarir nemenda, skólasókn, líðan, íslenskukunnáttu, stuðningsþarfir og starfsaðstæður í skólunum.
Menntaráð felur starfshópi um mælaborð grunnskólastarfs að taka mið af niðurstöðum PISA 2025 við áframhaldandi þróun mælaborðsins. Þar verði skilgreindir mælikvarðar sem gera ráðinu og skólunum kleift að fylgjast reglulega með þróun lesskilnings ásamt öðrum lykilþáttum skólastarfs. Áhersla verði lögð á mælikvarða sem sýna framfarir nemenda yfir tíma og gera kleift að bregðast fyrr við þegar niðurstöður gefa tilefni til.
Jafnframt felur ráðið menntasviði að óska eftir frekari tölulegum upplýsingum frá mennta- og barnamálaráðuneytinu til að hægt sé að vinna nánari greiningu á stöðunni í samráði við skólastjórnendur og fagfólk skólanna. Á grundvelli hennar verði mótuð tímasett umbótaáætlun með skýrum markmiðum, ábyrgð og mælikvörðum.
Greiningin, tillaga að næstu skrefum og útfærsla viðeigandi mælikvarða í mælaborðinu verði lögð fyrir menntaráð eigi síðar en í febrúar 2027. Ráðið leggur áherslu á að vinnan snúist ekki um að leita sökudólga heldur að skapa skýran grundvöll fyrir markvissar umbætur og tryggja öllum nemendum í Reykjanesbæ raunveruleg tækifæri til að ná árangri.
Með því að smella hér má skoða frétt um niðurstöður PISA 2025 á vef Stjórnarráðsins
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:55.