Beint í efni

400. fundur skipulagsráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 6. nóvember 2026 kl. 08.15.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Aðalgeir Jónsson aðalmaður, Gunnar Felix Rúnarsson formaður nefndar, Halldór Rósmundur Guðjónsson varamaður, Jón Már Sverrisson aðalmaður, Róbert Jóhann Guðmundsson aðalmaður

Að auki sátu fundinn Guðlaugur H. Sigurjónsson sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir lögfræðingur, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Hjörtur Magnús Guðbjartsson boðaði forföll og sat Halldór Rósmundur Guðjónsson fundinn í hans stað.

Guðlaugur H. Sigurjónsson vék af fundi kl. 08:30.

Dagskrá fundar

1. Vogshóll - Sjónarhóll - frumdrög að breytingu deiliskipulags

Kanon arkitektar leggja fram drög að breytingu á deiliskipulagi fyrir hönd atNorth. Lóðirnar Sjónarhóll 2a, b og c eru sameinaðar í stærri lóð. Nýtingarhlutfall lækkað og óskað eftir að hámarkshæð byggingar á lóð hækki úr 10 m. í 17-18 m.

Afgreiðslu frestað.

2. Ásahverfi - breyting á deiliskipulagi

JeES arkitektar leggja fram drög að breytingu á deiliskipulagi fyrir hönd Reykjanesbæjar. Óskað er heimildar til að kynna drögin fyrir íbúum áður en lögformlegt kynningarferli hefst. Jafnframt er óskað eftir að lokað verði fyrir úthlutun lóða í hverfinu á meðan tekin er afstaða til deiliskipulagsbreytinga.

Skipulagsráð samþykkir heimild til að hefja forkynningu og stöðva úthlutun lóða tímabundið.

3. Bergvík - nýtt deiliskipulag

Suðurnesjabær óskar umsagnar um tillögu að deiliskipulagi Bergvíkur.

Skipulagsráð ítrekar fyrri umsögn Reykjanesbæjar dags. 2. júní 2026 um vinnslutillögu: 

Reykjanesbær leggur áherslu á iðnað sem samræmist íbúðabyggð í Reykjanesbæ. Uppbygging iðnaðar skal uppfylla skilyrði um bestu aðgengilegu tækni (BAT) og lög um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998. Mikilvægt er að íbúum í nágrenni iðnaðarsvæðis verði tryggð heilnæm lífsskilyrði og njóti heilnæms og ómengaðs umhverfis, í samræmi við markmið laganna. Ráðið gerir alvarlegar athugasemdir við áætlaðan reykháf sem skv. gögnum gæti trónað í 150 m. hæð yfir sjó og þar með myndað helsta kennileitið á Reykjanesi. Einnig óskar ráðið eftir samtali milli Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar um fráveitumál svæðisins ásamt vegtengingum á milli sveitarfélaganna.

4. Heiðarbraut 13 - viðbygging

Bergþór Bjarkarsson óskar eftir heimild til að reisa um 31 m2 viðbyggingu sbr. uppdrátt Mannvirkja og malbiks dags 20. ágúst 2026. 

Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.

5. Hæðargata 7 - viðbygging

Grétar Gíslason óskar eftir heimild til að reisa um 28 m2 viðbyggingu sbr. uppdrátt Riss verkfræðistofu dags 23. júní 2026.

Skipulagsráð samþykkir erindið með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.

6. Faxagrund 20 - stækkun á lóð

Sjens ehf. óskar eftir lóðarstækkun vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á svæðinu sbr. drög að lóðarblaði frá Verkfræðistofu Suðurnesja dags 30. október 2026.

Uppfæra þarf gögn. Afgreiðslu frestað.

7. Flugvellir - þróunarsvæði

Reykjanes Investment ehf. óskar eftir þróunarsamningi um spildu á Flugvöllum sem samkvæmt gildandi deiliskipulagi er ætlað fyrir geymslu á stærri ökutækjum. Á spildunni kæmi verslunar- og þjónustubygging.

Skipulagsráð hafnar erindinu.

8. Valhallarbraut 868 - framkvæmdaleyfi

Verne Global ehf. endurnýjar umsókn um framkvæmdaleyfi til að fara í jarðvinnu við nýtt gagnaver á 24.000 m2 lóðinni Valhallarbraut 868. Framkvæmdaleyfi með gildistíma til 26. október var samþykkt á 391. fundi skipulagsráðs, óskað er eftir framlengingu á gildistíma til loka febrúar 2027.

Skipulagsráð samþykkir erindið skv. 13. gr. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

9. Sólbrekka – beiðni um þróunarsamning

Lagt fram erindi frá Sólbrekku ehf. um þróunarsamning til 24 mánaða um landsvæði við og í kringum Seltjörn. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar í umhverfis- og framkvæmdaráði, íþrótta-, tómstunda- og menningarráði og skipulagsráði.

Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við fyrirhugaða landnýtingu en vísar til samkomulags við Jarðvang um sama svæði. Mikilvægt er að uppbygging taki tillit til núverandi starfsemi á svæðinu og aðgengis almennings.

10. Fundargerð umhverfis- og framkvæmdaráðs 16. október 2026

Fundargerð 5. fundar umhverfis- og framkvæmdaráðs lögð fram til kynningar.

11. Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 21. maí 2026

Fundargerð 58. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja lagðar fram til kynningar.

12. Völuás 9 - lóðarumsókn

Ævar Valgeirsson sækir um lóðina Völuás 9 með skilyrðum um lægri gatnagerðargjöld og breytingu á deiliskipulagi svo húsið verði á einni hæð.

Skipulagsráð hafnar erindinu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:40.