Dagskrá fundar
1. Tónlistarskóli Reykjanesbæjar
Haraldur Árni Haraldsson, skólastjóri Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Hann gerði grein fyrir helstu atriðum í starfsemi skólans og fór yfir upplýsingar um starfsárið 2026-2027. Nemendur skólans eru nú alls 997. Fjöldi starfsfólks er 52 í 38 stöðugildum.
Listnám er mikilvægur hluti af heildstæðri menntun barna og ungmenna. Það eflir sköpun, sjálfstjáningu, aga og félagsfærni og hefur jafnframt mikið gildi fyrir menningar- og samfélagslíf Reykjanesbæjar. Menntaráð leggur áherslu á að standa vörð um öflugt tónlistarnám og stuðla að góðum tengslum tónlistarskólans við grunnskóla og aðrar menningarstofnanir bæjarins.
Ráðið fagnar nýsköpun innan tónlistarskólans sem sést meðal annars á viljayfirlýsingu um samstarf á milli tónlistarskólans, Norðuróps og Þjóðaróperunnar og Erasmus+ verkefninu sem tónlistarskólinn tekur þátt í.
Menntaráð tekur jafnframt alvarlega þær áskoranir sem fram komu varðandi menntun tónlistarkennara og óskar eftir greinargerð frá skólastjóra tónlistarskólans um málið.
2. Starfsáætlanir grunnskóla Reykjanesbæjar 2026-2027
Starfsáætlanir grunnskóla Reykjanesbæjar fyrir skólaárið 2026-2027 lagðar fram.
Menntaráð hefur tekið starfsáætlanir grunnskóla Reykjanesbæjar fyrir skólaárið 2026–2027 til umfjöllunar.
Að fenginni staðfestingu menntasviðs á að starfsáætlanirnar hafi hlotið lögbundna umfjöllun skólaráða og verið yfirfarnar með tilliti til grunnskólalaga, reglugerða, aðalnámskrár, kjarasamninga og ákvarðana sveitarfélagsins, staðfestir menntaráð starfsáætlanirnar.
Menntaráð leggur áherslu á að markmið starfsáætlananna séu eftir því sem við á skýr, mælanleg og tengd við innra mat skólanna og fyrirhugað mælaborð grunnskólastarfs. Ráðið hvetur til meiri samræmingar á skipuritum skólanna.
Starfsáætlanir verða aðgengilegar á heimasíðum skólanna.
3. Mælaborð menntasviðs - 9 mánaða uppgjör
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs kynnti mælaborð sviðsins fyrir janúar til september 2026.
Menntaráð þakkar sviðsstjóra fyrir greinargóða kynningu á mælaborði menntasviðs fyrir þriðja ársfjórðung 2026. Ráðið fagnar sterkum niðurstöðum í starfsánægju og meðmælastuðli starfsfólks, enda er stöðugleiki og vellíðan starfsfólks mikilvæg forsenda gæða í skólastarfi.
Ráðið leggur jafnframt áherslu á að fylgst verði náið með þróun launakostnaðar, veikindahlutfalls og kostnaðar vegna langtímaveikinda og að ráðið fái reglulega upplýsingar um skýringar frávika og fyrirhuguð viðbrögð.
Ráðið leggur áherslu á að fjárhagsáætlun næsta árs sýni raunverulega stöðu og til þess að það sé mögulegt telur ráðið nauðsynlegt að áætlað verði fyrir langtímaveikindum.
Menntaráð óskar eftir að áframhaldandi þróun mælaborðsins feli einnig í sér skýra mælikvarða á árangur og gæði skólastarfs, meðal annars varðandi skólasókn, læsi, líðan nemenda, námsframvindu og aðgengi að stuðningi. Þannig geti mælaborðið nýst ráðinu markvisst við stefnumótun, forgangsröðun og eftirfylgni.
4. Fjárhagsáætlun menntasviðs 2027
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs og Haraldur Axel Einarsson grunnskólafulltrúi fóru yfir helstu lykiltölur í drögum að fjárhagsáætlun menntasviðs fyrir árið 2027.
Menntaráð þakkar framlagða kynningu á drögum að fjárheimildum menntasviðs fyrir árið 2027. Mikilvægt er að fjárheimildir taki mið af fjölda barna, stuðningsþörf þeirra og nauðsynlegri mönnun svo tryggja megi gæði og samfellu í þjónustu.
5. Tillaga um gjaldfrjálsa frístund fyrir 1. bekk - kostnaðarmat
Helgi Arnarson sviðsstjóri menntasviðs lagði fram kostnaðarmat vegna tillögu sem lögð var fram á fundi menntaráðs 9. október 2026 um gjaldfrjálst frístundaheimili fyrir börn í 1. bekk grunnskóla Reykjanesbæjar.
Menntaráð þakkar fyrir framlagt minnisblað og þá umræðu sem tillagan hefur skapað. Ráðið tekur undir mikilvægi þess að fjárhagsleg staða fjölskyldna komi ekki í veg fyrir að börn geti tekið þátt í frístundastarfi.
Ráðið telur mikilvægt að til staðar séu úrræði til að bregðast við og styðja þær fjölskyldur sem hafa ekki ráð á að nýta þjónustuna en fyrir liggur að um 90% barna í 1. bekk nýta nú þegar frístundaþjónustu auk þess sem yfir stendur vinna við yfirfærslu þjónustunnar frá grunnskólunum til frístundamiðstöðvar. Fyrirliggjandi kostnaðarmat gerir ráð fyrir að árleg áhrif á fjárhag sveitarfélagsins verði 69,4 m.kr. verði dvalargjöld felld niður en fæðisgjald áfram innheimt, og 79,6 m.kr. verði bæði dvalar- og fæðisgjöld felld niður. Miðað við núverandi fjárhagsáætlun er erfitt að réttlæta viðbótarfjármagn vegna niðurfellingar gjalda í frístund.
Því telur ráðið ekki tímabært að svo stöddu að halda þessari vinnu áfram en telur mikilvægt að fylgst verði grannt með þátttöku barna í frístund og er ráðið tilbúið að grípa inn í ef það telur ástæðu til.
Díana Hilmarsdóttir (B) lagði fram eftirfarandi bókun:
„Fulltrúi Framsóknar lýsir yfir vonbrigðum með að tillögu um gjaldfrjáls frístundaheimili fyrir börn í 1. bekk grunnskóla Reykjanesbæjar hafi verið hafnað fyrir fjárhagsáætlunargerð ársins 2027.
Markmið tillögunnar var að létta fjárhagslega undir með barnafjölskyldum og stuðla að jöfnum tækifærum barna til félagslegrar þátttöku við upphaf grunnskólagöngu. Hátt þátttökuhlutfall í frístundaheimilum undirstrikar mikilvægi þjónustunnar fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Fyrir liggur kostnaðarmat hagdeildar Reykjanesbæjar þar sem metnar eru tvær útfærslur tillögunnar. Samkvæmt því hefði kostnaður við niðurfellingu dvalargjalda frá 1. ágúst 2027, með áframhaldandi gjaldtöku fyrir síðdegishressingu, verið undir 30 milljónum króna á tímabilinu ágúst til desember 2027.
Fulltrúi Framsóknar telur að kostnaðarmatið hafi gefið tilefni til að vinna tillöguna áfram og skoða útfærslu hennar og gildistöku í tengslum við fjárhagsáætlun 2027. Með höfnun tillögunnar er ekki stigið það skref sem lagt var til í átt að minni gjaldtöku og jafnari tækifærum barna til þátttöku í frístundastarfi.
Gjaldfrjáls frístund getur jafnframt haft sérstakt gildi fyrir börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn þar sem aukin þátttaka veitir fleiri tækifæri til að efla íslenskukunnáttu, félagsleg tengsl og virkni í íslensku málumhverfi.
Fulltrúi Framsóknar telur mikilvægt að sveitarfélagið leiti áfram leiða til að draga úr fjárhagslegum hindrunum fyrir barnafjölskyldur.“
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:15.