Dagskrá fundar
1. Endurskoðun aðalskipulags
Lagt er fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2026 varðandi heildarendurskoðun aðalskipulags. Lagt er til að hafin verði heildarendurskoðun aðalskipulags Reykjanesbæjar með áherslu á atvinnusvæði, samgöngur og lengri gildistíma aðalskipulagsins. Á fundi skipulagsráðs nr. 391 var bókað: Skipulagsráð leggur til að í haust verði skipaður starfshópur um endurskoðun aðalskipulags. Óskað er eftir tilnefningum í starfshópinn.
Skipulagsráð leggur til að ráðist verði í heildarendurskoðun aðalskipulags og tilnefnir Róbert Jóhann Guðmundsson og Gunnar Felix Rúnarsson í starfshóp um endurskoðunina. Skipulagsráð felur skipulagsfulltrúa að tilkynna HMS um niðurstöðuna í samræmi við 35. gr skipulagslaga.
2. Dalsbraut 9 - undirbúningur úthlutunar
Óskað er heimildar til auglýsingar á úthlutun lóðarinnar Dalsbrautar 9 með þeim skilmálum til nánari útfærslu sem reifaðir eru í minnisblaði skipulagsfulltrúa dags. 16. nóvember 2026.
Skipulagsráð samþykkir að undirbúin verði úthlutun á lóðinni með áherslu á hverfisverslun. Endanlegir skilmálar verði lagðir fyrir ráðið áður en til auglýsingar á úthlutun kemur.
3. Grænásvegur og Njarðarbraut - óveruleg breyting á aðalskipulagi
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á aðalskipulagi skv. 2. mgr. 36. gr skipulagslaga. Lega Grænásvegar og Njarðarbrautar verði óbreytt frá núverandi legu sbr. uppdrátt dags. 28. maí 2026.
Skipulagsráð samþykkir óverulega breytingu á aðalskipulagi vegna gatnamóta Grænásvegar og Njarðarbrautar.
4. Nesvegur 50 - deiliskipulagsbreyting
Heimilað byggingarmagn innan byggingarreits 1 er 6.500 m², verði 7.900 m². Heimilað byggingarmagn innan byggingarreits 2 er 11.000 m², verði 9.600 m². Heildarbyggingarmagn á lóð er 17.500 m² og verði óbreytt sbr. uppdrátt Tækniþjónustu SÁ dags. 5. nóvember 2026 og álit Minjastofnunar dags. 14. september 2026.
Skipulagsráð telur að breytingin á deiliskipulagi varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda og samþykkir því breytinguna skv. 43. grein skipulagslaga, málsgrein 3.
5. Fitjabakki 2-4
Olís leggur fram erindi með ósk um að innkeyrsla á lóð verði færð til fyrra horfs og einnig er óskað eftir að lóðamörk færist um 5 m. til suðurs. Lóðarstækkun er u.þ.b. 400 m2 sbr. erindi Olís dags. 11. nóvember 2026.
Breytt aðkoma vestan nær hringtorgi er óheimil með tilliti til umferðaröryggis. Skipulagsráð tekur til skoðunar lóðarstækkun til suðurs en nánari upplýsingar vantar varðandi bílaþvottastöð sem kemur fyrir á uppdrætti en er ekki fjallað um að öðru leyti í texta málsins. Afgreiðslu frestað.
6. Heiðartröð 517 og Grænásbraut 506 - deiliskipulag
Lóðamörkum Grænásbrautar 506, Heiðartraðar 517 og Heiðartraðar 515-516 er breytt innbyrðis sbr. uppdrátt Verkfræðistofu Suðurnesja dags. í nóvember 2026.
Skipulagsráð telur að breytingin á deiliskipulagi varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda og samþykkir því breytinguna skv. 43. grein skipulagslaga, málsgrein 3.
7. Seljudalur 40 - sólstofa
Breytingar fela í sér byggingu á sólstofu áfastri við húsið á baklóð sbr. uppdrátt dags. 9. nóvember 2026. Erindið var grenndarkynnt en hefur fallið úr gildi skv. 4. mgr. 44. gr. skipulagslaga. Óskað er heimildar til að grenndarkynna erindið að nýju.
Skipulagsráð samþykkir breytinguna með fyrirvara um meðeigendasamþykki og grenndarkynningu án athugasemda skv. 43. grein skipulagslaga, málsgrein 2. Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta, sbr. 1. málsgrein, hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni á kynningargögn áður en fjórar vikur eru liðnar að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna eða hina leyfisskyldu framkvæmd skv. 3. málsgrein 44. greinar skipulagslaga.
8. Njarðarbraut 1
Óskað er heimildar til að reisa viðbyggingu við norðurenda vestari byggingar á lóðinni Njarðarbraut 1.
Skipulagsráð samþykkir breytinguna með fyrirvara um meðeigendasamþykki og grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2.
9. Reykjanesvegur 16 - uppskipting á húsi
Reykjanesvegur 16 er skráð sem einbýlishús en byggt sem tvær sjálfstæðar íbúðir árið 1958. Óskað er eftir heimild til að skipta húsinu í tvær íbúðir.
Skipulagsráð telur að breytingin varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda og samþykkir því breytinguna skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 3.
10. Flugvellir 1
Deiliskipulagsskilmálar kveða á um einhalla þak, en samkvæmt hönnun byggingar við Flugvelli 1 er lítilsháttar uppbrot á þaki. Óskað er heimildar skipulagsráðs fyrir þessu fráviki.
Skipulagsráð telur að breytingin á deiliskipulagi varði ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda og samþykkir því breytinguna skv. 43. grein skipulagslaga, málsgrein 3.
11. Hátún 3 - bílskúr
Óskað er heimildar til að reisa bílskúr á lóðinni Hátúni 3. Einnig er óskað eftir heimild til að stytta tímabil grenndarkynningar með áritun hagaðila á uppdrætti.
Skipulagsráð samþykkir breytinguna með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2. Heimilt er að stytta tímabil grenndarkynningar ef þeir sem hagsmuna eiga að gæta, sbr. 1. málsgrein, hafa lýst skriflega yfir með áritun sinni á kynningargögn áður en fjórar vikur eru liðnar að þeir geri ekki athugasemdir við skipulagstillöguna eða hina leyfisskyldu framkvæmd skv. 3. málsgrein 44. greinar skipulagslaga.
12. Sjávargata 33
Óskað er lóðarstækkunar til suðurs sbr. uppdrátt Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 9. nóvember 2026.
Samþykkt með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda skv. 44. grein skipulagslaga, málsgrein 2 og jákvæða umsögn Reykjaneshafnar.
13. Birkiteigur 1 - stækkun á bílastæði
Óskað er heimildar til að koma fyrir fjórða bílastæði á lóðinni Birkiteig 1 sbr. erindi Ólafs Arnar Jónssonar dags. 5. nóvember 2026.
Skipulagsráð hafnar fjölgun bílastæða á lóð með þessari aðkomu. Við bílastæðið er umferðarskilti, brunahani og tengibox HS Veitna sem verður ekki fært. Aðkoma á horni Birkiteigs og Vesturgötu er ekki heimil vegna umferðaröryggis.
14. Hringbraut – skilti
Knattspyrnudeild Keflavíkur óskar eftir heimild til þess að taka niður flettiskilti við knattspyrnuvöllinn við Sunnubraut í Keflavík sem snúa út að Hringbraut og setja þess í stað upp ný LED ljósaskilti. Á 397. fundi ráðsins var afgreiðslu erindis frestað. Starfsfólki umhverfis- og framkvæmdasviðs var falið að afla frekari gagna. Um 100 m. eru í næstu íbúðarhús.
Erindi frestað. Skipulagsráð óskar eftir nánari tæknilegum gögnum.
15. Tjarnabraut 2 - grenndarkynningu lokið
Íslandsturnar Sendastaðir ehf. sækja um leyfi til að reisa 6“ fjarskiptasúlu á þaki stigahússins og setja tæknibúnað í afstúkaðan tækjaskáp utanhúss á aðkomusvölum á 3. hæð. Á 396. fundi skipulagsráðs var samþykkt að senda erindið í grenndarkynningu sem er lokið en engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið.
16. Hlíðarvegur 46 - grenndarkynningu lokið
Kári Viðar Rúnarsson óskar eftir heimild til að bæta við viðbyggingu við raðhús og breyttri skráningu á bílgeymslu í geymslu. Skipulagsráð samþykkti á 395. fundi að senda erindið í grenndarkynningu sem er lokið. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið en bendir á að afla þurfi nágrannasamþykkis áður en byggingarleyfi er gefið út.
17. Aspardalur 2-4 - umsókn um lóð
Hafþór Orri Harðarson sækir um lóðina Aspardal 2-4.
Þar sem fleiri aðilar sóttu um lóðina, mun hlutkesti fara fram milli umsóknaraðila. Greint verður frá niðurstöðum á næsta fundi.
18. Aspardalur 2-4 - umsókn um lóð
Guðbjörg Svava Eiríksdóttir sækir um lóðina Aspardal 2-4.
Þar sem fleiri aðilar sóttu um lóðina, mun hlutkesti fara fram milli umsóknaraðila. Greint verður frá niðurstöðum á næsta fundi.
19. Aspardalur 2-4 - umsókn um lóð
Hrefna Díana Viðarsdóttir sækir um lóðina Aspardal 2-4.
Þar sem fleiri aðilar sóttu um lóðina, mun hlutkesti fara fram milli umsóknaraðila. Greint verður frá niðurstöðum á næsta fundi.
20. Breytingar á skipulagslögum - kynning
Lagðar eru til ýmsar breytingar á skipulagslögum sem voru í samráðsgátt en sveitarfélagið ekki upplýst um sérstaklega. Á döfinni er heildarendurskoðun skipulagslaga sem fylgjast þarf með.
21. Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa
Fundargerðir afgreiðslufundar byggingarfulltrúa nr. 410, 411, 412 og 413 lagðar fram.
Með því að smella hér má skoða fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
22. Fundargerð svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja 29. október 2026
Fundargerð 59. fundar svæðisskipulagsnefndar Suðurnesja dags. 29. október 2026 lögð fram.
23. Fundargerð samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs
Fundargerð 29. fundar samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs dags. 11. nóvember 2026 lögð fram.
24. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs - drög að verklagi til umsagnar
Óskað er umsagnar um drög að verklagi samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs.
Skipulagsráð gerir engar athugasemdir við drögin.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:51.