Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

402. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundurinn var haldinn þann 11. júní 2026 kl. 08.30.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Anna Þóra Gísladóttir aðalmaður, Aron Ingi Valtýsson fundargestur, Björk Lind Snorradóttir aðalmaður, Sigurður Þór Arason ritari, Sigurður Þór Arason ritari, Sveinn Björnsson aðalmaður, Stefanía Gunnarsdóttir skjaladeild

Að auki sátu fundinn Stefanía Gunnarsdóttir skjalastjóri og Erna María Svavarsdóttir skjalavörður.

Dagskrá fundar

1. Njarðarvellir 4 (2026060151)

Samþykkt

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sem felast í því að innrétta rými á jarðhæð fyrir dagdvöl fyrir aldraða sbr. aðaluppdrætti THG arkitekta dags. 05.06.2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

2. Brekkustígur 11 (2026060094)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir tímabundnum kennslustofum á lóð sbr. aðaluppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 03.06.2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

3. Sölvalaut (2026060093)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir 184 m2 nýbyggingu ætlaða sem búningaaðstöðu sbr. aðaluppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 03.06.2026.

Erindi frestað. Gögn ófullnægjandi.

4. Sólvallagata 11 (2026060070)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sem felast í því að endurinnrétta hluta húss úr gistirýmum í 3 íbúðir sbr. aðaluppdrætti AM Design dags. 03.06.2026.

Erindi frestað. Gögn ófullnægjandi.

5. Suðurbraut 758 (2026050377)

Samþykkt

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Suðurbraut 758.

Merkjalýsing staðfest.

6. Vesturgata 2-4, 6-8 og Vesturbraut 15 (2026040358)

Samþykkt

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Vesturgötu 2-4, 6,8 og Vesturbraut 15.

Merkjalýsing staðfest.

7. Grófin 17A (2026030117)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sbr. aðaluppdrætti RISS dags. 29.04.2026, breytt 28.05.2026.

Erindi frestað. Vísað til athugasemdarskýrslu byggingarfulltrúa.

8. Hafnargata 30 (2025070084)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss. Op verður á milli matshluta 0101 og 0102 sbr. uppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 05.06.2026.

Erindi frestað. Gögn ófullnægjandi.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:06.