Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

405. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundurinn var haldinn þann 23. júlí 2026 kl. 09.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Anna Þóra Gísladóttir aðalmaður, Erla Bjarný Gunnarsdóttir fundargestur, Hilmar Örn Arnórsson fundargestur, Sveinn Björnsson aðalmaður, Hilmar Örn Arnórsson aðalmaður

Að auki sat fundinn Erna María Svavarsdóttir ritari.

Dagskrá fundar

1. Þórustígur 22 (2026070163)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir viðbyggingu sbr. aðaluppdrætti GJG DESIGN ehf. dags. 14.07.2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

2. Brekadalur 55 (2026070153)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir nýbyggingu sbr. aðaluppdrætti Riss verkfræðistofu dags. 20.01.2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

3. Fitjabraut 10 og 18 (2026070134)

Umsókn um byggingarleyfi fyrir steypta girðingu. sbr. uppdrætti Verkfræðistofu Suðurnesja dags. 13. júlí 2026.

Erindi frestað. Samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða vantar.

4. Lónsbraut 1 (2026070116)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir nýbyggingu sbr. aðaluppdrætti Arkitektastofunnar OG ehf.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

5. Flugvellir 8 (2026070115)

Samþykkt

Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir þremur 20 feta gámum.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 23. júlí 2027.

6. Fuglavík 19 (2026040019)

Samþykkt

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir atvinnuhúsnæði sbr. uppfærða aðaluppdrætti Glóru dags. 13.05.2026. Grenndarkynningu er lokið og umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

7. Njarðvíkurbraut 25 (2026020179)

Merkjalýsing fyrir Njarðvíkurbraut 25.

Við úrvinnslu máls kom í ljós að merkjalýsing fyrir Njarðvíkurbraut 25 er byggð á ófullnægjandi gögnum, staðfesting á merkjalýsingu er því afturkölluð.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:17.