Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

406. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundurinn var haldinn þann 13. ágúst 2026 kl. 09.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Anna Þóra Gísladóttir aðalmaður, Aron Ingi Valtýsson fundargestur, Gunnar Kr Ottósson aðalmaður, Hilmar Örn Arnórsson fundargestur, Sigurður Þór Arason ritari, Sigurður Þór Arason ritari, Sveinn Björnsson aðalmaður

Dagskrá fundar

1. Sjónarhóll 6 (2026080025)

Samþykkt

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Sjónarhól 6.

Merkjalýsing staðfest.

2. Sjónarhóll 4 og 2C (2026070277)

Samþykkt

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Sjónarhól 4 og 2C.

Merkjalýsing staðfest.

3. Þjóðbraut 838 (2026070275)

Samþykkt

Tilkynnt er um tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi fyrir ofanjarða olíutanki sem verður tengdur við rafmangnsstöð.

Embætti Byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.

4. Grófin 10 (2026070257)

Samþykkt

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum á innra skipulagi sbr. aðaluppdrætti GJG Design dags. 15. júlí 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

5. Garðavegur 7 (2026070241)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir stakstæðri bílgeymslu sbr. aðaluppdrætti STH teiknistofu dags. 20. maí 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

6. Hólamið 28 (2026060318)

Samþykkt

Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir 30m2 frístundarhúsi í smíðum.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 22. júní 2027.

7. Sjónarhóll 6 (2026050112)

Samþykkt

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir nýbyggingu sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 26.06.2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:23.