Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

407. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundurinn var haldinn þann 25. ágúst 2026 kl. 09.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Aron Ingi Valtýsson fundargestur, Erla Bjarný Gunnarsdóttir fundargestur, Gunnar Kr Ottósson aðalmaður, Hilmar Örn Arnórsson fundargestur, Sigurður Þór Arason ritari, Sigurður Þór Arason ritari, Sveinn Björnsson aðalmaður

Dagskrá fundar

1. Móavellir 3A (2026080256)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir glerskála á milli Móavalla 3 og 5 sbr. aðaluppdrætti THG arkitekta dags. 15. maí 2026.

Erindi frestað. Umsagnir frá umsagnaraðilum hafa ekki borist.

2. Sunnubraut 36 (2026080149)

Samþykkt

Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir frístundarhúsi í byggingu, meðfylgjandi er grunn-, útlits- og sniðsmynd.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 16. ágúst 2027.

3. Spítalareitur (2026070243)

Samþykkt

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Spítalareit.

Merkjalýsing samþykkt í samræmi við 6. gr. a. í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.

4. Þórustígur 22 (2026070163)

Samþykkt

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir nýbyggingu sem hýsa á tvær íbúðir ásamt niðurrifi á bílgeymslu sbr. aðaluppdrætti GJG design dags. 14. júlí 2026. Grenndarkynningu er lokið og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

5. Bolafótur 21-73 (2026070107)

Samþykkt

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Bolafót 21-73.

Merkjalýsing samþykkt í samræmi við 6. gr. a. í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.

6. Keilisbraut 753 (2026060366)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki III fyrir tengibyggingu milli Keilisbrautar 753 og 754. Jafnframt er sótt um leyfi til að innrétta byggingar 753 og 754 sem hjúkrunarheimili sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 23. júní 2026. Grenndarkynningu er lokið og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.


Erindi frestað. Umsagnir frá umsagnaraðilum hafa ekki borist.

7. Sólvallagata 11 (2026060070)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss sem felast í því að endurinnrétta hluta húss í gistirými í 3 íbúðir sbr. aðaluppdrætti AM design dags. 3. júní 2026, breytt 6. ágúst 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

8. Hafnargata 45 (2026050242)

Samþykkt

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breyttu fyrirkomulagi annarrar hæðar ásamt nýjum svölum á norðausturhlið hús sbr. aðaluppdrætti JeES arkitekta dags. 4. maí 2026, breytt 12. maí 2026. Grenndarkynningu er lokið og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:29.