Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

408. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundurinn var haldinn þann 8. september 2026 kl. 09.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Erla Bjarný Gunnarsdóttir fundargestur, Sigurður Þór Arason ritari, Sigurður Þór Arason ritari, Sveinn Björnsson aðalmaður

Dagskrá fundar

1. Tjarnabraut 2 (2026090089)

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsaflokki I fyrir fjarksiptasúlu á þak stigahúss sbr. aðaluppdrætti VEB verkfræðistofu dags. 3. júní 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

2. Völuás 2 (2026080323)

Samþykkt

Tilkynnt er um tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi fyrir breytingum innanhúss sbr. aðaluppdrætti Sigurðar H. Ólafssonar dags. 25. ágúst 2026.

Embætti Byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.

3. Keilisbraut 753 (2026060366)

Samþykkt

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki III fyrir tengibyggingu milli Keilisbrautar 753 og 754. Jafnframt er sótt um leyfi til að innrétta byggingar 753 og 754 sem hjúkrunarheimili sbr. aðaluppdrætti Glóru dags. 1. september 2026.  Grenndarkynningu er lokið og skipulagsráð hefur samþykkt erindið.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

4. Valhallarbraut 868 (2026050214)

Samþykkt

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki III fyrir 23.998 m2 atvinnuhúsnæði sbr. aðaluppdrætti T.ark dags. 15. maí 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

5. Selvík 5 og 9 (2026030507)

Samþykkt

Óskað er eftir samþykki byggingarfulltrúa á merkjalýsingu fyrir Selvík 5 og 9.

Merkjalýsing samþykkt í samræmi við 6. gr. a. í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:29.