Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

412. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundurinn var haldinn þann 27. október 2026 kl. 09.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Anna Þóra Gísladóttir aðalmaður, Erla Bjarný Gunnarsdóttir aðalmaður, Hilmar Örn Arnórsson aðalmaður, Sigurður Þór Arason aðalmaður, Sveinn Björnsson aðalmaður

Fundargerð ritaði Sigurður Þór Arason.

Dagskrá fundar

1. Heiðarbraut 13

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir 30,8 fermetra viðbyggingu, sem og minni breytingar á ásýndun húss, sbr. aðaluppdrætti Mannvirkis & Malbiks, dags. 20. ágúst 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

2. Flugvellir 1

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki II fyrir atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum, sbr aðaluppdrætti Mannvirkis & Malbiks, dags. 7. ágúst 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

3. Ferjutröð 9

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir 408,5 fermetra viðbyggingu, sbr. aðaluppdrætti Tækniþjónustu SÁ, dags. 19. október 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

4. Hæðargata 7

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir 26,9 femtetra viðbyggingu, sbr aðaluppdrætti RISS verkfræðistofu, dags. 23. júní 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

5. Hjallalaut 1

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir 26,7 fermetra viðbyggingu, stækkun núverandi verandar til suðurs, vesturs og austurs, gerð steyptra og léttra skjólveggja á útisvæði og við lóðarmörk, uppsetningu heits og kalds potts og útieldhússásamt gerð gervigrasflatar sem leiksvæðis á palli. Einnig er sótt um breytingu á ásýnd hússins með því að skipta út glugga í geymslu bílskúrs í útihurð og bæta við gólfsíðum glugga með opnanlegu fagi við hlið hurðar í þvottahúsi, sbr. aðaluppdrætti JeES arkitekta, dags. 7. apríl 2026.


Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

6. Duusgata 2

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss á matshluta 01, sbr. aðaluppdrætti JeES arkitekta, dags. 15. apríl 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:33.