Beint í efni

413. afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

Fundurinn var haldinn þann 10. nóvember 2026 kl. 09.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Anna Þóra Gísladóttir aðalmaður, Hilmar Örn Arnórsson aðalmaður, Sigurður Þór Arason aðalmaður, Sveinn Björnsson aðalmaður

Fundargerð ritaði Sigurður Þór Arason.

Dagskrá fundar

1. Seljudalur 40

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir 44,7 fermetra sólstofu, sbr aðaluppdrætti K.J. hönnun, dags. 30. júlí 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu, þar sem grenndarkynning er fallin úr gildi.

2. Grænásbraut 1216

Tilkynnt er um tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi vegna nýrra lagna í baðherbergi og eldhúsi. Lagnir í veggjum haldast óbreyttar.

Embætti Byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.

3. Völuás 12

Tilkynnt er um tilkynningarskylda mannvirkjagerð undanþegna byggingarheimild og -leyfi vegna steyptra veggja á lóðarmörkum. Samþykki fasteignaeigenda á aðliggjandi lóðum liggur fyrir.

Embætti Byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.

4. Miðgarður 11

Óskað er eftir leiðréttingu á skráningu mannvirkis vegna breytinga sem gerðar voru á árunum 1980 - 1990.

Embætti Byggingarfulltrúa gerir ekki athugasemd við erindið.

5. Njarðarbraut 1

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir 88,5 fermetra viðbyggingu við matshluta 02, eignarhluta 0101, sbr. aðaluppdrætti Beims, dags. 1. október 2026.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

6. Reykjanesvegur 16

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhús og fjölgun fasteigna.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni til skipulagsfulltrúa til frekari úrvinnslu.

7. Ægisgata við Duus torg

Sótt er um stöðuleyfi frá og með 12. desember 2026 til 12. janúar 2027 fyrir fjórum 20 feta sölugámum. Lögð er fram mynd sem sýnir staðsetningu gámanna.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 15. janúar 2027.

8. Iðavellir 11b

Sótt er um stöðuleyfi til eins árs fyrir einum 40 feta gámi. Lögð er fram mynd sem sýnir staðsetningu gámsins.

Erindi samþykkt, stöðuleyfi veitt til 21. október 2027.

9. Skólavegur 6

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingum innanhúss, úrbótum á brunavörnum ásamt endurnýjun og stækkun loftræstiskerfis, sbr. aðaluppdrætti Teiknistofunnar Traðar, dags. 16. september 2026.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

10. Fuglavík 1-2-3-5-7-13-15-17

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Fuglavík 1, 2, 3, 5, 7, 13, 15 og 17.

Merkjalýsing samþykkt í samræmi við 6. gr. a. í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.

11. Lónsbraut 1

Óskað er eftir staðfestingu á merkjalýsingu fyrir Lónsbraut 1.

Merkjalýsing samþykkt í samræmi við 6. gr. a. í lögum nr. 6/2001 um skráningu, merki og mat fasteigna.

12. Vatnsnesvegur 8

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir breytingu á innra skipulagi og notkun húss úr íbúðar- og safnahúsnæði í gistirými, sbr. aðaluppdrætti JeES arkitekta, dags. 10. ágúst 2026.

Með vísan í þinglýst dánargjafabréfs Bjarnfríðar Sigurðardóttur, dags. 25. febrúar 1969, þá samræmist umsóknin ekki þinglýstri kvöð um notkun eignarinnar. Þá er umsóknin jafnframt í andstöðu við efnisatriði samnings Reykjanesbæjar og KEF ehf. dags. 11. október 2022. Erindi hafnað.

13. Lónsbraut 1

Sótt er um byggingarleyfi í umfangsflokki I fyrir tveimur nýbyggingum. Um er að ræða tvær spennistöðvar, hvor um sig 78,8 fermetrar, sbr. ódagsetta aðaluppdrætti frá OG arkitektastofunni.

Byggingaráform samþykkt. Erindið uppfyllir gildandi skipulagsskilmála.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00.