Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

455. fundur velferðarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 15. júní 2026 kl. 13.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Aðalheiður Hilmarsdóttir aðalmaður, Alma Guðnadóttir aðalmaður, Halla Karen Guðjónsdóttir aðalmaður, Hermann Borgar Jakobsson aðalmaður, Ólöf Steinunn Lárusdóttir formaður nefndar

Að auki sátu fundinn Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis og Erna María Svavarsdóttir ritari.

Velferðarráð samþykkti 5-0 að taka á dagskrá Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk í samræmdri móttöku – fyrirspurn (2024100122). Fjallað var um málið undir dagskrárlið 6.

Dagskrá fundar

1. Kosning varaformanns og ritara (2026060226)

Velferðarráð skipti með sér verkum, kaus varaformann og ritara í samræmi við bæjarmálasamþykkt.

Alma Guðnadóttir var kosin varaformaður velferðarráðs og Hermann Borgar Jakobsson var kosinn ritari.

2. Erindisbréf velferðarráðs (2026060120)

Erindisbréf velferðarráðs lagt fram til kynningar.

3. Verkefni velferðarsviðs (2026060226)

Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðra og Vilborg Pétursdóttir, teymisstjóri barna og fjölskylduteymis sitja fundinn undir þessu dagskrármáli.

Stjórnendateymi velferðarsviðs kynnti starfsemi og verkefni sviðsins.

4. Fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2026 (2025060320)

Fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2026 og rekstrarstaða sviðsins kynnt.

5. Lýðræðisleg þátttaka innflytjenda (2026060137)

Lokaskýrsla um verkefnið Mitt atkvæði/mín rödd lögð fram.

6. Þjónusta við umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk í samræmdri móttöku – fyrirspurn (2024100122)

Aðalheiður Hilmarsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd Samfylkingar:

Eru til staðar samningar í dag milli Reykjanesbæjar og Vinnumálastofnunar vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd?

Eru til staðar samningar í dag í Reykjanesbæ um samræmda móttöku flóttafólks?

Fyrir slit samninga, hvernig voru tekjur af umsækjendum um alþjóðlega vernd?

Fyrir slit samninga, hvað var Reykjanesbær með margt starfsfólk sem sinnti málaflokknum um alþjóðlega vernd?

Í dag, hver er stærsti hópur umsækjenda um alþjóðlega vernd sem eru í Reykjanesbæ?

Svör óskast á næsta fundi velferðarráðs.

 Aðalheiður Hilmarsdóttir (S).

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:07.