Dagskrá fundar
1. Farsældarráð Suðurnesja
Hjördís Eva Þórðardóttir, verkefnastjóri farsældar barna á Suðurnesjum, sat fundinn undir þessum dagskrárlið og kynnti Farsældarráð Suðurnesja, sem er samstarfsverkefni sveitarfélaganna á Suðurnesjum, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Lögreglustjórans á Suðurnesjum, Sýslumannsins á Suðurnesjum, Svæðisstöðvar íþróttahéraða, Heilsugæslunnar Höfða og ungmenna- og foreldraráða á Suðurnesjum. Markmið samstarfsins er að efla og samræma þjónustu við börn og fjölskyldur á Suðurnesjum með samþættri, snemmtækri og heildstæðri nálgun. Jafnframt vinnur farsældarráð að því að styrkja þverfaglegt samstarf og tryggja að farsæld barna sé leiðarljós í stefnumótun og framkvæmd þjónustu í landshlutanum.
Velferðarráð leggur áherslu á að umboð Farsældarráðs Suðurnesja verði endurnýjað og styður heilshugar við þá vinnu sem unnin er af farsældarráði við uppbyggingu og úrbætur í þjónustu við börn og foreldra á Suðurnesjum.
2. Úrbótaáætlun barnaverndarþjónustu
Henný Úlfarsdóttir, ráðgjafi í barnaverndarþjónustu, kynnti stöðu úrbótaáætlunar barnaverndarmála hjá barnaverndarþjónustu Reykjanesbæjar vegna vistunar barna utan heimilis.
3. Sameining dagdvala
Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, gerði grein fyrir stöðu mála varðandi sameiningu dagdvala.
4. Fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2027
Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis, Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, Ólafur Garðar Rósinkarsson, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks og Henný Úlfarsdóttir, ráðgjafi í barnaverndarþjónustu, fóru yfir stöðu fjárhagsáætlunarvinnu sviðsins, stöðumat og næstu skref.
5. Fjárhagsaðstoð og sérstakur húsnæðisstuðningur - tölulegar upplýsingar
Tölulegar upplýsingar vegna fjárhagsaðstoðar og sérstaks húsnæðisstuðnings í ágúst 2026 lagðar fram.
Fjárhagsaðstoð
Í ágúst 2026 fengu 62 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 8.699.660 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 140.317 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 21.
Í ágúst 2025 fengu 115 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 11.728.516 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 101.987 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 41.
Sérstakur húsnæðisstuðningur
Í ágúst 2026 fengu 248 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 7.126.886 kr.
Í ágúst 2025 fengu 287 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins, samtals 6.786.668 kr.
Áfrýjunarnefnd
Frá síðasta fundi velferðarráðs hafa verið haldnir tveir fundir áfrýjunarnefndar ráðsins.
Þann 14. september 2026 var haldinn fundur þar sem 14 mál voru lögð fyrir nefndina. Átta erindi voru samþykkt, fimm synjað og einu erindi frestað.
Þann 5. október 2026 var haldinn fundur þar sem 15 mál voru lögð fyrir nefndina. Sjö erindi voru samþykkt og átta synjað.
6. Fundargerðir Samtakahópsins 20. maí og 21. september 2026
Fundargerðir Samtakahópsins lagðar fram.
7. Erindisbréf velferðarráðs
Uppfærð drög að erindisbréfi lögð fram.
Velferðarráð samþykkir drögin og vísar þeim til forsetanefndar.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:32.