Beint í efni

459. fundur velferðarráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 12. nóvember 2026 kl. 13.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Alma Guðnadóttir aðalmaður, Bjarni Halldór Heiðuson varamaður, Halla Karen Guðjónsdóttir aðalmaður, Hermann Borgar Jakobsson aðalmaður, Ólöf Steinunn Lárusdóttir formaður nefndar

Að auki sátu fundinn María Rós Skúladóttir sviðsstjóri velferðarsviðs, Hera Ósk Einarsdóttir fráfarandi sviðsstjóri velferðarsviðs, Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis, Margrét Arnbjörg Valsdóttir teymisstjóri öldrunar- og stuðningsþjónustu, Ólafur Garðar Rósinkarsson verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari.

Aðalheiður Hilmarsdóttir boðaði forföll og sat Bjarni Halldór Heiðuson fundinn í hennar stað.

Velferðarráð þakkar Heru Ósk Einarsdóttur fyrir vel unnin störf og ánægjulegt samstarf. Jafnframt býður ráðið nýjan sviðsstjóra, Maríu Rós Skúladóttur, velkomna til starfa.

Dagskrá fundar

1. Mælaborð velferðarsviðs - 9 mánaða uppgjör

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti mælaborð sviðsins fyrir janúar-september 2026.

2. Fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2027

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar sviðsins fyrir árið 2027.

3. Fjárhagsaðstoð - breyting á grunnfjárhæð

Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri virkni- og ráðgjafarteymis, lagði fram tillögu um að grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjanesbæjar til framfærslu hækki um 11.457 kr. á mánuði, eða um 5,6% frá og með 1. janúar 2027. Samkvæmt 4. mgr. 11. gr. reglna Reykjanesbæjar um fjárhagsaðstoð tekur grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar mið af neysluvísitölu og er endurskoðuð árlega af velferðarráði í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar. Tillaga að hækkun grunnfjárhæðarinnar er lögð fram á þessum grundvelli.

Velferðarráð samþykkir tillögu um hækkun grunnfjárhæðar fjárhagsaðstoðar fyrir sitt leyti og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs.

4. Fjölsmiðjan á Suðurnesjum - breytingar á húsnæði og rekstrarkostnaður

Erindi Fjölsmiðjunnar á Suðurnesjum lagt fram. Óskað er eftir að sveitarfélögin á Suðurnesjum taki til skoðunar hækkun á árlegum framlögum sínum til starfseminnar og veiti styrk vegna kostnaðar við fyrirhugaðan flutning Fjölsmiðjunnar í stærra húsnæði, almennrar hækkunar á rekstrarkostnaði og aukinnar þjónustuþarfar. 

Velferðarráð vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar velferðarsviðs.

5. Framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings - uppfærðar leiðbeiningar

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur gefið út uppfærðar leiðbeiningar fyrir sveitarfélög um framkvæmd sérstaks húsnæðisstuðnings. Í þessari viðbót felst sú breyting frá gildandi fyrirkomulagi opinbers húsnæðisstuðnings að öllum sveitarfélögum verður frá og með næstu áramótum skylt að veita sérstakan húsnæðisstuðning. Jafnframt er það nýmæli í lögum að sveitarfélög skuli veita foreldrum eða forsjáraðilum 15-17 ára barna, sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum vegna náms fjarri lögheimili, húsnæðisstuðning. 

Reykjanesbær hefur þegar innleitt þessi ákvæði í sínar reglur skv. útgefnum leiðbeinandi reglum ráðuneytisins og því er hér ekki um að ræða breytingar hjá Reykjanesbæ hvað þetta varðar.

6. Samræmd grunnskráning félagsþjónustu – stafræn verkefni framundan

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga vinna sameiginlega að því að hrinda í framkvæmd framtíðarsýn um stafræna þróun og gagnamál í félagsþjónustu sveitarfélaga. Verkefnið sem ber heitið Samræmd grunnskráning félagsþjónustu er hluti af stefnu um opinbera þjónustu og felur í sér tilgreindar aðgerðir á aðgerðaáætlun þeirrar stefnu 2026-2029. Markmiðið með samræmdri skráningu grunngagna um lögbundna félagsþjónustu sveitarfélaga er að tryggja að gögn sveitarfélaga séu samanburðarhæf og aðgengileg fyrir yfirlit og tölfræðivinnslu á landsvísu. 

Til að styðja sveitarfélög við þessa innleiðingu munu félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Jöfnunarsjóður sveitarfélaga veita fjárhagslegan stuðning til að mæta áskriftarkostnaði sem fellur til hjá sveitarfélögum vegna skráninga upplýsinga sveitarfélaga í sameiginlegan gagnagrunn félagsþjónustu sveitarfélaga. Stuðningurinn verður veittur til ársloka 2028 og er háður því að sveitarfélög innleiði viðeigandi þjónustukerfi, skrái þar upplýsingar um veitta þjónustu og skili samræmdum grunngögnum inn í miðlæga gagnaþjónustu.

Velferðarsvið er að hefja kortlagningu og greiningu á þeim þörfum sem þarf að mæta til að Reykjanesbær geti tekið þátt í þessari samræmdu grunnskráningu í félagsþjónustu. 

7. SES - Samvinna eftir skilnað - innleiðing á velferðarsviði

Hera Ósk Einarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs kynnti verkefnið SES – Samvinnu eftir skilnað, sem er stafrænt velferðarúrræði fyrir börn, foreldra og fagfólk í tengslum við skilnað eða sambúðarslit foreldra. SES var innleitt á Íslandi 2020 að danskri fyrirmynd og voru þá átta sveitarfélög sem tóku þátt í innleiðingunni á tilraunastigi og varð úrræðið landsdekkandi frá árinu 2021 þegar aðgangur að fræðsluefni SES var útvíkkað og náði til íbúa allra sveitarfélaga á Íslandi. 

Samkvæmt félagsþjónustulögunum er eitt af hlutverkum félagsþjónustu sveitarfélaga að veita skilnaðarráðgjöf og er SES ráðgjöfin gott verkfæri inn í þá þjónustu. Nú hafa ráðgjafar á velferðarsviði sótt sér fræðslu og réttindi til að geta veitt SES-Pro ráðgjöf og er hafinn undirbúningur að innleiðingu þessarar þjónustu. Danskar rannsóknir hafa sýnt verulegan ávinning fyrir foreldra og börn af notkun SES, m.a. á streitu, kvíða, þunglyndi, ágreining og aðlögun fólks að skilnaði.

8. Fundargerð Samtakahópsins 21. október 2026

Fundargerð Samtakahópsins lögð fram.

Velferðarráð þakkar Samtakahópnum fyrir mikilvægt samstarf um forvarnir og farsæld barna og ungmenna. Ráðið lýsir ánægju með jákvæða þróun margra farsældarvísa og leggur áherslu á að brugðist verði við auknu einelti og versnandi líðan barna sem voru í 4.–5. bekk þegar rannsóknin var lögð fyrir og eru nú í 5.–6. bekk.

Velferðarráð fagnar aukinni þátttöku í félagsmiðstöðvastarfi. Frá 1. september til 11. nóvember 2026 sóttu 615 ungmenni í 8.–10. bekk starfið að minnsta kosti einu sinni. Til samanburðar voru þau 620 á öllu síðasta skólaári.

Góð þátttaka eftir opnun félagsmiðstöðva við Akurskóla og Stapaskóla bendir til þess að nálægð við skóla skipti máli fyrir þátttöku ungmenna. Ráðið leggur áherslu á að efla félagsmiðstöðvastarf sem hluta af forvörnum og stuðningi við farsæld barna og ungmenna. Markmiðið er að bjóða upp á öflugt félagsmiðstöðvastarf við alla grunnskóla Reykjanesbæjar.

9. Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks 8. október 2026

Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks lögð fram.

Velferðarráð fagnar því að samráðshópur um málefni fatlaðs fólks hafi tekið til starfa.

10. Fjárhagsaðstoð og sérstakur húsnæðisstuðningur - tölulegar upplýsingar

Tölulegar upplýsingar vegna fjárhagsaðstoðar og sérstaks húsnæðisstuðnings í september 2026 lagðar fram.

Fjárhagsaðstoð

Í september 2026 fengu 62 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 8.304.735 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali um 133.947 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 20.

Í september 2025 fengu 128 einstaklingar greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjanesbæ. Alls voru greiddar 13.346.962 kr. í fjárhagsaðstoð til framfærslu eða að meðaltali 104.273 kr. á hvern einstakling. Fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð var 54.

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Í september 2026 fengu 260 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins. Samtals voru greiddar 7.479.667 kr.

Í september 2025 fengu 284 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélagsins, samtals 6.844.623 kr.

Áfrýjunarnefnd

Frá síðasta fundi velferðarráðs hafa verið haldnir tveir fundir áfrýjunarnefndar ráðsins. 

Þann 21. október 2026 var haldinn fundur þar sem fimm mál voru lögð fyrir nefndina. Þrjú erindi voru samþykkt og tveimur var synjað.

Þann 9. nóvember 2026 var haldinn fundur þar sem 11 erindi voru lögð fram í 10 málum. Fimm erindi voru samþykkt, fimm synjað og einu erindi frestað.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16:03.