Dagskrá fundar
1. Starfsáætlanir leikskóla 2026-2027 (2026110466)
Starfsáætlanir leikskóla Reykjanesbæjar fyrir starfsárið 2026-2027 lagðar fram til kynningar.
Starfsáætlanirnar eru aðgengilegar á heimasíðum skólanna.
2. Stuðningur við starfsfólk leikskóla í leikskólakennaranámi - vinnureglur (2026110468)
Lögð voru fram drög spretthóps leikskólaráðs að uppfærðum vinnureglum starfsmanna Reykjanesbæjar sem huga að leikskólakennaranámi.
Leikskólaráð felur formanni ráðsins og sviðsstjóra að vinna áfram í málinu í samræmi við umræður á fundinum og leggja reglurnar aftur fyrir næsta fund ráðsins.
3. 30 stunda gjaldfrjáls leikskóli (2026090393)
Leikskólaráð fór yfir hvernig meta eigi árangur af innleiðingu 30 stunda gjaldfrjálsrar leikskólaþjónustu og ræddi helstu álitaefni, forsendur og áskoranir sem þarf að greina og skýra áður en innleiðing líkansins hefst. Ráðið mun vinna áfram að undirbúningi og er stefnt á að halda opinn kynningarfund í febrúar 2027.
4. Uppbygging og úrbætur í leikskólum - stöðumat og forgangsröðun (2026090393)
Í framhaldi af heimsóknum leikskólaráðs í nokkra leikskóla í Reykjanesbæ hóf ráðið vinnu við að meta stöðu leikskólanna og greina helstu þarfir og áskoranir til framtíðar. Markmið vinnunnar er að nýta þá innsýn og upplýsingar sem fengist hafa í heimsóknunum til að skapa heildstæða yfirsýn yfir stöðu leikskólanna, skilgreina helstu áherslur og forgangsraða uppbyggingu, viðhaldi og úrbótum til skemmri og lengri tíma.
Leikskólaráð mun halda áfram að heimsækja leikskóla sveitarfélagsins og meta þarfir og áskoranir í starfi þeirra.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:06.