Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

5. fundur umhverfis- og framkvæmdaráðs Reykjanesbæjar

Fundurinn var haldinn þann 16. október 2026 kl. 08.30.

Fundarstaður: Grænásbraut 910 - Seltjörn

Viðstaddir: Einar Þór Guðmundsson aðalmaður, Eysteinn Eyjólfsson aðalmaður, Guðbergur Ingólfur Reynisson formaður nefndar, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðalmaður, Karvel Granz varamaður

Að auki sátu fundinn Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Erla Bjarný Gunnarsdóttir, lögfræðingur umhverfis- og framkvæmdasviðs, Aron Heiðar Steinsson veitustjóri, Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála, Magnþór Breki Ragnarsson, verkefnastjóri viðhalds og framkvæmda og Aðalheiður Ósk Gunnarsdóttir ritari. 

Brynjólfur Sveinn Ívarsson boðaði forföll og sat Karvel Granz fundinn í hans stað.

Dagskrá fundar

1. Staða verkefna eignaumsýslu

Magnþór Breki Ragnarsson, verkefnastjóri viðhalds og framkvæmda og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fóru yfir stöðu verkefna eignaumsýslu.

2. Fjárhagsáætlun umhverfis- og framkvæmdasviðs 2027

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, Margrét Lilja Margeirsdóttir deildarstjóri umhverfismála, Aron Heiðar Steinsson veitustjóri og Hreinn Ágúst Kristinsson deildarstjóri eignaumsýslu fóru yfir áherslur sviðsins við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

3. Njarðarbraut – fyrirhugaðar framkvæmdir

Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðsstjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, fór yfir þær framkvæmdir sem eru í undirbúningi við Njarðarbraut, Bergás og Grænásveg.

Umsögn barst frá samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs. Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðsstjóra að vinna áfram að fullnaðarhönnun og kostnaðarmati á hringtorgi á gatnamótum Grænásvegar og Njarðarbrautar samkvæmt fyrirliggjandi deiliskipulagi.

4. Samráðsnefnd atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs

Fundargerð samráðsnefndar atvinnu- og hafnarráðs, skipulagsráðs og umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 8. október 2026 lögð fram.

5. Vetrarþjónusta Vegagerðarinnar – beiðni um aukna þjónustu

Þann 5. október 2026 barst Reykjanesbæ áskorun frá fjölda fyrirtækja á Reykjanesi þar sem kallað er eftir endurskoðun og eflingu vetrarþjónustu á Nesvegi, þjóðvegi 425. Í erindinu er bent á mikilvægi vegarins fyrir atvinnustarfsemi á svæðinu, öryggi vegfarenda og hlutverk hans sem mikilvægrar flótta og viðbragðsleiðar. Núverandi þjónusta er takmörkuð við þrjá daga í viku og telja fyrirtækin að þjónustan fullnægi ekki þeirri umferð, atvinnustarfsemi og öryggisþörf sem er á svæðinu.

Umhverfis- og framkvæmdaráð tekur undir áhyggjur hagaðila og skorar á Vegagerðina að endurskoða þjónustuflokkun og þjónustustig Nesvegar.

Ráðið telur einnig mjög mikilvægt að Vegagerðin skilgreini Nesveg sem stofnveg og tryggi í framhaldinu að hann verði greiðfær og öruggur allan ársins hring og geti þannig mætt vaxandi flutningsþörfum í takt við uppbyggingu atvinnustarfsemi og aukinnar umferðar ferðamanna á Reykjanesinu.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:40.