Við erum að fínstilla nýjan vef – Upplifun þín skiptir okkur máli. Ef þú finnur villu, saknar upplýsinga eða sérð eitthvað sem mætti bæta, máttu endilega senda okkur ábendingu.

Beint í efni

726. fundur bæjarstjórnar Reykjanesbæjar - aukafundur

Fundurinn var haldinn þann 13. október 2026 kl. 15.00.

Fundarstaður: Grænásbraut 910

Viðstaddir: Alexander Ragnarsson aðal-bæjarfulltrúi, Díana Hilmarsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Guðbergur Ingólfur Reynisson aðal-bæjarfulltrúi, Guðný Birna Guðmundsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Gunnlaugur Kárason aðal-bæjarfulltrúi, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Hjörtur Magnús Guðbjartsson aðal-bæjarfulltrúi, Kristján Pétur Kristjánsson aðal-bæjarfulltrúi, Margrét Þórarinsdóttir aðal-bæjarfulltrúi, Róbert Jóhann Guðmundsson aðal-bæjarfulltrúi, Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri

Að auki sat fundinn Hrefna Gunnarsdóttir.

Dagskrá fundar

1. Njarðarvellir 2 - kaupsamningur

Undirritun á kaupsamningi á fasteigninni Njarðarvellir 2 (F2325969) og lóðarleigusamningi á lóðinni Njarðarvellir 2 (L209382).

Til máls tóku Vilhjálmur Árnason og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.

Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði frameftirfarandi bókun:

Bæjarfulltrúar Samfylkingar og Framsóknar fagna þeim áfanga sem hér er náð í dag, að Reykjanesbær sé að selja húsnæði hjúkrunarheimilisins að Njarðarvöllum 2. Málið var sett á dagskrá og unnið áfram af fyrri meirihluta án samþykktar bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Í mars 2025 tók íslenska ríkið að sér uppbyggingu hjúkrunarheimila og þar með 15% hlut sveitarfélaga í stofnkostnaði hjúkrunarheimila. Því þótti skynsamlegt að kanna hvort sveitarfélagið gæti selt húsnæðið að Njarðarvöllum 2 sem hýsir hjúkrunarheimili með samning um reksturinn við ríkið. Hugmyndin var að losna undan rekstri húsnæðisins sem hýsir ríkisstarfsemi og samhliða því að niðurgreiða skuldir og losa okkur undan láni sem hvílir á húsinu. Þannig væri Reykjanesbær að straumlínulaga reksturinn ásamt því að greiða niður skuldir og gæti þá einbeitt sér að öðrum aðkallandi málefnum sveitarfélagsins.

Úr varð að Reykjanesbær óskaði formlega eftir því við fjármálaráðuneytið í apríl 2025 að fá að setja fasteignina að Njarðarvöllum 2 í söluferli. Var beiðnin send vegna gildandi samnings sem fól í sér að sveitarfélagið yrði að eiga fasteignina og mætti ekki framselja hana. Þó höfðu slík erindi áður borist til ráðuneytisins og verið samþykkt frá Seltjarnarnesbæ og Ísafjarðarbæ. Í september 2025 fékkst heimild til að hefja söluferli fasteignarinnar.

Málið fór í rýni hjá bæjarlögmanni sveitarfélagsins auk annarra sérfræðinga og var tekið á dagskrá bæjarráðs í mars 2026. Þar samþykktu fulltrúar Samfylkingar og Framsóknar að hefja formlegt söluferli en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sátu hjá. Að þeirra mati þurfti að fá verðmat á húsinu, sjá stöðu lána, ástandskýrslu um húsið ásamt eignaskiptayfirlýsingu áður en húsið yrði sett á sölu þannig að hægt væri að setja sér raunhæf markmið um verð sem Reykjanesbær gæti sætt sig við.

Þessi gögn lágu fyrir en bæjarlögmaður og aðkeyptur lögmaður höfðu unnið málið um langt skeið. Markmiðið var skýrt: Að kanna áhuga á fasteigninni og að ná að greiða niður eða framselja lánið á fasteigninni til að greiða niður skuldir.

Þegar málið var tekið fyrir á fundi bæjarstjórnar þann 7. apríl bókaði þáverandi meirihluti Samfylkingar, Framsóknar og Beinnar leiðar að meirihluti bæjarráðs hafi tekið ákvörðun að auglýsa fasteignina að Njarðarvöllum 2 til sölu, þar sem starfrækt væri 60 rúma hjúkrunarheimili Nesvalla. Ákveðið hafi verið að auglýsa eftir tilboðum í eignina þar sem seljandi áskildi sér skýran rétt um að taka hvaða tilboði sem er eða að hafna þeim öllum.

Með auglýstu tilboði fylgdu upplýsingar um veðbandayfirlit á húsinu auk fasteigna- og brunabótamats ásamt endurstofnverði en eignin er alls 4.339 fermetrar.

Tekið var fram að um söluna giltu lög nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa en ekki lög nr. 65/1993 um framkvæmd útboða.

Talsverður áhugi var á fasteigninni og þökkum við veittan áhuga en við erum hér í dag að samþykkja söluna og losnum þá formlega undan rekstri fasteignarinnar að Njarðarvöllum 2.

Fasteignin tilheyrir B-hluta rekstri sveitarfélagsins og hefur þar með ekki áhrif á skuldaviðmið í bæjarsjóði A-hluta en með tilliti til sölunnar og ef miðað er við ársreikning þann 31. desember 2025 þá færi skuldaviðmið samstæðunnar úr 107,55% í 105,57%.

Það er umfram hagnaður af sölunni eftir niðurgreiðslu lána. Með sölunni verða skuldir sem hvíla á fasteigninni því yfirteknar eða greiddar upp, skuldastaða sveitarfélagsins batnar og vaxtakostnaður til framtíðar lækkar. Það skapar að okkar mati aukið svigrúm til að sinna mikilvægum verkefnum, fjárfesta í innviðum og bæta þjónustu við íbúa. Salan er því að skila þeim markmiðum sem upphaflega voru sett sem voru skref í átt að enn ábyrgari nýtingu fjármuna og sterkari fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar.

Það hefði verið einstaklega gott að nýta það fjármagn til niðurgreiðslu skulda eins og upphaflega var rætt. Meðal annars hefði verið hægt að greiða inn á lánið sem við tókum til að kaupa húsnæði Keilis að Grænásbraut 910. Það er þó ekki hægt þar sem núverandi meirihluti hefur þegar eytt fjármagninu í að niðurgreiða umframkeyrslu í samþykktri fjárfestingaáætlun sveitarfélagsins.

Við fögnum sölunni og óskum nýjum eigendum til hamingju með fallegt hús sem hýsir mikilvæga þjónustu. Það er ánægjulegt að sjá skynsamleg rekstrarmarkmið fyrri meirihluta komast til gjörða hér í dag þó að við hefðum kosið að nýta ágóðann í niðurgreiðslu skulda sem í lokin lækka skuldir íbúa Reykjanesbæjar.

Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hjörtur Magnús Guðbjartsson Samfylkingu, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsókn.

Bæjarstjórn samþykkir 11-0 framlagðan kaupsamning og felur Vilhjálmi Árnasyni bæjarstjóra Reykjanesbæjar að undirrita öll viðeigandi skjöl.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:11.