Dagskrá fundar
1. Fundargerðir bæjarráðs 5. og 12. nóvember 2026 (2026010008)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðirnar. Til máls tók Gunnlaugur Kárason.
Fundargerðirnar samþykktar 11-0.
2. Fundargerð skipulagsráðs 6. nóvember 2026 (2026010016)
Forseti gaf orðið laust um eftirfarandi mál fundargerðarinnar frá 6. nóvember til sérstakrar samþykktar.
Fjórða mál fundargerðarinnar Heiðarbraut 13 – viðbygging (2026100294) samþykkt 11-0 án umræðu.
Fimmta mál fundargerðarinnar Hæðargata 7 – viðbygging (2026100237) samþykkt 11-0 án umræðu.
Níunda mál fundargerðarinnar Sólbrekka – beiðni um þróunarsamning (2026100267). Málið er ekki tekið til samþykktar bæjarstjórnar, umsögnin verður send bæjarráði.
Forseti gaf orðið laust. Fundargerðin samþykkt án umræðu að öðru leyti 11-0.
3. Fundargerð velferðarráðs 12. nóvember 2026 (2026010017)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Til máls tók Guðný Birna Guðmundsdóttir (S) og lagði fram eftirfarandi bókun:
Mál 10 frá fundargerð velferðarráðs 12. nóvember 2026 - Fjárhagsaðstoð og sérstakur húsnæðisstuðningur - tölulegar upplýsingar (2026020248)
„Mikilvægt starf hefur verið unnið í Reykjanesbæ við að styðja íbúa til sjálfstæðrar framfærslu. Líta ætti á fjárhagsaðstoð sem samvinnu sveitarfélagsins við viðkomandi íbúa þar sem horft er til stuðnings til sjálfshjálpar.
Fjárhagsaðstoð er tímabundið öryggisnet fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem geta ekki tryggt framfærslu sína með tekjum eða öðrum framfærsluúrræðum. Markmiðið á að vera að enginn þurfi að reiða sig lengur á aðstoðina en aðstæður krefjast og að hverjum og einum standi til boða viðeigandi stuðningur.
Á síðasta kjörtímabili var unnið markvisst að eftirfylgni með málum umsækjenda. Í fundargerð velferðarráðs frá 13. mars 2025 er þegar greint frá verulegri fækkun umsækjenda og hún tengd skýrara utanumhaldi og samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og Vinnumálastofnun.
Í janúar og október 2025 samþykkti velferðarráð breytingar á reglum um fjárhagsaðstoð. Í janúar var sérstaklega tekið fram að breytingunum væri ætlað að skýra grunn fyrir verklag sem þegar var viðhaft. Í reglunum er stuðningur til sjálfshjálpar leiðarljósið og sérstök áhersla lögð á aðstæður barnafjölskyldna og þátttöku barna í félags- og tómstundastarfi.
Birtar tölur sýna verulega fækkun einstaklinga sem fengu fjárhagsaðstoð til framfærslu frá 2024 til 2026:
Mánuður | 2024 | 2025 | 2026 | Fækkun |
Janúar | 247 | 158 | 113 | 54,3% |
Febrúar | 212 | 129 | 111 | 47,6% |
Mars | 271 | 147 | 92 | 66,1% |
Apríl | 202 | 132 | 88 | 56,4% |
Maí | 234 | 137 | 84 | 64,1% |
Ágúst | 199 | 115 | 62 | 68,8% |
September | 227 | 128 | 62 | 72,7% |
Október | 236 | 140 | ||
Nóvember | 195 | 184 | ||
Desember | 189 | 161 |
Fækkun á fjárhagsaðstoð var þegar komin fram á síðasta kjörtímabili. Því verður þróunin ekki skýrð eingöngu með sumarátaki eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2026.
Mikilvægt er til framtíðar að árangurinn sé metinn út frá því hvort fjárhagslegt og félagslegt öryggi íbúa hafi batnað og þeir fengið viðeigandi stuðning. Starfsfólki velferðarsviðs og virkni- og ráðgjafarteymis eru færðar góðar þakkir fyrir mikilvægt starf.“
Guðný Birna Guðmundsdóttir og Hjörtur M. Guðbjartsson, Samfylkingu.
Til máls tóku Vilhjálmur Árnason og Margrét Þórarinsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
4. Fundargerð atvinnu- og hafnarráðs 12. nóvember 2026 (2026010009)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina. Til máls tóku Alexander Ragnarsson, Hjörtur M. Guðbjartsson, Vilhjálmur Árnason og Guðbergur Reynisson.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
5. Fundargerð menntaráðs 13. nóvember 2026 (2026010013)
Forseti gaf orðið laust um fundargerðina.
Til máls tók Díana Hilmarsdóttir (B) og lagði fram eftirfarandi bókun:
Fimmta mál fundargerðar menntaráðs 13.nóvember 2026 - Tillaga um gjaldfrjálsa frístund fyrir 1. bekk - kostnaðarmat (2026070036)
„Bæjarfulltrúar Framsóknar lýsa yfir vonbrigðum með að tillögu um gjaldfrjáls frístundaheimili fyrir börn í 1. bekk hafi ekki verið haldið áfram við fjárhagsáætlunargerð ársins 2027.
Samkvæmt kostnaðarmati hagdeildar hefði niðurfelling dvalargjalda frá 1. ágúst 2027, með áframhaldandi greiðslu fyrir síðdegishressingu kostað undir 30 milljónum króna á árinu 2027. Framsókn telur að það hafi gefið tilefni til frekari útfærslu og skoðunar á svigrúmi til innleiðingar.
Framsókn leggur áherslu á að draga úr fjárhagslegum hindrunum fyrir barnafjölskyldur og stuðla að jöfnum tækifærum barna til þátttöku. Gjaldfrjáls frístund væri mikilvægt skref í þá átt og gæti jafnframt stutt við íslenskunám og félagsleg tengsl barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.“
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Róbert Jóhann Guðmundsson og Díana Hilmarsdóttir Framsóknarflokki
Til máls tóku Vilhjálmur Árnason og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.
Fundargerðin samþykkt 11-0.
6. Uppbygging og úrbætur í leikskólum - stöðumat og forgangsröðun - fyrirspurn (2026090393)
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri tók til máls og fór yfir svör vegna fyrirspurnar Bjarna Halldórs Heiðusonar (S) sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember sl. - Uppbygging og úrbætur í leikskólum - stöðumat og forgangsröðun (2026090393) frá fundargerð leikskólaráðs frá 27. október 2026.
Er gert ráð fyrir að áður en ný gjaldskrá verður samþykkt liggi fyrir greining á áhrifum hennar á ólíkar fjölskyldur og tekjulág heimili sem þurfa lengri dvöl?
Og verður áætlun um árangursmat lögð fram áður en tilraunin hefst, þannig að við höfum skýr viðmið til að meta niðurstöðuna?
Til að meta hvort breytingarnar nái því væri gagnlegt að vita hversu mörg þessi börn eru, á hvaða aldri og hvaða hindranir standa helst í vegi fyrir þátttöku þeirra. Eru það gjöldin eða aðrar aðstæður?
Svar: Stefnt er að gjaldfrjálsri leikskóladvöl frá hausti 2027. Lagt er til að undirbúningurinn feli í sér mat á áhrifum á ólíkar fjölskyldur og áætlun um árangursmat áður en breytingarnar taka gildi. Jafnframt verði staða barna utan leikskóla kortlögð og kannað hvaða hindranir standa í vegi fyrir þátttöku þeirra, hvort sem þær tengjast kostnaði eða öðrum aðstæðum.
Leikskólaráð tekur fagnandi öllum fyrirspurnum er varða verkefnið og má beina þeim spurningum til leikskólafulltrúa, B. Sifjar Stefánsdóttur eða Ásdísar Ólafsdóttur formanns leikskólaráðs.
Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir og Margrét Þórarinsdóttir.
7. Stefna og viðbragðsáætlun Reykjanesbæjar gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi, EKKO – fyrri umræða (2026100258)
Forseti gaf orðið laust. Til máls tóku Guðný Birna Guðmundsdóttir og Vilhjálmur Árnason.
Stefnunni vísað til seinni umræðu í bæjarstjórn 1. desember 2026.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:08.