Menntasvið hefur faglega forystu í uppeldis-, mennta- og tómstundamálum í Reykjanesbæ. Sviðið sinnir stjórnsýslu, ráðgjöf og þróun þjónustu fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur.
Við leggjum áherslu á öflugt skólastarf, góða þjónustu og samstarf sem styður velferð og þátttöku barna og ungmenna.
Skólaþjónusta og stuðningur
Menntasvið veitir leik- og grunnskólum skólaþjónustu sem styður bæði nemendur, foreldra og starfsfólk skóla.
Áhersla er lögð á:
- velferð og hagsmuni nemenda
- fagleg og vönduð vinnubrögð
- snemmtækan stuðning og ráðgjöf
- samstarf skóla og heimila
Skólaþjónustan styður einnig við starfsþróun, nýsköpun og símenntun í samstarfi við skólastjórnendur.
Þjónustan byggir meðal annars á:
- lögum um grunnskóla nr. 91/2008
- lögum um leikskóla nr. 90/2008
- æskulýðslögum nr. 70/2007
- reglugerð um skólaþjónustu sveitarfélaga nr. 444/2019
Skólaþjónustan veitir einnig sálfræðiþjónustu við Fjölbrautaskóla Suðurnesja samkvæmt þjónustusamningi.
Leikskólar, grunnskólar og tónlistarskóli
Í Reykjanesbæ eru tíu leikskólar, sex grunnskólar, einn samrekinn leik- og grunnskóli og einn tónlistarskóli.
Skólarnir leggja áherslu á jákvæðan skólabrag, hvetjandi námsumhverfi og góða menntun í samstarfi við heimilin.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar starfar samkvæmt Aðalnámskrá tónlistarskóla. Þar er kennt á fjölbreytt hljóðfæri og söng fyrir nemendur á öllum aldri og námsstigum.
Daggæsla barna
Daggæsla barna í heimahúsum fellur einnig undir þjónustu menntasviðs og starfar samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Íþrótta- og tómstundastarf
Í Reykjanesbæ er boðið upp á fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf fyrir börn og ungmenni.
Menntasvið:
- sér um rekstur íþróttamannvirkja
- annast samskipti og samninga við íþrótta- og tómstundafélög
- rekur félagsmiðstöð og ungmennahús
- hefur umsjón með forvarnarstarfi fyrir börn og unglinga
Áhersla er lögð á þátttöku, heilbrigðan lífsstíl og jákvætt félagsstarf.
Lýðheilsa og vinnuskóli
Undir menntasvið heyra einnig lýðheilsumál og vinnuskóli Reykjanesbæjar.
Lýðheilsa
Markmið lýðheilsustarfs er að bæta heilsu og vellíðan samfélagsins og auka aðgengi að heilsueflandi aðstæðum fyrir öll.
Vinnuskóli Reykjanesbæjar
Vinnuskólinn er fyrir unglinga á aldrinum 14 til 16 ára.
Nemendur sinna meðal annars verkefnum sem tengjast:
- fegrun umhverfisins
- hreinsun gatna og hverfa
- umhirðu lóða og opinna svæða
Vinnuskólinn vinnur einnig með íþrótta- og æskulýðsfélögum og stofnunum bæjarins að fjölbreyttum sumarstörfum.