Foreldranámskeið og fræðsla
Skólaþjónustan býður upp á fjölbreytt fræðslu- og uppeldisnámskeið fyrir foreldra. Markmiðið er að styðja foreldra í uppeldishlutverkinu og hjálpa börnum að takast á við áskoranir sem geta komið upp á mismunandi aldursskeiðum.
Námskeiðin eru sniðin að aldri og þörfum barna og byggja á vel rannsökuðum aðferðum. Allir leiðbeinendur hafa viðurkennda fagmenntun og tilskilin starfsréttindi.
Hér fyrir neðan finnur þú nánari upplýsingar um námskeiðin.
Skólaþjónusta býður uppá námskeið fyrir foreldra. Námskeiðin miða að því að fræða foreldra um eðli kvíða og kenna þeim leiðir til þess að takast á við kvíðahegðun barna sinna og auka sjálfstraust þeirra. Námskeiðin byggja á vel rannsökuðum aðferðum og eru kennd af sálfræðingum skólaþjónustu. Vonast er til að með námskeiðunum verði hægt að minnka kvíðahegðun barna og í sumum tilfellum koma í veg fyrir að börn þrói með sér kvíðaröskun seinna meir.
Við skráningu eru foreldrar beðnir um að svara spurningarlista um stöðu barnsins, sem er nýttur til að meta hvaða námskeið hentar barni og foreldrum best.
Skráning og námskeiðsgjald
Næsta námskeið er ætlað foreldrum barna á leikskólaaldri (4-6 ára) sem sýna kvíðaeinkenni og er fyrirhugað á vorönn 2026. Frekari upplýsingar um skráningu, námskeiðsgjald og tímasetningar fyrir næsta námskeið verða birt síðar.
Uppeldi sem virkar - færni til framtíðar
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að fjalla um leiðir til að vera samtaka í uppeldinu og skapa æskileg uppeldisskilyrði. Markmiðið er að ýta undir færni sem líkleg er til að nýtast barninu til frambúðar. Foreldrar læra aðferðir til að styrkja eigin hæfni, laða fram æskilega hegðun barnsins og fyrirbyggja erfiðleika á jákvæðan hátt. Námskeiðin hafa verið haldin um árabil með góðum árangri. Námskeiðið er sérstaklega þróað fyrir foreldra barna á Íslandi, þar sem stuðst er við viðurkennd fræði og gagnreyndar aðferðir. Höfundar námskeiðsins eru Gyða Haraldsdóttir, doktor í sálfræði og Lone Jensen, þroskaþjálfi.
Við hvetjum þig til að nýta þér þetta frábæra tækifæri til að efla þig í foreldrahlutverkinu.
Nánar um námskeiðið
Hvert námskeið er samtals 8 klukkustundir sem dreifist á fjórar vikur. Kennt er einu sinni í viku í tvær klukkustundir í senn í gegnum fjarfundarlausn.
Yfirlit yfir næstu námskeið á íslensku:
Námskeið 1 verður kennt dagana 21. okt, 28. okt, 4.nóv og 11. nóv frá klukkan 19.30 - 21.30. Kennt verður í gegnum fjarfundarlausn.
Námskeið 2 verður kennt dagana 22. okt, 29. okt, 5.nóv og 12. nóv frá klukkan 19.30 - 21.30. Kennt verður í gegnum fjarfundarlausn.
Námskeið 3 verður kennt dagana 26. feb, 5. mars, 12.mars og 19. mars frá klukkan 19.30 - 21.30. Kennt verður í gegnum fjarfundarlausn.
Yfirlit yfir næstu námskeið á ensku.
Námskeið 4 Online cource (english version) will take place on January 14, January 21, January 28, and February 4 from 19:30 – 21:30. The course will be conducted in English via an online platform.
Báðir foreldrar eru hvattir til að sitja námskeiðið. Námskeiðsgjald á fjölskyldu er 10.000 kr. og námskeiðsgögn eru innifalin. / Both parents are encouraged to attend the course.The course fee per family is ISK 10,000, and course materials are included.