Stuðningsþjónusta við börn og fjölskyldur
Ef börn og fjölskyldur þurfa aðstoð vegna félagslegra aðstæðna, álags, veikinda, skertrar getu eða fötlunar getur Reykjanesbær veitt stuðning.
Stuðningsþörf er metin í samtali við ráðgjafa og tekur mið af aðstæðum barnsins, aldri og þroska. Markmiðið er að styðja barnið í daglegu lífi og veita foreldrum aðstoð og leiðsögn í foreldrahlutverkinu.
Ef þú telur að barnið þitt þurfi aukinn stuðning er fyrsta skrefið að bóka viðtal hjá ráðgjafa.
Hægt er að bóka viðtal með því að:
Foreldrafræðsla og uppeldisráðgjöf
Foreldrum, forsjáraðilum og vistunaraðilum er veitt leiðsögn til að tryggja þroskavænleg skilyrði fyrir uppeldi og aðbúnað barna. Stuðningurinn miðar að því að mæta ólíkum þörfum fjölskyldna og styrkja foreldra í hlutverki sínu.
Stuðningsfjölskylda fyrir 0–18 ára
Stuðningsfjölskylda er úrræði sem miðar að því að styðja foreldra í foreldrahlutverkinu, veita þeim hvíld og styrkja stuðningsnet barnsins.
Skammtímadvöl fyrir 0–18 ára
Skammtímadvöl er tímabundin dvöl utan heimilis sem léttir álagi af fjölskyldum og veitir börnum með langvarandi stuðningsþarfir tilbreytingu. Dvölin getur verið allt frá hluta úr degi upp í nokkra daga á mánuði, eftir mati á stuðningsþörf barnsins.
Sameiginleg skammtímadvöl fyrir sveitarfélög á Suðurnesjum er í Heiðarholti í Garði.
